Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Side 63

Menntamál - 01.03.1950, Side 63
MENNTAMÁL 57 Árið 1946 luku 74%, en 1948 er árgangurinn í 83.9%. Árið 1947 luku 77.8%, en 1948 er árgangurinn í 82.3%. Við þessar endurheimtur bætist svo fjöldi þeirra nem- enda, sem fara til framhaldsnáms við skóla, sem veita sundnám og ljúka þar sundprófi, svo að líkur eru til þess að nú (1950) séu hundraðstölur þessara árganga (1945— 1946—1947) ámilli 85—95%. Reynsla undanfarina ára sýnir að 5—6% skólabarna eru of vanheil, til þess að iðka sund. Vanheil börn eru fleiri í kaupstöðum, en í sveitum. Þetta sést bezt af eftirfarandi: Vorið 1948 Sveitir Kaupstaðir Lokið tilskildu sundprófi 74.9% 87.4% Vanheil 3.0— 6.7— Luku ekki sundprófi eða voru ekki send til sundnáms 22.1— 5.9— Framkvæmd sundskyldunnar kostar árlega um kr. 750 þúsund. Af þessari upphæð er hlutur ríkissjóðs kr. 250 þús- und. Meðalkostnaður á hvern sundnemanda er um kr. 100.00. Ég hefi fyrr í þessari grein skýrt frá hinum góða hug almennings til sundsins, en þó hefir nokkuð borið á því, að aðstandendur hafa óskað eftir því að fá undanþágu frá því að senda barn sitt til sundnáms vorið, sem það tekur fuilnaðarpróf, vegna þess að þeir hafa sagzt ætla að senda barn sitt á þennan eða hinn framhaldsskólann og þar læri það að synda. Slíkar undanþágur hafa ekki verið veittar, en þó hafa

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.