Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Side 32

Menntamál - 01.03.1950, Side 32
26 MENNTAMÁL Og hin ófullkomna kennsla skólanna nú, mundi einnig gera meira gagn, ef þeir fengju nægilegan stuðning frá prest- um, heimilum og söfnuðum, en með söfnuði á ég við kirkju- rækinn söfnuð, sem leitar sér fræðslu um sín sáluhjálpar- efni, jafnframt því sem hann rækir bænarlíf sitt og guðsdýrkun. Ekkert gerist að orsakalausu. Og því mætti nú gjarn- an spyrja, hvers vegna nýguðfræðingunum hafi ekki tekizt að vinna það, sem rétttrúnaðurinn hafði tapað, og leiða fólkið inn í kirkjurnar að nýju. Ég man þá tíð, að ég og aðrir ungir nýguðfræðingar, sem sátum á skólabekk fyrir einum aldarf jórðungi, gerðum okkur þá þær vonir, að sú kirkjulega fræðistefna, sem við fylgdum, mundi smám saman fylla kirkjurnar, sem höfðu tæmzt á dögum rétttrúnaðar og gamalguðfræði. Nú er bezt að kannast hreinlega við það, að okkur hefur ekki tekizt þetta, enn sem komið er. Til þessa geta legið margar ástæður, en ein er þó sennilega þyngst á metunum, og vil ég nú reyna eftir beztu getu að gera grein fyrir henni. Steingrímur Benediktsson minnist á skynsemishyggj- una. Hún hefur fyrst og fremst komið fram í því, að svo- nefnd skynsemisrök hafa aðeins verið tekin til greina í umræðum um heimskepileg og trúarleg efni. Aðferðir náttúruvísindanna mótuðu hugsunarhátt fólksins, og þau lögðu til mælikvarða þekkingarinnar. Þekkingarleitin varð fyrst og fremst fólgin í því að skoða hlutina utanfrá. Trú- arbragðafræðslan átti í þessu að lúta sömu lögmálum og önnur fræðsla. Sumir skólamenn töluðu um, að trúar- bragðafræðslan ætti að vera svo hlutlaus, að hvorki kenn- arar né nemendur mættu taka jákvæða afstöðu til trúar- sanninda. Það hefur verið ríkjandi tilhneiging í skóla- starfi þessarar aldar að leggja mikla rækt við að fræða, og er það auðvitað gott og blessað, ef ekki hefði um leið verið vanrækt að hvetja hina yngri kynslóð til að taka ábyrga afstöðu til æðstu vandamála lífsins, Þannig þótti

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.