Menntamál - 01.08.1957, Page 20
114
MENNTAMÁL
skyldunámsskólanna, svo fljótt sem kostur er, til leiðbein-
inga og styrktar kennurum og nemendum þeirra til vel-
farnaðar. Þeir leiðbeini einnig um atvinnuval eftir föngum.
7 fjórða lagi: Hraðað verði byggingum hagkvæmra skóla-
húsa eftir megni og þau búin þeim hjálpar- og kennslu-
tækjum, sem nauðsynleg eru nemendum til skilningsauka
og liðsinnis við sjálfstæð námstörf og athuganir.
IV. LOKAORÐ.
Hverju sem fram vindur í skóla- og uppeldismálum
þjóðarinnar í náinni framtíð, þá tel ég mestu máli skipta,
að hið allra bráðasta verði unnt að skapa verðandi og
starfandi kennurum sómasamlega aðstöðu í Kennaraskól-
anum og Háskólanum til þess að geta hlotið þar staðgóða
menntun undir leiðsögn sérfróðra manna á sviði kennslu-
og uppeldismála.
Meðan menn kenna, verða þeir að halda áfram að læra.
Annars er hætt við, að starfsgleði þeirra dvíni, og starfs-
árangurinn fer eftir því. En starfsglaðir, áhugasamir og
fórnfúsir kennarar ná allajafnan góðum árangri í skóla-
og uppeldisstörfum sínum, hvar svo sem leiðir þeirra
liggja.
Hér skal látið staðar numið í spjalli mínu um þetta al-
vörumál. Vel er mér ljóst, að nánar hefði þurft að fjalla
um ýmislegt af því, sem á hefur verið drepið, og vert
að taka fleiri atriði til meðferðar. En þar eð flestir kenn-
arar og skólamenn munu hafa velt þessum málum fyrir
sér, eigi síður en ég, þá vona ég, að það verði virt mér
á betri veg, sem áfátt er í þessum hugleiðingum mínum.
Að lokum þetta: Við þurfum að fá fleiri kennara, vel
menntaða menn og síleitandi að því, sem skólaæskunni
og þjóðinni allri má til velfarnaðar verða. Kennaraskóli
íslands og Háskóli íslands leggja drýgstan skerf til undir-
búnings því, að þetta megi takast.
H. El.