Menntamál - 01.08.1957, Blaðsíða 70
164
MENNTAMÁL
ARNGRÍMUR KRISTJÁNSSON, skólastjóri:
Kennaraheimboöin til Danmerkur.
Dönsk kennarasamtök hafa, í samvinnu við skólanefnd
Norrænafélagsins í Danmörku, boðið íslenzkum kenn-
urum til dvalar fjórum sinnum síðan 1951.
Hópferðir þessar hafa ávallt verið undirbúnar af full-
trúum frá stéttarsamtökum kennara (S. í. B. og L. S. F.
K.), en auk þeirra hefur fræðslumálastjóri og ritari (eða
formaður) Norrænafélagsins hér átt sæti í undirbúnings-
nefndinni hverju sinni. Náms- og skemmtiferðir þessar
hafa ávallt verið auglýstar með nægum fyrirvara og öll-
um kennurum við barna- og gagnfræðaskóla verið heimil
þátttaka. Þeirri reglu hefur verið fylgt, að þátttakendur
væru ávallt hvorutveggja úr bæ og byggð, úr mismun-
andi skólaflokkum og sem víðast að af landinu. Þeir
sem ekki komust með að þessu sinni sátu fyrir næst, ef
þeir þá gátu komið því við að fara.
Dvölin í Danmörku hefur jafnan staðið yfir um 4 vikur,
og hafa þátttakendur ávallt haft ókeypis ferðir í landinu
og viðurgerning allan hinn ágætasta.
Dvölinni hefur hverju sinni verið hagað þannig, að
fyrst hefur hópurinn dvalið í höfuðborginni sjálfri í nokkra
daga og skoðað þar hið markverðasta og notið gistivináttu
ýmissa stofnana, er styrkt hafa þessa kynningarstarfsemi
beint eða óbeint. Þaðan hafa þá ávallt verið farnar fræðslu-
og skemmtiferðir um borgir og byggðir Sjálands.
Síðan hafa hóparnir ferðazt til fjarlægari landshluta
s. s. Borgundarhólms eða Suður-Jótlands. — Þar hefur
hópurinn dvalið um tíma, kynnzt stéttarsystkinum, skoð-
að skóla og menningarsetur og sögulegar minjar, en að