Bjarmi - 01.12.1999, Side 11
árin sem hann hafði gefið okkur fjöl-
skyldunni. Ég þakkaði honum fyrir
börnin okkar þrjú sem hann hafði gefið
okkur og ég þakkaði honum fyrir það
sem gerðist á krossinum. Á meðan ég
þakkaði honum fann ég íyrir snertingu
hans og tók að skjálfa. Hjarta mitt tók
viðbragð. Ég lagði hönd mína á brjóstið
og konan mín hélt að ég væri að fá
slag. Ég sagði henni að svo væri ekki,
heldur væri andi Guðs að verki. Ég
spurði Guð hvað hann væri að gera
mér og hann svaraði mér: „Upprisu-
kraftur minn er að verki." Ég vildi að
ég gæti sagt að eftir þetta hafi ég
hlaupið um allt en því miður var það
ekki svo. Ég gekk út veikburða eins og
ég hafði gengið inn. Eitt var þó öðru-
vísi, Guð hafði mætt mér og talað við
mig. Daglega þakkaði ég honum fyrir
að snerta við mér og einnig fyrir kross-
dauða sonar hans. Ég fór að taka dag-
legum framförum og í dag starfar
hjarta mitt eðlilega.
Hvemig útskýra læknar bata þinn?
Tom: Þeir segja að um ósjálfráðan
bata hafi verið að ræða. Einn læknir
hafði sagt að líkumar á bata væm einn
á móti milljón. Hálfu ári síðar heimsótti
ég hann og var þá með sama hjartað og
áður. Hið „ótrúlega" hafði gerst. Einn á
móti milljón eru ekki of litlar líkur íyrir
Drottin.
Waymaker Ministry
Svo stofnuðuð þið Waymaker Ministry,
hvers vegna?
Tom: Markmið okkar er að styðja við
þá sem eru að ganga í gegnum erfið
tímabil. Þegar erfiðleikarnir sækja að er
fólk oft fljótt að kenna Guði um. Ef við
gemm það fáum við óraunsæja mynd af
raunveruleikanum. Jesús vill hjálpa
okkur út þegar öll sund virðast lokuð.
Frægur bandarískur rithöfundur, Max
Lacudo, komst svo að orði: „Það er eitt-
hvað við reynslu annarra sem gefur
okkur kraft. Þegar við sjáum einhvern
sigrast á miklum erfiðleikum, sjáum við
að það er einnig von íyrir okkur." Það er
okkar bæn og ástæðan fyrir því að við
stofnuðum Waymaker Ministries.
Stefna okkar er skýr. Við höfum sagt
Drottni að við munum fara hvert sem
er, hvenær sem er ef hann opnar dyr
fyrir okkur. Engin kirkja, söfnuður eða
samtök eru of lítil eða of stór fyrir okk-
ar aðstoð. Samt erum við bara foreldr-
ar að hjálpa öðrum. Jesús hefur nú
þegar opnað dyr heimsins fyrir okkur,
því við fengum að þjóna í Nígeríu og
Evrópu nýlega.
Hver eru lokaorð þín til hinna sorg-
mæddu?
Tom: Einbeitið ykkur að Jesú. Hann
er skjól ykkar þegar stormar geisa.
Hann mun hjálpa ykkur út þegar öll
sund virðast lokuð.