Menntamál - 01.08.1957, Page 96
190
MENNTAMÁL
þáttum sálarlíísins, t. d. sjálfstrausti og vilja. Eru athugasemdir hans
þar um allar þarfar og skýrar, sbr. t. d. kaflann um hömlur á greind,
bls. 29 og áfram. Hæpið mun að gera ráð fyrir jafnstöðugri greindar-
vísitölu hjá sama einstakling og höfundur virðist gera, t. d.: „Barnið er
ávallt hið sama, greind þess vex í hlutfalli við meðalgreind aldurs-
flokksins", (bl. 42. Sjá einnig bls. 86). En hér hefur verið lagður sá
grundvöllur, að sannprófa má á ísienzkum börnum, hversu stöðug
greindarvísitala þeirra reynist. í lokajrætti fyrsta hluta er skýrt frá
notagildi greindarmælinga, það er gagnorð hugvekja um að nota í
skólum og kennslu nútima vísindi, öllum aðilum til gagns og jrurftar.
í öðrum hluta bókar eru leiðbeiningar fyrir prófanda og próf-
kerfið sjálft, en því fylgja að auki myndir og önnur gögn af ýmsu
tagi, alls á annað hundrað hlutir. Þá eru nákvæm fyrirmæli um mat
og matsreglur, en í þriðja og síðasta hluta eru nákvæmar töflur,
alls 34 blaðsíður, til að fara eftir við að breyta úrlausnum í greind-
arvísitölu. Að lokum er heimildaskrá.
Hér hefur verið stiklað á stóru, og ég býst ekki við, að unnt sé að
gera lesendum ljóst, hvert eljuverk Matthías Jónasson og samstarfs-
menn hans hafa unnið. Þó má það veita nokkra hugmynd um starf-
ið, að þetta er tíu ára verk M. J., en auk þess hefur hann lengst af
haft aðstoðarmenn. Við aðalsnafnið unnu þannig alls, þótt aldrei
væri að staðaldri, sex háskólagengnir sálfræðingar og einn kennari,
og auk þess hefur ekki verið hjá því komizt að leita þráfaldlega til
ýmissa sérfræðinga í öðrum greinum. Til verksins hefur og þurft að
verja miklu fé, en það skilar ekki arði fyrr en tekið er að nota þessi
gögn í uppeldi og kennslu, og ætti hvorki að þurfa að brýna fræðslu-
málastjórn né kennara til að vinna að því, að svo verði. Með því yrði
goldið með sæmilegumstu hætti skylt þakklæti fyrir hið mikla og
vandasama verk Matthíasar Jónassonar og samstarfsmanna hans, og
jafnframt yrði hirtur hollur arður af umfangsmesta starfi, sem unnið
hefur verið að uppeldis- og sálvísindum á íslandi.
Broddi Jóhannesson.
Námskeið og mót á Norðurlöndum í sumar.
Á vegum Norrænu félaganna verða, eins og venja er, lialdin all-
mörg mót og stutt námskeið í sumar. Þeim, sem hafa í hyggju að
fara til Norðurlanda í sumar, skal sérstaklega á það bent, að með
þátttöku í þessurn mótum geta þeir notið ódýrrar dvalar og ferða-
laga við hin beztu skilyrði, um leið og þeir fá tækifæri til að eign-
ast vini og kunningja frá öllum Norðurlöndunum.
Helztu mót og námskeið, sem ákveðin hafa verið, eru þessi: