Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Side 40

Menntamál - 01.03.1950, Side 40
34 MENNTAMÁL KRISTINN ÁIiMANNSSON YFIRKENNARI: KennaraþingiS í Stokkhólmi 1. til 5. ágúst 1949. Þetta kennaraþing var m. a. að því leyti athyglisvert, að tvö stór kennarasambönd stóðu að því, ýmist á sam- eiginlegum fundum eða hvort í sínu lagi. Þessi sambönd eru: 1) Alþjóðasamband framhaldsskólakennara, F. I. P. E. S. 0. og 2) Alþjóðasamband kennara, í. F. T. A. Auk þess voru á þinginu fulltrúar frá World Organisation of the Teaching Profession (W. 0. T. P.). Annað aðalumræðuefni þingsins var einmitt að taka af- stöðu þessara tveggja sambanda til allsherjarsambands- ins, W. O. T. P. En sérstök frönsk nefnd hafði undirbúið málið og lagði það nú fyrir þingið. Yfirleitt voru menn sammála um það, að sjálfsagt væri, að ,,Fipeso“ gerðist þátttakandi í Alþjóðasambandinu, en um það var deilt, hvort kennarafélög einstakra landa ættu að ganga beint inn í Alþjóðasambandið, eða fyrst inn í ,,Fipeso“ og „Ifta“, og þau síðan inn í Alþjóðasambandið. Hið síðara var sam- þykkt með miklum meiri hluta. — Það kom greinilega fram í umræðunum, að menn töldu rétt, að kennarar allra skólastiga hefðu meiri samvinnu sín á milli en áður. Hitt aðalumræðuefnið á þessu þingi ,,Fipeso“ var fram- haldsmenntun kennara. Þegar fyrir löngu hafði ritari „Fipeso“ Miss Lawson, sent út spurningar, til hinna ein- stöku félaga, en sænski ritari mótsins, dr. Thoren, hafði unnið úr svörunum. Umræðunum var skipt í tvennt: 1) „praktisk“ menntun og 2) fræðileg menntun. Fyrra atriðið

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.