Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1999, Síða 21

Bjarmi - 01.12.1999, Síða 21
einnig mjög áberandi svo og gleði yfir margbreytileika mismunandi menning- ar. Lífið er fullt af andstæðum og við þurfum ekki endilega að skilja þær eða leysa þær upp. Á komandi árum verður kirkjan að takast á við þessar stefnur og vinna að því að kristin gildi verði aftur almenn- ingseign (public truth). Þó að hún hafi bandamann í póst-módemismanum við að ráðast á forsendur módernismans þarf hún að glíma við þá grundvallar- kenningu hans að enginn algildur sann- leikur sé til. Póstmódernismi haínar til- vem Guðs og að til sé ákveðinn gmnd- völlur í siðferðismálum. Kirkjan þarf að glíma við þetta meðal annars með því að skilgreina Biblíuskilning sinn upp á nýtt. Samuel Escobar, prófessor við Eastern Baptist prestaskólann í Fíla- delfíu í Bandaríkjunum, hélt tvo fyrir- lestra þar sem hann sagði meðal annars að menn ættu ekki að einblína á ein- staka ritningastaði þegar þeir sýndu fram á að kristniboð væri hluti af staríi kristinnar kirkju heldur ættu þeir að sýna fram á að það væri hluti hins mið- læga boðskapar Biblíunnar. Hann sagði enn fremur að kristninni hefði hnignað mjög á Vesturlöndum en hefði verið bjargað af því að hún var flutt út til annarra landa. Þungamiðja hennar er ekki lengur á Vesturlöndum heldur í þriðja heiminum. Þetta mun setja mark sitt á tjáningu hennar á komandi áratugum og fmmkvæði henn- ar mun í auknum mæli koma frá hinum ungu kirkjum. Á okkar tímum hefur markaðshyggjan tekið við sem hið sterka afl í alþjóða- samskiptum eftir að kalda stríðinu lauk. Hún er krafturinn að baki hnatt- væðingar (globalization) samtímans þar sem hinn ríkasti fer með sigur af hólmi. Heimsbyggðin verður í auknum mæli sem eitt þorp þar sem tilhneiging er til að gera alla eins. Kirkjan á að nýta sér þá möguleika sem hnattvæðingin býður upp á, til dæmis bætta samskiptatækni án þess að aðhyllast lögmál hennar, þ.e. að hinn ríkasti eða sterkasti kúgi hina smærri til að verða eins og hann. Hin kristna trú verður að taka á sig búning hverrar menningar og lakast á við sér- tækar spurningar hvers menningar- svæðis án þess að verða að sértrúar- Fulltrúar Indlands. Kristnir menn á Indlandi reka mjög víðtækt kristniboðsstarf í sínu heimalandi, en þar er enn að finna margar þjóðir sem ekki hafa fengið hinn kristna boðskap. hreyfingu. Eining í fjölbreytileika er styrkur kirkjunnar. Kristnir menn á Vesturlöndum munu í auknum mæli þurfa að huga að líferni sínu og lifa lífi sem er frábrugðið tíðar- andanum er mun mótast sífellt meir af öðrum gildum en þeim sem byggjast á orðum Biblíunnar. Þeir munu þurfa að móta menningu byggða á kristnum gild- um sem mun í æ ríkari mæli verða mót- menning (counter culture) við menn- ingu samímans. Margir aðrir fyrirlestrar voru haldnir sem ekki er hægt að geta í stuttri grein. Yfirlýsing í lok ráðstefnunnar undirrituðu þátt- takendur yfirlýsingu sem endurspeglaði margt sem íjallað var um í fyrirlestrun- um. Hér á eftir er aðeins tekið smásýn- ishorn úr henni, endursagt frjálslega. Þar lofa þeir að vinna að eftirfarandi málum: • Að fagnaðarerindið um Jesú Krist, en hann er einstæð opinberun Guðs, verði tjáð með tungumálum og menn- ingarformum allra þjóða heimsins. • Lifa samkvæmt því að fagnaðarerindið hefur boðskap varðandi allar mann- legar þarfir. • Að kristnir menn, bæði einstaklingar og söfnuðir, lifi heilögu lífi og sýni kærleika og réttlæti Jesú Krists svo að þeir verði trúverðugir vottar hins heilaga Guðs. • Leitast við að þola þjáningu í kristni- boðsstarfinu og þjóna kirkjunni þar sem hún líður í heimi þar sem þján- ing og óréttlæti ríkir víða. Þeir heita að skrifa guðfræði píslarvættis byggða á Biblíunni. • Að kristnir menn vinni að réttlæti og velferð allra manna. Kirkjan þarf að vera sér þess meðvitandi að auður getur grafið undan lífi hennar og að fátækt getur eyðilegt hana. • Vinna að því að kirkjur og kristni- boðsfélög á Vesturlöndum og í þriðja heiminum finni leiðir til samstarfs til að halda kristniboðsstarfinu áfram. Að lokum lýstu þátttakendur því yfir að þeir vildu vinna að því að allri heims- byggðinni yrði flutt fagnaðarerindið eins íljótt og auðið yrði. Það var samdóma álit allra að kristniboð framtíðarinnar verði frá öllum heimsálfum til allra heimsálfa. Þetta er auður kirkjunnar. Japani sagði mér að Vesturlandabúar yrðu að vera reiðubúnir að taka á móti kristniboðum frá þriðja heiminum því að kirkjusókn þar væri víða komin nið- ur í 5% en það eru þau mörk sem dreg- in eru á milli þess hvort þjóð hafi verið náð með fagnaðarerindið eða ekki. Fýrr en okkur grunar munum við fá kristni- boða frá fjarlægum löndum sem vilja hjálpa okkur við að ná til samlanda okkar hér á íslandi. Sennilega verður kristniboðsstarf okkar í framtíðinni tví- hliða, þ.e. að senda íslenska kristniboða og taka á móti kristniboðum frá öðrum löndum. íslensk kristni hefur ekki ráð á að vera utan þessa samfélags um kristniboð. Kjartan Jónsson er starfsmaður Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Hann leggur til myndir- nar sem fylgja greininni.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.