Menntamál - 01.02.1975, Page 7
ERU KENNARAR EINMANA ?
í Svíþjóð hefur nýlega komið út bók, sem nefnist „Arbetets mening?“ Höfundur hennar er
sænskur blaðamaður, Lage Johansson. Bókin fjallar um könnun hans á vinnuaðstöðu sex starfs-
stétta. Þ.e. hjúkrunarfólks, kennara, verkstjóra, lögreglumanna, iðnaðarmanna og farmanna.
Höfundur leggur áherslu á að vinnan sé mikilsverður hluti af lífi fólks og hafi afgerandi áhrif á
lífsviðhorfíð í heild.
Sé miðað við aðrar atvinnustéttir eru kennararnir einmana og einangraðir bæði sem stétt
og einstaklingar. Þetta er mikið vandamál, segir Lage Johansson. Hann álítur einnig að kennarar
engu síður en nemendur eigi að njóta þjónustu sálfræðinga og ráðgjafa í skólastarfínu.
Hér á eftir fer stutt viðtal við höfund bókarinnar um starf kennara, sem birtist í tímaritinu
Fackláreren nr. 19.1975.
Spurning:
í bók þinni: „Arbetets mening“
kemur fram, í þeim þætti, sem fjallar
um kennara, að þeir finni ekki mik-
inn tilgang í starfi sínu. Hefur þú hug-
mynd um hvernig á þessu stendur?
Svar:
Það er auðvitað ekki hægt að svara
fyrir sérhvern kennara. En hjá þeim
kennurum, sem ég ræddi við kom
fram mikill munur á því, sem þeir í
fyrstu bjuggust við að starfið fæli í sér
og svo hinu, sem seinna kom í ljós.
Margir kennarar halda því fram að
sú menntun sem þeir fá eigi ekki við
það starf sem þeir síðar stunda. í
skólastarfinu er það ekki „kennslu"-
hlutverkið sem allt starfið byggist á.
í sívaxandi mæli þarf kennarinn að
fást við ýmis samfélagsleg vandamál,
sem nemandinn á við að etja. Margir
kennarar álíta að þeir hafi ekki nægi-
lega þekkingu til að fjalla um þessi
vandamál. Ég álít þó að margir kenn-
arar — en ekki allir — hafi áhuga á
að starfa mun meira á samfélagssvið-
inu ef þeir ættu kost á þeirri menntun
sem nauðsynleg er.
Spurning:
Skólinn hefur tvennu hlutverki að
gegna. Hann kennir nemendum sam-
MENNTAMÁL
5