Bjarmi - 01.12.1999, Blaðsíða 9
fyrirgefa. Eftir nokkum tíma lét ég und-
an, ég sagði með munni mínum að ég
fyrirgæfi manninum. Það var þó meira í
orði en verki. Þegar ég svo hélt áfram að
biðja fór ég smátt og smátt að finna fyrir
breytingu innra með mér.
Góð ráð
Hvað lyálpaði ykkur mest í sorginni?
Tom: Við fáum oft bréf frá fólki sem
er að fást við erfiðar aðstæður. Mig
langar að vitna í bréf sem konan mín
sendi móður einni sem hafði þá nýverið
misst tvær unglingsstúlkur í bílslysi.
„Það sem getur bjargað þér á þessari
göngu er að biðja til og leita Guðs. Ég
veit að það getur verið erfitt en mundu
að Guð elskar þig. Hann veit hvernig
þér líður. Ef þú heldur fast í hann, mun
hann halda á þér þegar þig skortir
styrk.
Tom og ég tölum við marga foreldra
sem hafa misst börn sín. í samtölum
okkar við þá leggjum við áherslu á þrjú
atriði.
1 Guð elskar þig. Þó svo að honum sé
fullkunnugt um allt sem gerist i lífi
þínu, er hann ekki valdur að því öllu.
Andstæðingur okkar er djöfullinn sem
Jesús sagði að kæmi aðeins til að
stela, slátra og eyða. Höfum einnig
hugfast að óvinurinn er miskunnar-
laus. Eftir að hafa tekið frá þér bömin
þín mun hann sækja fast að eyði-
leggja samband þitt við þann sem get-
ur hjálpað þér í sorginni. í Opinber-
unarbókinni er hann kallaður ákær-
andinn. Slíkt er eðli hans. Hann
ákærir okkur frammi fyrir Guði og svo
sakar hann Guð um þá hluti sem
hann sjálfur hefur gert. „Ef Guð elsk-
ar þig, hefði hann aldrei leyft þessu
að gerast." Guð elskar þig, sama hvað
óvinurinn reynir að sannfæra þig um.
Elska Guðs verður ekki mæld með
sömu mælistiku og erfiðleikar okkar.
Þú verður að koma auga á elsku Guðs
til þín í gegnum krossdauða sonar
hans.
2 Sársauki og reiði eru raunverulegar
tilflnningar. Þegar við erum særð em
viðbrögð okkar oft reiði. Það er allt í
lagi. Guð elskar þig og hann hefur
stóran faðm. Hann vill frekar að þú
komir til hans með sársauka þinn og
reiðina en að þú látir það bitna á
Marilyn og Tom Rose ásamt Rachel dóttur sinni.
þeim sem þegar liafa upplifað erfið-
leika. Mundu að engir tveir syrgja á
sama hátt. Kannski vilt þú ræða um
hlutina, en maðurinn þinn hefur eng-
an áhuga á því (eða öfugt). Gefið hvort
öðm svigrúm til að taka á málunum
eins og þið þurfið. Ef þú þarft að ræða
málin en hann ekki, hringdu þá í vin-
konu eða skrifaðu mér. Ég skal
hlusta.
3 Vertu góð við sjálfa þig og aðra. Ekki
gera of miklar væntingar til sjálfrar
þín. Maður þornar upp í sorginni.
Hún virðist sjúga alla orku úr manni.
Ekki ofgera þér. Gefðu þér tíma til að
batna. Jesús sagðist hafa komið til að
reisa hina sorgmæddu við. Hann mun
reisa þig við en það mun taka tíma.
Það er allt í lagi að gráta frammi fyrir
honum. Þú munt komast að þvi, um
leið og hann reisir þig við, að hann yf-
irgaf þig aldrei. Hann mun ekki
bregðast þér.“
Mikilvægt að hlusta
Hvemig getum við hjálpað tríisystkinum
okkar sem syrgja?
Tom: Aftur langar mig að vitna í bréf
sem við sendum konu nokkurri. Vin-
kona hennar hafði misst fjögur böm í
eldsvoða. Konan sjálf slasaðist við
björgunaraðgerðir.