Menntamál - 01.02.1975, Síða 45
Markmið: Kynna kennurum, sem starfa við eða
munu taka að sér störf við skólasöfn, helstu grund-
vallaratriði í stjórnun og skipulagi safnanna. Megin-
áhersla verður lögð á hinn kennslufræðilega þátt.
Viðfangsefni:
1. Markrnið skólasafna.
2. Löggjöf varðandi skólasöfn. Skólasöfn erlend-
is (Norðurlönd).
3. Deildir skólasafna.
4. Flokkun og skráning bóka og nýsigagna.
5. Barnabókmenntir.
6. Starfsemi skólasafna.
7. Nýsigögn og kennslutæki.
8. Innrétting skólasafna.
9. Hópvinna á skólasöfnum að kennslufræði-
legum verkefnum. Þátttakendur skili þeim verk-
efnum í lok námskeiðsins. Reynt hefur verið að
fá leiðbeinanda frá Danmörku, en svar hefur ekki
borist enn og þess vegna er ekki hægt að tímasetja
námskeiðið nákvæmlega. Það verður þó í júní.
XI. Umferðarfræðsla
11.1. Námskeið fyrir kennara 1.—6. bekkjar 24.—
27. ágúst.
Staður: Laugarvatn.
Umsjón: Guðmundur Þorsteinsson.
Námskeiðið er ætlað kennurum 1.-6. bekkjar,
einnig fóstrum og lögregluþjónum sem starfa við
umferðarfræðslu.
Viðfangsefni:
1. Skipulag umferðarfræðslu.
2. Umferðarlög — reglur.
3. Umferðarsálarfræði.
4. Barnið (á forskólaaldri) í umferðinni.
5. Notkun kennslutækja og kvikmynda.
6. Vettvangsathugun, vandamál barnsins í um-
ferðinni.
7. Reiðhjólaþrautir og verklegar æfíngar.
XII. Heimilisfræði
12.1. Námskeið fyrir hússtjórnarkennara 16.—21.
ágúst.
Staður: Kennaraháskóli íslands.
Umsjón: Halldóra Eggertsdóttir og Anna Gísla-
dóttir.
Viðfangsefni:
1. Kynning á nýrri námskrá og umræður um
kennsluaðferðir, námsmat o.fl.
2. Matvælafræði.
XIII. Sjóvinnunámskeið
Staður: Sjómannaskólinn Reykjavík.
Umsjón: Hörður Þorsteinsson og Pétur Ólafsson.
13.1 Byrjendanámskeið 16. ágúst — 3. september.
Kennd verða undirstöðuatriði til kennslu í verk-
legri sjóvinnu í gagnfræðaskólum.
13.2. Framhaldsnámskeið 16.—25. ágúst.
Námskeiðið er ætlað þeim kennurum sem hafa
sótt byrjendanámskeið áður. Kennd verða undir-
stöðuatriði í siglingafræði.
XIV. Tónmennt
14.1. Námskeið í tónmennt fyrir kennara grunn-
skólans 18.—27. ágúst.
Staður: Tónlistarskólinn í Reykjavík.
Umsjón: Guðmundur Guðbrandsson.
Hér er um að ræða áfanga í lengri áætlun um
endurmenntun tónmenntarkennara. Þátttaka í slík-
um námskeiðum er skilyrði fyrir því að kennarar
fái nýtt námsefni til notkunar. Því er ekki síst mikil-
vægt að ná til sem flestra kennara sem ekki hafa
áður komið á tónmenntarnámskeið.
Námskeiðið er ætlað:
1. Kennurum sem ekki eru sérmenntaðir tón-
menntarkennarar en starfa þó við kennslu í þeirri
grein. Hér er einkum átt við kennara utan af landi,
bæði almenna kennara, söngstjóra, organista og
aðra hljóðfærakennara sem stunda eða munu
stunda tónmenntarkennslu í skyldunámsskólum.
2. Starfandi tónmenntarkennurum með sér-
kennsluréttindi.
Kennt verður virka daga kl. 9-12 og 14-17 og
laugardaginn til hádegis.
Viófangsefni verða að öllum líkindum sem hér
segir:
1. Söng- og tónheyrnaþjálfun. Kennari: Anna
Hamvas.
2. Kynning á námsefni og þjálfun í meðferð þess
og kennslu: a) nýtt námsefni fyrir 4. bekk. b) áður
útkomið námsefni 1.-3. bekkjar fyrir þá kennara
sem ekki hafa kynnst því.
3. Blokkflautuleikur. Þátttakendum verður skipt
í hópa eftir getu. Einnig verður um byrjendakennslu
að ræða. Þátttakendur eru minntir á að hafa með
sér sópranflautu (C-flautu) eða kaupa hana í
Reykjavík við upphaf námskeiðs.
4. Kórsöngur í 1-2 hópum. Kynning á kórbók-
MENNTAMÁL
43