Heima er bezt - 01.04.1960, Page 7

Heima er bezt - 01.04.1960, Page 7
Jafnframt búskapnum tók síra Sigurður virkan þátt í félagsmálum sveitar sinnar. Kann ég ekki að rekja þau störf, sem hann hefur þar farið með, en lengi hefur hann setið í skólanefnd, og um alllangt skeið í sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu. Hefur hann hvarvetna látið til sín taka um framfara- og menningarmál sveitarinnar. Af því, sem nú er sagt, má sjá, að síra Sigurður hefur haft nóg að starfa, að vísu var embættið ekki örðugt fyrstu árin, meðan hann einungis þjónaði Möðruvöllum og Glæsibæ. En árið 1941 var Bægisárprestakall lagt til Möðruvalla, og jukust þá mjög embættisstörf hans. I félagsmálum prestastéttarinnar hefur síra Sigurður tekið virkan þátt. Um langt skeið hefur hann setið í stjórn Prestafélagsins í Hólastifti, og er nú formaður þess. Prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi var hann skipaður frá 1. nóv. 1953. Var því oft til hans hugsað um forystu í málum kirkjunnar. Vígslubiskup í Hóla- biskupsdæmi var hann kjörinn síðastl. sumar og vígður, sem fyrr segir, 30. ágúst. Sýnir það traust það, senr klerkastéttin hefur á honum, enda er hann þegar revnd- ur í þeinr störfum. Nokkuð hefur síra Sigurður fengizt við ritstörf, en rninna þó en mátt hefði vænta, því að þegar á skólaár- um sínum var hann talinn meðal hinna ritfærustu í hópi skólabræðra sinna, og voru þar þó margir snjallir. En embættisstörf og búskaparannir munu hafa valdið því, að hann hefur rninna sinnt ritstörfum en hugur hans r O stoð til. Ymislegt hefur hann þó skrifað í kirkjuleg rit, og nær fullbúið mun vera frá hans hendi rit um síra Jón Þorláksson á Bægisá. Hafa kaflar úr því, sem hann hef- ur flutt í útvarp, vakið almenna athygli fyrir fágaðan stíl og næman skilning á söguhetjunni. Síra Sigurður er hvarvetna aufúsugestur á mannamót- um. Hann er fríður sýnum, gleðimaður á góðri stund, snjall ræðumaður og söngmaður góður og ætíð fús til að leggja sinn skerf til hófsamlegrar gleði. En hann er ekki síður góður gestur þar senr sorg ber að höndum, því að með hjartahlýju sinni, skilningi og trú, kann hann að flvtja Ijós í rnyrkur sorgarinnar, og sefa sársaukann. Stundum gerast merkilegar hendingar eða endurtekn- ingar í viðburðum sögunnar. Fyrir urn 170 árum var Sigurður Stefánsson, sem áður hafði verið prestur að Möðruvöllum, vígður biskup til Hóla. Örlögin höguðu því svo, að hann varð síðastur biskup á hinum forn- helga stað. Nú hefur alnafni hans og einnig Möðru- vallaklerkur Verið vígður til Hólastóls. Mikil umræða er nú urn, að endurreisa hina fornu biskupsstóla. Og fagna mundu því þeir, er bezt þekkja síra Sigurð Stef- ánsson, að hann mætti fyrstur setjast í sæti alnafna síns með fullt biskupsvald yfir Hólastifti. Munu margir taka undir orð Friðjóns Skarphéðinssonar þáverandi kirkjumálaráðherra, við biskupsvígsluna að Hólum: „að valizt hafi í vandasamt virðingarstarf maður, sem krist- inni kirkju er mikill ávinningur að til þess skyldi veljast“. Mundi shkt þó enn betur á sannast, ef um fullkomið biskupsstarf væri að ræða. Kirkjan á í vök að verjast á ýmsa lund. Ekkert er henni vænlegra til aukinna áhrifa en að til forystu henn- ar veljist bjartsýnir og frjálslyndir trúmenn, sem laða til sín fólkið ekki einungis með þeim boðskap er þeir flytja heldur einnig með persónu sinni. Einn þeirra manna er síra Sigurður Stefánsson, og því eru miklar vonir við hann tengdar í hinu nýja starfi. Það eru nú bráðum 40 ár síðan fundum okkar síra Sigurðar bar fyrst saman í skóla. Hann var þá þegar einn þeirra manna, sem okkur skólabræðrum hans þótti gott að vera með sakir gleðinnar, sem fylgdi honum og hlýjunnar, sem frá honum stafaði. Og engu hafa árin breytt um það viðhorf. Birtan og hlýjan eru alltaf föru- nautar hans, og hann skilur ætíð eitthvað eftir af þeim, hvar sem hann kemur eða dvelst. Frá biskupsvigslunni á Hólum. Skrúðganga kennimanna. Heiina er bezt 115

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.