Bjarmi - 01.12.1999, Blaðsíða 38
Vitnisburður móður
Framhald afbls. 27.
mömmu aftur, en það hafði hún ekki
gert svo árum skipti. Þannig fann ég
breytinguna á henni einmitt í hinu
smáa sem samt er svo mikilvægt.
Eldri dóttrin útskrifaðist svo úr há-
skóla og þá hélt Amy ræðu henni til
heiðurs og varð þetta ógleymanlegur
ánægjudagur.
En nótt eina fékk ég þá símhring-
ingu sem allar mæður óttast. Amy
hafði beðið bana í bílslysi. Bíll hennar
hafði lent í árekstri við ilutningabíl og
hann verið svo harður að kviknað
hafði í bíl Amyar. Lík hennar var svo
illa brunnið að það var óþekkjanlegt.
Sorgin var sár en mitt í ólýsanlegri
sorg gat ég huggað mig við það að
Amy var frelsað Guðs barn þar sem
hún hafði tekið á móti Jesú Kristi
sem frelsara sínum. Ég er þakklát
Gídeonmönnum að hafa komið Nýja
testamentinu fyrir við sjúkrabeð Amy-
ar þar sem hún fékk að taka bókina
sér í hönd og lesa hana sér til sálu-
hjálpar. Og í dag get ég sagt að ég eigi
þrjár dætur - ein er flutt að heiman.
ein býr enn í föðurhúsum og ein býr á
himnum hjá Drottni og situr við há-
sæti hans.
Er hér var komið við sögu fann ég
heit tár læðast niður kinnar mínar og
það sama mátti segja um flesta í
salnum. Jafnvel hinir hörðustu karl-
rnenn tóku upp vasaklúta og þurrk-
uðu sér um augun. En ég dáðist að
þessari hugrökku konu sem fékkst til
þess að segja þennan sára vitnisburð
sinn fyrir framan fullan sal af fólki.
Hún fékk afhenta áritaða Biblíu en
það besta var að hún fékk líka hlýtt
faðmlag frá stjórnandanum en hann
hafði einmitt fengið hana til þess að
koma, því hann þekkti hana og sögu
hennar.
Anna Jóhanna Guðnumdsdóttir
Verður heimsendir
árið 2000?
Framhald afbls. 35.
inn getur sagt fyrir um daginn sem
sumarið kemur en vorteiknin segja til
um að það nálgist. Eins er það með
endurkomu Jesú. Við getum séð á
táknunum að hún nálgast en getum
ekki sagt til um dag eða stund.
Þegar þér sjáið allt þetta þá er Jesús
í nánd. Hér á Jesús við að þegar við
sjáum allt þetta sem hann bendir á í
ræðu sinni rætast, þá kemur hann.
Hér er ekki um að ræða bara eitt tákn
sem boðar endurkomu Jesú, heldur öll
táknin.
Jesús hvetur okkur til þess að
nema líkingu af fíkjutrénu. Þegar
greinarnar fara að mýkjast og laufið
að springa út þá vitið þið að sumarið
er í nánd, Matt. 24,32. Þannig er það
líka þegar við sjáum táknin sem nefnd
eru í 24. kaíla Matteusarguðsjalls, þá
má búast við komu Jesú.
Endurkoma Jesú er aðalatburður
síðustu tíma og gefur til kynna að nú
sé endirinn kominn. Það er augljóst að
viðburður eins og þessi hefur ákveðna
tímasetningu hjá Guði. Þetta gerist
ekki bara eins og af tilviljun eða við
einhverja skyndiákvörðun. Ákveðin
skilyrði verða að vera fyrir hendi áður
en dagurinn kemur og þessi skilyrði er
hægt að þekkja á táknunum. En Guð
einn veit um dag og stund.
Dómurinn
Þegar Mannssonurinn kemur mun
hann halda dóm. Niðurlag ræðu Jesú
um síðustu tíma fjallar um dóminn,
Matt. 25,31-44. Ræðan skiptist í þrjá
hluta, frásögn af kringumstæðum, v.
31-33, uppkvaðning dóms yfir rétt-
látum, v. 34-40, uppkvaðning dóms
yfir ranglátum, v. 41-46.
Dómarinn er Jesús (Jóh. 5,26-27).
Með honum eru allir englar og hann
situr sjálfur í dýrðarsæti, v. 31. í rétt-
arsalnum eru allar þjóðir, v. 32.
Griska orðið sem hér er notað um dóm
þýðir að aðskilja. Þetta kemur vel fram
í myndræna textanum í v. 32.
Fýrst er réttað í máli þeirra sem var
skipað að sitja til hægri handar við
dómarasætið. Þeir hljóta blesssun og
Guðs ríki í arf, v. 34. Guðs ríki var
ætlað þeim frá upphafi. Það er staður-
inn sem er íyrirbúinn þeim sem láta
frelsast. Guðs ríki eignast enginn
vegna góðra verka. Það er vegna sam-
bandsins við frelsarann að þeir hljóta
Guðs ríki í arf. Jesús nefnir þetta þeg-
ar í upphafi til þess að enginn misskilji
framhald ræðu hans á þann veg að
það sé vegna góðra verka að menn
frelsist, v. 35-36. Verkin eru ávöxtur
samfélagsins við Jesú.
Þeir sem voru vinstra megin hásæt-
isins hlutu bölvun í stað blessunar
og eru sendir í hinn eilífa eld í stað
Guðs ríkis. Hinn eilífi eldur er sama
og helvíti. Takið eftir að helvíti er ekki
staðurinn þar sem djöfullinn og árar
hans drottna eins og margir álíta
heldur þar sem honum og árum hans
er refsað, Op. 20,10. Dómur hinna
ranglátu byggir á sömu forsendum og
dómurinn yfir hinum réttlátu, nema
þeir gerðu ekki það sem þeir hefðu
átt að gera.
Jesús lýkur ræðu sinni um síðustu
tíma með því að segja: „Og þeir munu
fara til eilífrar refsingar, en hinir rétt-
látu til eilífs lífs", Matt. 25,46. Þannig
staðfestir Jesús að það eru aðeins tveir
möguleikar, tvenns konar dómsupp-
kvaðning. Við þá sem eru í hópnum
hægra megin segir hann: Komið, við þá
til vinstri: Farið. Þeir til hægri höfðu
áður komið til Jesú en þeir til vinstri
höfðu ákveðið að fara frá honum. Nú
hljóta þeir það hlutskipti sem þeir
völdu sér.
Um að vera viðbúinn
Allir sem halda fast við Guðs orð og
lifa með Jesú þegar hann kemur
munu verða hólpnir, Matt. 24,13 og
35. Það eina sem stenst í dóminum er
það sem Guð hefur sagt. Sá sem
byggir á því og lifir í þvi getur því ver-
ið öruggur um að verða með þegar
Jesús kallar menn til sinnar eilifu
dýrðar. Hvatning Jesú til lærisvein-
anna er því að vera stöðugt á verði og
gæta þess að þeir lifi samkvæmt orði
Guðs, Matt. 24, 42-51.
Skúli Svavarsson er kristniboði og fram-
kvæmdastjóri SÍK.