Menntamál - 01.02.1975, Qupperneq 38
BOKAHORN MENNTAMALA
Hér í „Bókahorninu''4 verður bent á bækur, innlendar og erlendar, sem kennarar
og annað skólafólk hefði ef til vill áhuga á að lesa. Ef viðkomandi bók er til á bóka-
söfnum verður á það bent og alltaf verður gefínn upp útgefandi, útgáfustaður og út-
gáfuár. Engin sérstök regla verður viðhöfð um val bóka sem bent verður á. Ábendingar
frá lesendum eru vel þegnar og þarf stutt lýsing á efni bókanna að fylgja með.
Ritstjóri.
STÆRÐFRÆÐIBLÖÐ OG BÆKUR
í nærliggjandi löndum eru gefín út nokkur tíma-
rit fyrir stærðfræðikennara í grunnskólum. Það
timaritið, sem íslenskir kennarar geta að líkindum
sótt beinastan fróðleik og hugmyndir í, er danska
tímaritið MATEMATIK, sem gefið hefur verið út
af Danmarks Matematiklærerforening s.l. 3 ár.
MATEMATIK flytur greinar um ýmis efni tengd
stærðfræðikennslu, kynningar á námsefni og hjálp-
argögnum skoðanaskipti kennara og síðast en ekki
síst hugmyndir, sem kennarar geta notað beint í
starfi sínu. Tímaritið kemur út 8 sinnum á ári og
kostar áskrift d. kr. 75,00. Tímaritið er keypt til
Bókasafns Kennaraháskóla íslands, þar sem það
liggur frammi fyrir kennara eins og kennaranema,
en auðvitað gætu stærri skólar keypt áskrift að því.
Af bókum, sem rétt er að mæla með fyrir stærð-
fræðikennara, vil ég hér nefna tvær, sem báðar
fjalla um stærðfræðikennslu, fremur en að vera
fræðilegar kennslubækur i greininni. Önnur bókin
heitir Mathematics in Primary Schools og er gefin
út af Her Majestys Stationery Office, 49 High
Holborn, London W.C. 1 árið 1969, en hin er
The teaching of mathematics in secondary schools,
sem kom út hjá The University Press, Bentley
House, 200 Euston Road, London NWl 2DB
árið 1973. Um báðar bækur gildir, að þær fjalla
um stærðfræðikennslu á mjög breiðum grundvelli,
val námsefnis, notkun hjálpargagna, tengsl við
aðrar greinar og fleira það er kemur náminu við.
í fyrri bókinni er að auki fjöldi skýringamynda og
myndir af nemendum og kennurum í starfi við
hin mismunandi viðfangsefni.
Að lokum nefni ég bókaflokk, sem ætlaður er
til sjálfstæðra athugana nemenda á aldrinum 11-14
ára. Þessar bækur má að sjálfsögðu kaupa fyrir
bókasöfn skólanna og getur verið um samvinnu við
tungumálakennara að ræða, þar eð bækurnar eru
MENNTAMÁL
36
á dönsku. Einnig má hugsa sér að kennari noti
bækurnar sem hugmyndagjafa að framsetningu og
verkefnum. Bókaflokkurinn heitir Matematik pá
egen hánd og er gefin út hjá Gyldendal. í flokknum
voru þegar komnar út haustið 1975 eftirtaldar
bækur: Symmetri, Cirkler og andre kurver, Tal-
monstre og Statistikkens verden.
(A. K.)
HANDBÆKUR
FYRIR LÍFFRÆÐIKENNARA
Morholt, Brandwein, Joseph: A Sourcebook for
the Biological Sciences, 2. útg. 1966. Útg.: Harcourt,
Brace & World Inc.
Þetta er nær 800 síðna myndskreytt bók um
tilraunir sem hægt er að gera í tilraunastofum skóla.
Tilraunirnar ná til dýrafræði, grasafræði, frumu-
fræði, efnaskipta, vaxtar, þróunar, erfðafræði og
atferli dýra. Flestum tilraununum fylgja fræðilegir
kaflar um viðkomandi svið líffræðinnar. í bókinni
eru lika ítarlegar leiðbeiningar um það hvernig
hægt sé að halda algengum lífverum úr umhverfinu
lifandi í skólastofu.
BSCS, Biology Teachers Handbook, 2. útg., 1970.
Útg.: John Wiley and Sons, Inc. 692 bls.
Þessi handbók er sérstaklega samin handa þeim
kennurum sem kenna líffræðinámsefni frá banda-
rísku námsefnisstofnuninni, The Biological Sci-
ences Curriculum Study, en allir líffræðikennarar
geta haft not af henni. Bókin lýsir formgerð líf-
fræðinnar og leggur áherzlu á þá hlið líffræðinnar
sem snýr að þekkingarleit. Með fjöldamörgum
dæmum er sýnt hvernig kennarar geta laðað nem-
endur til virkrar þekkingarleitar í náminu, bæði í
umræðu og með athugunum og tilraunum. í bók-
inni er fjallað um markmið líffræðináms og náms-
mat í ljósi þess að líffræðinámið sé þekkingarleit.
(R. B.)