Vorið - 01.04.1972, Page 30

Vorið - 01.04.1972, Page 30
hrakið af réttri leið. Þeir voru staddir við suð- vesturströndina, ekki alllangt frá þeim stað, er upphaflega hafði verið ákveðinn til landtöku. Nœsta verkefni var að komast að raun um, hvaða skemmdir hefðu orðið á vél skipsins. Pyrst varð að finna bilunina, og kafari var sendur niður. Hann uppgötvaði brátt skemmdirnar. Eitt skrúfublaðið var þverbrotið, en auk þess fann hann nokkrar aðrar minni skemmdir. Iivað átti nú að gera? Að vísu var allmikið af áhölduin til, en skemmdirnar voru svo miklar, að óhugsandi var, að hœgt væri að gera við þær hér. Glenvan lagði því til, að reynt yrði að sigla fram með strönd- inni til Melbourne, en þar var skipaviðgerðar- stöð. Þetta var eina bjargráðið, oins og komið var. Nóttin var að færast yfir láð og lög. Allir voru hvíldar þurfi, einkum þó skipstjórinn, som orðinn var örþreyttur. Þess vegna gengu allir til náða, bæði farþegar og skipverjar, en þó ekki fyrr en greifinn hafði flutt guði þakkir fyrir dásamlega liandleiðslu á stund liættunnar. Daginn eftir lægði storminn svo, að liægt var að halda ferðinni áfram. Aðeins léttur andvari stóð í seglin og spáði góðu um ferðalagið þenn- an komandi dag. „Duncan' miðaði vel áfram, þótt honum af skiljanlegum ástæðum skilaði ekki eins vel og venjulega, og loks náði hann liinum lengi þráða stað, — 37. breiddargráðunni. Hér var sæbratt og mikið af skerjum fyrir strönd- inni, einkum voru það kóralrif, hættuleg skipum, sem um sundin fóru. Skipsbátnum var rennt niður, og farþegarnir stigu í hann. Að lítilli stundu liðinni stóðu þeir á ástralskri grund. Róbert og María kenndu mik- illar eftirvæntingar, þegar þau stigu á það land, sem faðir þeirra gisti nú. En ef hann var ekki hér, þá var öllum vonum þeirra kollvarpað. Þá var ekkert annað að gera en snúa við aftur til Evrópu. Þegar komið var á land, liófust samstundis athuganir og eftirgrennslanir. Liðið dreifði sér, og leitað var meðfram ströndinni nokkrar klukku- stundir, en sú leit bar engan árangur. Hvergi varð nokkurs vart, sem bent gæti til, að skip hefði strandað á þessum slóðum. Um hádegi hittust allir aftur, og voru þ,í margir vonsviknir. Prófessorinn huggaði börnin með venjulegri gamansemi: „Yerið liugrökk," mælti hann. „Það er varla við því að búast, að Oldurnar gengu yfir skipiS við komumst á slóðina í fyrstu lotu. Nú höldum við inn í landið, leitum og spyrjumst fyrir. Hvet veit nema við verðum einlivers vísari á bak viö þessar hæðir.1 ‘ Nú var snæddur óbrotinn morgunverður, sem ferðamennirnir liöfðu liaft með sér frá skipin'b og eftir einnar klukkustundar hvíld var lagt "i stað upp allbratta hæð, en talið var, að þaðan mundi vora gott útsýni. Róbert varð auðvitað fyrstur til að koiuasi alla leið upp á hæðina. Þaðan veifaði liann húf- unni til félga sinna, til sárrar gremju fyrir prö' fessoripn, sem liafði vænzt þess, að hann nieð hjálp sinna löngu 40 ára leggja yrði fyrsti mað- ur upp á hæðina. Hann hélt, að liann gæti boðiö út 12 ára strákhnokka í þeim efnum. Útsýnið var ekkert sérlega tilkomumikið. Flatt; gróöurlaust land blasti við auganu, er minnti •' auðnir Skotlamls eða heiðalönd Bretagne, cfti' því, hvort Glenvan eða Paganel gerði samanbui'Ö V0RÚ3 30

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.