Menntamál - 01.02.1975, Page 41

Menntamál - 01.02.1975, Page 41
UPPLÝSINGAR FRÁ KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS UM KENNARANÁMSKEIÐ 1976 A. ALMENNAR UPPLÝSINGAR Á vegum Kennaraháskóla íslands verður efnt til námskeiða fyrir kennara næsta sumar og verður hér gerð nokkur grein fyrir þeim. 1. Tilhögun námskeiða. Öll námskeið hefjast kl. 9 árdegis þann dag sem auglýst er að námskeið byrji. Þau eru miðuð við fullan starfsdag þátttakenda meðan þau standa. 2. Námsstig fá kennarar reiknuð fyrir þátttöku í námskeiðum samkvæmt gildandi kjarasamningum frá 1974 milli fjármálaráðherra og kennarasam- taka. Hver heil námskeiðsvika er metin á 1| stig. Vottorð um þátttöku og þar með námsstig fá þeir sem mætt hafa í 80% kennslustunda hið minnsta, og hafa skilað tilskildum úrlausnum og vinnu á námskeiðinu. Sama regla gildir um greiðslu ferða- og dvalarkostnaðar. 3. Námskeiðskostnaður. Innritunargjalder kr. 1000 fyrir hverja námsgrein og skal senda það með umsókn. Það er endurkræft ef umsækjandi tilkynnir forföll mánuði áður en námskeið hefst. Feróa- og dvalarkostnaóur. Heimilt er að greiða föstum kennurum (settum eða skipuðum), sem sækja námskeið í meir en 25 km fjarlægð frá heimili sínu, fargjöld og § hluta af dagpeningum þeim sem ríkisstarfsmenn fá á ferðalögum innanlands (sbr. reglur þar um). Dag- peningagreiðslur falla niður ef kennurum er séð fyrir gistingu og fæði á námskeiðsstað. 4. Umsókn um námskeið skal senda á sérstöku umsóknareyðublaði sem hér fylgir. Aðeins skal sækja um eitt námskeið á hverju eyðublaði. Umsóknarfrestur er til: 10. apríl fyrir námskeið í júní og 10. maí fyrir námskeið í ágúst nema annað sé tekið fram. Athygli skal vakin á að umsókn er ekki tekin til greina nema hún sé skrifleg, og hún veitir ekki rétt til þátttöku í námskeiði fyrr en jákvætt svar berst frá endurmenntunarstjóra. Ef ekki hafa borist nógu margar umsóknir um námskeið þegar umsóknarfrestur rennur út, verður það fellt niður og umsækjendur látnir vita. Umsóknir skal senda til Kennaraháskóla íslands, merktar „Námskeið“. B. UPPLÝSINGAR UM EINSTÖK NÁMSKEIÐ OG NÁMSKEIÐSFLOKKA I. íslenska 1.1 Námskeið í málvísi fyrir kennara 7.—9. bekkjar 1.—5. júní. Staður: Kennaraháskóli íslands. Umsjón: Guðmundur Kristmundsson æfinga- kennari. Aðalkennari: Indriði Gíslason lektor. Hámarksfjöldi þátttakenda: 50. Viðfangsefni: Kynnt verður nýtt námsefni í mál- vísi (málfræði, setningafræði, merkingafræði) handa 7., 8. og 9. bekk. Stafsetningarkennsla verður einnig til umræðu. Námskeiðið er ætlað kennurum, sem ekki hafa sótt málvísinámskeið áður. öðrum er þó heimil þátttaka eftir því sem rúm leyfír. Athygli skal vakin á því að á íslenskunámskeiði (1.2) á Stórutjörnum (sem ætlað er kennurum 4,- 9. bekkjar) verður einnig þáttur um málvísi. 1.2. Námskeið fyrir kennara 4.—9. bekkjar 10.— 16. júní. Staður: Stórutjarnaskóli S.-Þing. Umsjón: Ásgeir Björnsson og Indriði Gíslason lektorar við Kennaraháskóla íslands. Hámarksfjöldi þátttakenda: 30. Viðfangsefni: Bókmenntir og framsögn. Mál- notkun og málvísi. Einkum verður unnið í smáum starfshópum að sérgreindum viðfangsefnum þar MENNTAMÁL 39

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.