Bjarmi - 01.12.1999, Side 37
við þér? Fær Kristur að stjórna lífi
þínu? Fær Kristur að snerta við þér?
Orð og verk manna sem segjast tala í
hans nafni, en taka ekki mið af kær-
leiksboðskap Krists, þau eru ekki boð-
skapur jólanna. Þau eru mannasetning-
ar sem eiga ekkert skylt við þann Guð
sem Jesús Kristur boðar okkur. Látum
því ekki glepjast af mælgi þeirra heldur
höldum okkur fast við HANN sem boðar
sannleika, kærleika, frið og réttlæti.
Oft er sagt að boðskapur jólanna sé
friðarboðskapur. En hvað er átt við með
því? Friður jólanna er friður við Guð.
Jesús sagði: „Frið læt ég yður eftir,
minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður
eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar
skelfist ekki né hræðist" (Jóh. 14:27).
Páll skrifar í Rómverjabréfinu (5:1-2):
„Réttlættir af trú höfum vér þvi frið við
Guð fyrir Drottin vom Jesú Krist. Fyrir
hann höfum vér aðgang að þeirri náð,
sem vér lifum í, og vér fögnum í von um
dýrð Guðs.“ Kristnum manni er veittur
friður við Guð vegna verka Jesú Krists.
Það er friður hans sem okkur er gefinn.
Það er þessi friður sem gefur hina raun-
verulegu sálarró og hjálpar okkur að
finna okkur sjálf í önnum og skarkala
hversdagsins. Friður Krists nær til okk-
ar á sérstakann hátt á jólunum. Leyfum
því friðarboðskapnum að fylla hug okk-
ar og hjarta og bera þá ávexti sem hon-
um er ætlaður.
Boðskapur jólanna er einnig boðskap-
ur sannleikans. Jesús sagði: „Ég er veg-
urinn, sannleikurinn og lífið. Enginn
kemur til föðurins, nema fyrir mig“
(Jóh. 14:6). Kristur er stólpi og gmnd-
völlur sannleikans. Ef einhver vill kynn-
ast sannleikanum þá ber hinum sama
að „baða“ sig í ljósi Krists. Slík sjálf-
skoðun opinberar oftast stóra bresti
þess sem þorir að ganga inn í hana. Svo
furðulegt sem það má nú vera þá leiðir
þessi sjálfskoðun samtímis til sannleik-
ans, til Krists. Þar fær sannleiksleitandi
sál ró. Þar fá brestir og syndir fyrirgefn-
ingu. Enn og aftur undrast maður yfir
jólaboðskapnum, yfir sannleikanum.
Réttlæti og trú er einnig boðskapur
jólanna. Páll postuli skrifar (Róm. 3:21-
25): „En nú hefur réttlæti Guðs, sem
lögmálið og spámennimir vitna um, ver-
ið opinberið án lögmáls. Það er: Réttlæti
Guðs fyrir trú á Jesú Krist öllum þeim
til handa, sem trúa. Hér er enginn
greinarmunur: Allir hafa syndgað og
skortir Guðs dýrð, og þeir réttlætast án
verðskuldunnar af náð hans fyrir end-
urlausnina, sem er í Kristi Jesú. Guð
setti hann fram, að hann með blóði sínu
væri sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig
sýndi Guð réttlæti sitt.“ Kristnum
manni er veitt réttlæti Guðs fyrir trú á
Jesú Krist. Þetta réttlæti er okkur veitt
nú með jólaboðskapnum.
Ég get bara hvatt okkur að taka við
boðskapnum með orðum úr gamalli
húslestrarbók eftir dr. P. Pétursson frá
1856. Þar segir:
„Sannarlega er börnum eiginlegt að
fagna fæðingarhátíð frelsarans; en, eins
og þau fagna hinum fögm ljósum, sem
þá eru kveikt í kirkjum og heimahús-
um, eins taka guðsbörn fagnandi móti
því guðlega ljósi, sem á þessari hátíð
upprann heiminum og af hvers fyllingu
vér allir höfum meðtekið náð á náð
ofan. Og með því að vér nú viljum vera
ljóssins böm, þá látum oss alla í auð-
mýkt hjartans fagna þessu ljósi; látum
þennan fögnuð hafa áhrif á vort hugar-
far, svo að fæðingarhátíð frelsara vors
megi verða oss andleg endurfæðingar-
hátíð, til að endurnýjast í anda vors
hugskots og lifa honum, sem fyrir oss er
dáinn og upp aftur risinn: Þá mun
sannleiki hans orða upplýsa vom skiln-
ing og helga vor hjörtu, og hans kær-
leiki og friður ávalt fylgja oss, svo vér
getum tekið undir með postulanum og
sagt: „ég liii nú ekki framar, heldur lifir
Kristur í mér.“ Látum oss höndla lífið í
Kristi, því lífið í honum er eilíft líf!“
Guð gefi þér gleðileg jól!
Hilmar Baldursson er guðfræðingur og kerfisfræð-
ingur og er búsettur í Gautaborg.