Bjarmi - 01.12.1999, Blaðsíða 31
NÍGERÍA
Stærsta kirkja í heimi
vígö
Kirkja sem tekur 50.000 manns var vígð nú í
haust í bænum Ota í nágrenni Lagos í Nígeríu.
Forsvarsmenn kirkjunnar telja að þetta sé stærsta
kirkja í heimi. Hún tilheyrir einum af ört vaxandi
hvítasunnusöfnuðum í landinu. Það tók ár að
byggja kirkjuna og þykir hún tilkomumikil. Ekki
hefur verið geflð upp hvað byggingin kostaði.
NEPAL
Vöxtur kristinna safn-
aða
Kristin trú breiðist nú hratt úr meðal ættbálka í
Nepal. Prajaættbálkurinn telur aðeins um 36
þúsund manns en þar hafa orðið til 15 kristnir söfn-
uðir á undanfömum missemm. Prajaættbálkurinn
.uppgötvaðist fyrir um 50 ámm síðan en hann býr í
skógum Nepal og nýtir ber og rætur sér til matar.
ARGENTÍNA
Mótmælendur vilja
viðurkenningu
Yflr 200 þúsund evangelísk-kristnir menn fóm í
september sl. í mótmælagöngu í Búenos Aíres í j
Argentínu til að leggja áherslu á þá kröfu að yfir-
völd í landinu viðurkenndu allar kirkjudeildir. Nú
er það aðeins rómversk-kaþólska kirkjan sem er
viðurkennd af argentíska ríkinu. Tíu prósent af
íbúum Argentínu em mótmælendatrúar.
ÍSRAEL
Margir innflytjendur
ágúst sl. íluttu 1000 gyðingar til ísraels og
• hafa aldrei fleiri flust til landins á einum
degi. Meiri hlulinn er gyðingar frá Rússlandi sem
ilýja þaðan vegna efnahagsörðugleika og vaxandi
andúðar á gyðingum. Á fyrstu átta mánuðum ársins
hafa 16.000 gyðingar flust frá Rússlandi til ísraels.
EGYPTALAND
Kirkja á ruslahaugum
egja má að kristin kirkja hafl orðið til á einum
af ruslahaugum Kaíróborgar í Egyptalandi. í
fátækrahverfi við Muquattamíjall búa um 30 þús-
und manns. 90% þeirra em kristnir og er það tífalt
hærra hlutfall en almennt í landinu. Nú hefur verið
byggð kirkja á fjallinu alveg við mlsahaug Kaíró-
borgar. Hún tekur 20.000 manns og er stærsta
kirkjan í Mið-Austurlöndum.
TSJETSJENÍA
Nýr kristinn söfnuöur
Mitt í styrjaldarátökum og ofbeldi í Tsjetsjeníu
fær fólk að heyra fagnaðarerindið og tekur á
móti því. Kristniboðsfélagið Norsk Misjon i 0st
greinir frá því að nýr söfnuður hafi orðið til með 35
meðlimum sem hafi nýlega tekið trú. Þetta fólk
hættir í raun lífi sínu og verður að hittast á laun en
er þolinmótt í að breiða út boðskapinn til nágranna
sinna. í Tsjetsjeníu ríkir mikil neyð vegna óflðará-
stands og atvinnuleysis og erfltt er um hjálparstarf.
RÚSSLAND
Rússneskur prestur
gerist múslimi
Vyacheslav Polosin, prestur í rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunni, sem hefur jafnframt gegnt
ábyrgðarstörfum í sovéska og rússneska stjómkerf-
inu, hefur vakið nokkurt uppnám með þvi að ger-
ast múslimi. Hann er íyrsti rétttrúnaðarpresturinn
á seinni tímum sem hefur snúist til islams. Polosin
á sæti á rússneska þinginu, Dúmunni, en hefur
ekki gegnt starfi sóknarprests síðan áríð 1991.
EÞÍÓPÍA
Mekane Yesus í 40 ár
útherska kirkjan í Eþíópíu, Mekane Yesus, var
stofnuð árið 1959 og er því 40 ára á þessu ári.
Við stofnun vom meðlimir milli 20 og 30 þúsund. Á
þeim 40 ámm sem liðin em hefur kirkjan verið sú
sem hefur vaxið hraðast í veröldinni og em meðlim-
ir nú á þriðju milljón. Mikil vakning á sér stað með-
al leikfólks og er eitt af stærstu vandamálum kirkj-
unnar að fá hæfa leiðtoga og presta til að leiða
starfið. Auk þess eru miklir tungumálaerfiðleikar
sem þarf að yfirstíga vegna fjölda ættbálka sem tala
hver sitt tungumál.
NOREGUR
Nýr víetnamskur
baptistasöfnuöur
Nýlega var stofnaður vietnamskur baptistasöfn-
uður í Osló. Þetta er ijórði víetnamski hópurinn
sem verður til innan norsku baptistakirkjunnar. í
Bergen, Kristjánssandi og Stafangri em vietnamskir
hópar tengdir baptistasöfnuðunum þar. í Osló hefur
hins vegar verið ákveðið að stofna sérstakan söfnuð
víetnamskra baptista og sjá hvort það reynist vel. í
hópunum íjómm em um það bil 200 manns en um
10.000 Víetnamar búa nú í Noregi.