Heima er bezt - 01.04.1954, Síða 19

Heima er bezt - 01.04.1954, Síða 19
Nr. 4 Heima er bezt 115 Kristmundur Bjarnason: Lítið eitt frá Baldvini Halldórssyni, skálda í I. árg. Heima er bezt, sept- emberblaðinu, eru birtar nokkr- ar vísur eftir Baldvin Halldórs- son, skálda, eins og hann oft var nefndur, og lítið eitt sagt frá manninum. — Heimildir fyrir þeim vísum og kvæðum, sem hér fara á eftir, eru margar. Margar vísurnar hafa mér borizt frá kunnfólki hans vestra, aðrar frá mönnum hér heima, og hefur Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum lagt mér mest til. Nú er það hér sem oft vill verða, að heimildum ber ekki saman um, hvernig höf- undur hafi vísu kveðið, en ekki hef ég hirt um að gera slíkan samanburð, þótt hægt hefði verið. Einnig mun mega deila um sumar þær vísur, sem hér eru skráðar, hvort þær séu í raun og veru eftir Baldvin, en ég tel mig hafa allgóðar heimildir fyr- ir, að þær séu það. Baldvin Halldórsson var Skag- firðingur að ætt. Faðir hans var Halldór Halldórsson, er um eitt skeið átti heima í Hamarsgerði í Lýtingsstaðahreppi. Baldvin var, er hann komst til fullorðins ára, löngum í vinnu- og lausa- mennsku í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, en flutt- ist síðar vestur um haf og kvænt- ist þar. Bóndi var hann að Fagraskógi við íslendingafljót, og mun ekki alltaf hafa átt sjö dagana sæla. — Baldvin var hestamaður góður og dýravinur mikill, og mun hann hafa feng- izt nokkuð við dýralækningar vestra og meðal annars vananir á hestum. En svo segir hann í ljóðabréfi, er hann orti í gamni til kunningja síns, eftir að hann hefur borið honum á brýn, að sögur miklar gangi um kvenhylli hans og nefnir nöfn í því sam- bandi: Sögur frá Gimli og Selkirk líka, sem að ég þori ekki að flíka — það verður hver að sjá um sig. — Líttu nú eftir ljóðum mínum: Lögreglan er á hælum þínum! Þú verður að fara að vara þig. Síðar kemur þetta erindi: Alls konar þrautir að mér flana. Ekki sé ég nú til að vana. Því er ég líka hættur hreint. Þeir komu til mín þarna um dag- inn, þegar að ekkjan flýði bæinn, — en þá var það orðið allt of seint. Baldvin lézt 18. september 1934 71 árs að aldri, eftir því sem segir i Almanaki Þjóðræknisfé- lags íslendinga í Vesturheimi. Baldvin var lengi vinnu- og lausamaður hjá Brynjólfi Bjarna syni í Þverárdal í Húnavatns- sýslu, og eru nokkrar vísur, sem hann orti þar, tilfærðar í áður- nefndu blaði af Heima er best. Hér er viðbót. Baldvin var spurð- ur, hvort hann ætti ekki oft heimangengt, en hann svaraði: Heima róla ég þreyttur þrátt Þverárdals í greni. Reynsluskóla gegnum gátt glampi sólar lýsir smátt. Einu sinni voru þeir Brynjólf- ur bóndi og Baldvin að halda kú, og bað Brynjólfur hann að kveða nú væna kvígu í kúna. Þá orti Baldvin: Óska ég fáir fædda þú í fjós á réttum tíma, auðnuháa, er auðgi bú alsægráa fjórðungskú. Fylgir það sögunni, að þetta hafi eftir gengið, enda gerðist þetta á þeim tíma, sem trú á kraftaskáld var ekki með öllu útdauð! Brynjólfur í Þverárdal var mesti þrifamaður til allra verka. Eitt sinn var það, er Baldvin var að slá bæjarhólinn, að Brynjólf- ur kemur að og kvartar undan, að illa sé slegið og er þungorður nokkuð. Baldvin svaraði með þessari vísu: Úttekt verður ekki prúð, álag heimtar maður. Hóllinn missir skart og skrúð, skorinn, grænlappaður. Baldvin eignaðist dóttur með stúlku, sem var í Þverárdal. Ekki gat Baldvin alið önn fyrir barn- inu, og var því komið fyrir ann- ars staðar. Eitt sinn heimsótti Baldvin dóttur sína, sem þá var enn í vöggu. Hjalaði barnið og brosti við honum. Segir þá Bald- vin: Skýrleikssólar sjá má vottinn, sem hér bólar á, samt úr ólánsakri sprottin ertu, fjólan smá. Þessi dóttir Baldvins, — Stef- anía heitir hún — fór til Vest- urheims og er enn á lífi þar. Jónas Jónasson bóndi í Torf- mýri í Skagafirði var snjall hag- yrðingur. Þeir voru vinir miklir Jónas og Baldvin Halldórsson og drukku oft saman, en Baldvin þótti ölkær, a. m. k. framan af ævi. Oft var það, er Baldvin fór um Skagafjörð, að vínhneigðir menn og gjarna hagorðir slóg- ust í fylgd með honum, og oft var hópurinn orðinn nokkuð stór, er riðið var í hlaðið hjá einhverjum hagyrðingnum. — Eitt sinn var það sem oftar, að Baldvin hafði setið að hófi hjá Jónasi, en hverfur heim um kvöld í svarta myrkri, mikið drukkinn. Fylgir Jónas Baldvini út á hlaðið, kveður hann, en Baldvin heldur af stað út í myrkrið. Kallar Jónas þá á eftir honum: Varaðu þig nú, vinur minn, víða er óslétt gata. Heyrist þá gella í Baldvini úti í myrkrinu: Skárri er það nú skynsemin! Skyldi ég ekki rata. Þessi snjalla vísa, sem hér fer á eftir, hefur bæði verið eignuð Jónasi og Baldvini. Dóttir Bald- vins, Sigrún, er býr vestra, eign- ar föður sínum hana, en aðrir, þeirra á meðal Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum, eigna hana Jón- asi. En vísan er á þessa leið:

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.