Vorið - 01.03.1953, Side 34

Vorið - 01.03.1953, Side 34
30 V O R I Ð ar að nota endurheimt frelsi til lilaupa á ný. Hann arkaði suður í llag og lagðist í lilýja moldina. Við sáum Dúllu ekki, ‘hugðum hana í hvarfi við bæinn, en vildum þó vita til hlýtar, hvar hún væri. Skyggnd- umst við því kringum bæinn, en þar var engin Dúlla. Er þá ekki að orðlengja það, að leitin var þegar hafin, á öllum óhugsanlegum sem hugsanlegum stöðum, innan girð- ingar. En þegar það bar ekki árang- ur, lögðum við Dolla, systir mín, af stað út fyrir túngirðinguna. Leituð- um við síðan allt út til merkja. Kálfinn fundum við ekki, en tcimdu heimaliestana sáum við út við merki. Leitt þcitti okkur að skilja þá eftir Jjar og fara algjörlega fýluför. F.n ekki höfðum við snæri, því síð- ur beizli. Stóðum við þarna í ráða- leysi nokkrarstund. Ósjálfrátt litum við báðar til fjalls. Sáum við þar mann, dökkklæddan, er skundaði á brattann. Þóttumst við þekkja bróður okkar. Undruðumst við háttalag hans og tókum að kalla til hans, hátt og snjallt, en liann svar- aði engu og jók skriðinn. Hugðum við hann æran orðinn og orguðum, svo að yfir tók fjöllin, en hann lét sem ekkert væri. Skyndilega sneri hann við og kom ofan eftir og stefndi til okkar. Þegar hann átti skammt eftir ófarið, tók- um við að grennslast eftir hátterni hans og fengum þá loks svar. Köll okkar hafði hann heyrt, eins og við reyndar vissum, en þúst nokkra hafði hann séð og álitið kálfinn. Hafði hann síðan stefnt Jrangað, en ekki viljað svara, fyrri en hann vissi hið rétta. En er hann kom nær Jrúst- inni, sá hann að þetta var aðeins steinn með fugladriti. En til allrar hamingju hafði bróðir okkar þó snæri á sér. Hnýtt- um við því upp í einn hestinn. Reið ég síðan á honum Jieim að túngirð- ingu og rak hina hestana.Þar sleppti ég Jjeim og hóf leitina að nýju suð- ur að afréttargarðinum. En engan kálf bar fyrir augu mín í þeirri för. Sneri ég því iit á við aftur og mætti systkinum mínum. Höfðu þau einskis orðið vísari. Héldum við þvi heim við svo búið. Þegar við höfðum fengið okkm' hressingu, æddum við meðfrani ánni, sem var í flóði, ef vera kynm að Dúlla hefði álpast út í og hana síðan rekið dauða að landi. En, sem betur fór, var hana ekki þar að finna. Þegar leitinni loks lauk, var kominn fjósatími, dregið fyrir sól- ina og farið að kólna til muna. Hugsuðum við þá einu sinni enn til aumingja Dúllu litlu, sem enginn vissi hvar var niður komin. Kom okkur þá til hugar, að ef til vill hefði hún ranglað frarn á afrétt. Ráðgerðum við að leita hennar þav að morgni, en þá um kveldið var þess enginn kostur, þar eð við höfð- um næstum því gengið sólana sund- ur. En Jregar við vorum að skegg'

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.