Heima er bezt - 01.04.1954, Page 2
98
Heima er bezt
Nr. 4
Þ jóðlegt
h e i m i I i s r i t
-------------------------------------------------------------------
HEIMA ER BEZT • Heimilisblað með myndum Kemur út mánaðar-
leg:a • Áskriftag:jald kr. 67.00 • Útg:efandi: Bókaútg:áfan Norðri •
Ábyrg:ðarmaður: Albert J. Finnbogason • Ritstjóri: Jón Björnsson •
Heimilisfang: blaðsins: Pósthólf 101 Reykjarík • Prentsm. Edda h.f.
Efnisyfirlit
Bls. 99
— 105
— 107
— 111
— 112
— 114
— 115
— 117
— 121
— 122
ísinn brast og Kúðafljót gleypti menn
og hesta.
Björn Pálsson.
Bátamið Bolungarvíkur.
Jón Marteinsson.
Ábúendur í Grímstungu.
Þorsteinn KonrÁðsson.
Dóttir hjarðmannsins.
WlLLIAM SAROGAN.
Villigeitur í Noregi’.
Amma.
SVEND AAGE NlELSEN.
Baldvin skáldi.
Kristmundur Bjarnason.
Úr endurminningum Magnúsar læknis
Hjaltasonar.
Kristmundur Bjarnason.
Flensborgarskóli 50 ára.
Fjallabúar, framhaldssaga
EFTIR KRISTIAN KrISTÍANSEN.
Myndasagan, Óli segir sjálfur frá, o. fl.
......■iiiiiiiiiiiiiiiiii.................................................................................................
Stafafell í Lóni og briíin á Jökulsá
stólpa, sem stóð rétt hjá bænum og menn höfðu
mikinn átrúnað á í þann tíð, og hafa jafnvel fram
til þessa dags, sumstaðar. Ennfremur lokaði hún
uppgönguauga í læknum, sem fellur rétt hjá bæn-
um, en áður átti hann að hafa verið fullur af sil-
ungi. Af helgistaf þessum, eða stöfum, mun bæj-
arheitið dregið, og þar síðar hafa verið helgistað-
ur = kirkjustaður. En ekki er þar kirkju getið fyrr
en um 1200 í kirkjustjórn Páls biskups. Og víst er
þar kirkja 1201, því að þá syngur Guðmundur
biskup þar messu 24. ág. um sumarið.
Alla tíð síðan sátu prestar á Stafafelli, og síð-
asti prestur þar var Jón Jónsson, hinn fróði, d. 1920.
Hann lét eftir sig mikil og merk ritstörf á sviði
sögurannsókna. Eitt helzta rit hans er Víkingasaga,
sem Bókmenntafélagið gaf út, og náði miklum vin-
sældum. Skáldmæltur var hann og vel, og birtust
mörg af kvæðum hans í Minningarriti, er sýslung-
ar hans gáfu út að honum látnum.
Myndin er tekin yfir bæjarhúsin frá austri til
vesturs, og sést til næsta bæjar, Brekku, en
skammt þar frá er hin nýja stórbrú yfir Jökulsá
í Lóni, og fyrirstöðugarður vestur á sandinn, er
stefnir á bæinn Þórólfsdal, sem er í hvarfi við lág-
an höfða. Þar er Dalsfjall og Hvammsheiði næsta
fjallið á myndinni.
Myndin á forsíðunni er af brúnni á Jökulsá í
Lóni, sem er mikið mannvirki. Sveitin var mjög
afskekkt áður en brúin kom, enda er Jökulsá hið
mesta foraðsvatn. Vantar ekki annað en brú á
Hornafjarðarfljót, svo að öll sýslan komist í vega-
samband við Austurlandið. Brúin er ein hin mesta
hér á landi, 247 m. að lengd og hvílir á 16 stein-
steyptum stöplum.
Myndin hér á síðunni er af
Stafafelli í Lóni í Austur-Skafta-
fellssýslu. Lónið er austasta sveit-
in í sýslunni. Stafafell er þekktur
staður allt frá Landnámstíð, þótt
ekki sé vitað með vissu, hver þar
tók sér bólfestu fyrstur manna.
Þegar Þangbrandur kristniboði
kom á þessar slóðir, bjó sá maður
á Stafafelli er Þorkell hét. Var
bóndi mjög öndverður gegn
kristniboðinu. Þangbrandur bauð
honum til einvígis, svo að séð yrði,
hvor guðinn betur mætti, Kristur
eða Þór. Þorkell bóndi féll í einvíg-
inu, en því miður er haugur hans
gleymdur.
í Ferðabók Sveins læknis Páls-
sonar segir svo:
„í heiðnum sið bjó völva að
Stafafelli, en varð síðan að hrökkl-
ast þaðan undan kristnum mönn-
um. Tók hún hefnd á þeim fyrir
hrakning sinn, með því að eyði-
leggja svonefndan staf eða