Vorið - 01.03.1963, Blaðsíða 17
EDISON
'.......... -■■■ ■■«3T«iaiirwmiiim muvia, tuibun.
Hefur útgefandi, Bókoútgófan Setberg, góðfúslego veitt leyfi til a3 birta honn
hér í Vorinu.
ALLT ÞARF HANN AÐ VITA.
Thomas Alva Edison er fæddur í
smábænum Milan í Ohio 11. febrúar
árið 1847. Það fyrsta, sem um hann var
sagt, spáði ekki góðu.
Læknirinn hvíslaði að föður hans,
Samúel Edison, svo að lítið har á:
„Það er allt of stórt höfuðið á
drengnum. — Alltof stórt. — Það er
hætt við, að heilinn sé ekki rétt skap-
aður. Mér lízt ekki á það.“
Og læknirinn kvaddi og fór. Hann
hafði gert skyldu sína.
Þessi orð læknisins bárust út smátt
°g smátt, og þegar drengurinn stálpað-
ist, virtist mörgum, að spáin ætlaði að
faetast. Þeirn var sannarlega vorkunn,
vesalings foreldrunum.
Það leyndi sér ekki, að höfuðið á
Wninu var óþarflega og óhæfilega
stórt. — Það sáu allir.
Og hárið — ekki tók þar betra við.
Ekki var það hrokkið, og ekki var hægt
að skipta því og greiða það slétt. Það
stóð beint út í loftið, hvernig, sem með
það var farið.
I3að leit út fyrir, að þetta yrði vand-
fffiðabarn.
A-Hir þekktu forvitni hans. Allt þurfti
hann að vita, bæði í jörðu og á. Það
var víst enginn í öllu fylkinu jafnspurull
og hann. Og þeir voru margir, sem gáf-
ust algerlega upp við að svara þessum
eilífu spurningum hans. Þeim rigndi
niður jafnt og þétt:
„Af hverju?“
„Af hverju?“
„Af hverju?“
Þetta endaði alltaf með því, að sá,
sem spurður var, komst í mát og svar-
aði reiðilega:
„Ég veit það ekki.“
En þá hnyklaði Alva brýnnar, horfði
hugsandi út í loftið, greip litlu hendinni
upp í hárlubbann og sagði hægt og ró-
lega:
„Af hverju veiztu það ekki?“
Svona var Alva.
Ln liann lét sér ekki nægja að spyrja.
Hann vildi líka athuga sjálfur, rann-
saka og reyna alla hluti, því að allt vildi
hann vita og skilja til fulls. Hann var
ekki hár í loftinu, þegar liann byrjaði
rannsóknarferðir sínar um allan bæinn
og umhverfi hans.
Hann fann bátasmíðastöðina, og þar
var margt og mikið að athuga. Og hann
VORIÐ 13