Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1999, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.12.1999, Blaðsíða 14
Hróp hinum megin af hnettinum Afstarfi Hillsong Music í Ástralíu að er vel við hæfi að það eru engir skýjakljúfar í Hills hverfinu í Sidney í Ástralíu. Hópurinn sem stendur á bak við Hillsong Music hefur of mikið að gera til að vera upptekinn af þeirri velgengni og frægð sem fersk lof- gjörðartónlist þeirra nýtur. Það er árla morguns einn sólríkan sunnudag í þessarri áströlsku borg sem mun halda Ólympiuleikana árið 2000. Þúsundir Ástrala streyma til kirkju. Þessi kirkja sem um ræðir heitir Hills Christian Life Centre (HCLC) og er Hvítasunnukirkja (Assemblies of God). Hillsongs Music er hluti af þessari kirkju. Þeir sem mæta snemma fá sér sæti í salnum í þessarri nýlegu byggingu sem er óðum að fyllast. Þeir sem mæta mjög snemma geta fylgst með þegar tónlistarhópurinn æfir sig fyrir fyrstu samkomuna sem er kl. 8:30 f.h., - en hún er fyrst fimm sam- koma. Framarlega í hópnum er 33 ára leiðtogi hópsins og „lofgjörðarleiðtogi", Darlene Zschech (frb. „tsékk'j. Hún er nú þegar orðin alþjóðlegt andlit Hill- songs. Sítt, ljóst hárið gerir það að verkum að hún þekkist auðveldlega, hvort sem er á sviði eða framan á geisladiski. í apríl á þessu ári fékk hún alþjóðleg verðlaun frá samtökum útgef- enda kristilegrar tónlistar í Bandaríkj- um á hátíð sem haldin var í Nashville, Tennessee. Þó svo að frægðin umkringi hana, forðast Darlene Zschech sviðsljósið sem fylgir henni. Hún vill frekar halda áfram að gera það sem hún kann best - eitt- hvað þægilegra - sem í hennar augum er að lofa Guð. Það sem er mest að- kallandi þennan morgun er að gera sig klára fyrir samkomuna kl. 8:30. Byggingin er að fyllast af fólki og sam- koman er um það bil að hefjast. Lof- gjörðin byijar og þegar fyrsta söngnum lýkur beinist athyglin til himins. Zschech stígur eitt eða tvö skref aftur á bak. Það virðist vera ósjálfrátt. Þessi hreyfing virðist ekki vera æfð, aðeins nokkur skref aftur fýrir röð söngvaranna sem standa fyrir miðju sviðinu. Tónlistar- fólkið byrjar að spila næsta lag og Zscech lyftir hljóðnemanum upp að munni sín- um og segir blíðlega: „Þetta snýst ekki um tónlistina, Drottinn. Þetta snýst um þig.“ Þama sagði Zscech sögu Hillsong með eigin orðum. Þetta snýst ekki um tónlistina. Þetta snýst um Drottin. Að hrópa til Drottins Darlene Zschech hefur vakið sérstaka at- hygli í sumar eftir að geisladiskurinn „Shout to the Lord 2000“ með ástralskri lofgjörðartónlist barst Bandaríkjamönnum til eyma. Tveir söngvarar til viðbótar koma fram með Hillsongs hópnum, söngvarar sem em betur þekktir í Bandaríkjunum: Ron Kenoly og Alvin Slaughter. Diskurinn var tekinn upp við Homebush flóann í Sid- ney árið 1998 í húsnæði þar sem hluti Ólympíuleikanna árið 2000 fer fram. Það kynni að vera freistandi fyrir Zschech og Hillsongs að nota velgengni nýja disksins sem stökkbretti til að byggja upp útgáfuveldi fyrir meiri lofgjörðartón- list. Sölutölur þessa nýja disks hafa þegar rokið upp úr öllu valdi í kristilegum plötu- búðum í Ástralíu og feta þannig í fótspor velgengni hans í Bandaríkjunum þar sem hann er að verða gulldiskur. Titillagið á fyrsta diskinum var út- nefnt sem besta lag ársins 1998 á kristi- legri tónlistarhátið í Bandaríkjunum (Dove). Diskurinn var útnefndur besti diskurinn 1997. En það er ekki á dagskránni hjá Zschech að byggja upp eitthvert veldi. Það er heldur ekki takmark hjá HCLC kirkj- unni að vinna heiminn fyrír Hillsongs. „Okkar takmark er ekki að upphugsa stöðugt eitthvað stærra og betra," segir Zschech. „Ég hef ekki áhuga á einhveij- um sölubrellum." Ameríkanar koma ekki til með að sjá nýtt útgáfufyrirtæki frá Hillsongs Music í Ástralíu sem hefur það að takmarki að sigra heiminn, þrátt fyrir að þeir eru

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.