Menntamál - 01.08.1957, Side 97
MENNTAMÁL
191
í Danmörku.
Tveggja vikna námskeið (14 dage pá h0jskole) verða í sumar á
25 dönskum lýðháskólum á tímabilinu frá lí). maí til 15. sept. Nám-
skeið þessi eru mjög vinsæl. Fjöldi þátttakenda hefur tífaldazt á
sex árum. — Haldin eru erindi, og námsflokkastarfsemi ýmiss konar á
sér stað fyrir liádegi hvern virkan dag. Síðari liluti dags er frjálsari
og er þá m. a. notaður til stuttra ferðalaga og útivistar. A kvöldin er
svo ýmiss konar skemmtan um hönd höfð. Dvalarkostnaður
(kennsla, fæði og húsnæði) er alls 165 danskar krónur.
Norrænt kennaranámskeið verður í Askov í sumar, svo sem venja
er til.
/ Finnlandi.
Norrænt skólastjóramót er fyrirhugað í Helsingfors dagana 3.-5.
ágúst. Það er venja, að norrænu félögin efni til skólastjóramóts í
tengslum við hið almenna norræna kennara- og skólamannamót,
sem haldið er þriðja livert ár á vegum fræðslumálastjórna allra
Norðurlanda, en slíkt mót verður í Helsingfors dagana 6.-8. ágúst
í sumar.
Mót norrænna æskulýðsleiðtoga verður 12.—17. ágúst í K.K.-sam-
vinnuskólanum í Helsingfors. Þar verður m. a. rætt um tómstunda-
iðju unga fólksins, hlutverk æskulýðsleiðtoga, verkefni norrænnar
samvinnu í þágu æskunnar og m. a. samstarf vinabæjanna á þessu
sviði. Dvalarkostnaður verður 6000 finnsk mörk.
I Noregi.
Dagana 17.—23. júní efna fjórir norrænir lýðháskólar til æskulýðs-
móts í Noregi í samvinnu við Norrænu félögin. Mót þetta er hugsað
sem skandinaviskt nemendamót, en ungu fólki frá íslandi og Færeyjum
er einnig boðin þátttaka. Fundarstaður er Romerike lýðháskóli um
40 km. frá Osló. Þeir skólar, sem að jressu móti standa, hafa nú í nokk-
nr ár liaft vinabæjasamband sín á milli. Skólarnir eru: Finn lýðhá-
skóli í Finnlandi, Vallekilde í Danmörku, Katrineberg í Svíþjóð
og Romerike lýðháskóli í Noregi. Dagskrá vikunnar er mjög fjöl-
breytt, og tendrað verður jónsmessubál í lok mótsins. Dvalarkostn-
aður er aðeins 35 norskar krónur fyrir vikudvölina.
Vikuna 1.—6. júlí efnir norska félagið til námskeiðs á Elingaard á
Onsþy við Fredrikstad, en það er gamall herragarður í Ostfold unt
10 km. frá Fredrikstad. Námskeið þetta er einkum ætlað nefndar-
niönnum jreim, sem fjalla um endurskoðun norrænna sögukennslu-
bóka á vegum Norrænu félaganna, en einnig kennurum og öðruni.
sem áhuga hafa á sögu Norðurlanda. Kostnaður vegna námskeiðs
þessa verður alls 150 norskar krónur.
Dagana 26.—31. ágúst verður norrænt fræðslumót á Sjusjþens há-