Heima er bezt - 01.05.1960, Side 20

Heima er bezt - 01.05.1960, Side 20
ÞATTUR ÆSKUNNAR RiTSTJÓBí Frá Austfjörá iiiiii Fyrri hluti. Iverjir af lesendum þessa þáttar treysta sér til að nefna alla flóa, firði og víkur á Austurlandi reiprennandi utanbókar? Ég hef kennt landa- fræði um aldarfjórðungsskeið, bæði börnum og unglingum, og ætíð voru Austfirðirnir erfiðastir við- fangs. Að læra um Vestfirði virtist miklu auðveldara. Þetta var mín kennarareynsla. En minnisstæðust er mér mín eigin reynsla af Austfjörðum, er ég í fyrsta sinn átti að læra um þetta hérað í landafræði Karls Finn- bogasonar. Ég var þá nemandi í yngri deild lýðskólans á Hvítárbakka og hafði aldrei áður lært neitt í landa- fræði og aldrei áður í neinn skóla komið. Ég hafði verið í skólanum í þrjár til fjórar vikur, setið í tímum í landafræði en aldrei „komið upp“, sem svo er kallað. Ég hafði lesið undir tímann kaflann, sem okkur var sett fyrir að lesa, en ekki haft vit á að glöggva mig neitt á kortinu. Þá var það eina morgunstund, að ég skyldi tekinn upp í landafræði. Átti ég að byrja á því að telja upp helztu firði á Austurlandi. í þeim skóla var það föst venja, að sá, sem spurður var, skyldi standa upp úr sæti sínu, en ekki var gengið upp að kennara- borðinu. Ég stóð upp, en gat engu orði upp komið og mundi ekki neitt. Allt í kringum mig sátu nemendurnir, skólasystkini mín, og mörg þeirra með opna landafræð- ina fyrir framan sig. Allt í kringum mig var hvíslað: „Vopnafjörður, Héraðsflói, Vopnafjörður, Héraðsflói,“ o. s. frv. Þetta var endurtekið upp aftur og aftur, en ég þagði. Ég steinþagði, og blóðið þaut fram í kinnar mér, en ég gat ekki áttað mig á neinu. Loks lét kennarinn mig setjast niður, án þess að ég hefði svarað einu einasta orði. Man ég aldrei eftir slíkri niðurlægingu í kennslu- stund, hvorki fyrr né síðar. Eftir þetta hafði ég ætíð nokkurn beyg af Austfjörðum. Ég held þó, að ég hafi lagt í þá raun að læra nöfnin á fjörðunum utanbókar, því að ég vildi ekki verða mér til slíkrar skammar aftur. En þótt firðir á Austfjörðum væru erfiðir, þá var því auðveldara að læra um eyjar við Austurland. í landa- fræði Karls Finnbogasonar segir eitthvað á þessa leið um eyjarnar: „Eyjar eru fáar við Austurland. Helztar eru: Skrúður út af Fáskrúðsfirði, óbyggð, og Papey, út af Berufirði, byggð.“ En árin liðu. Um meira en tvo áratugi kenndi ég landafræði um ísland og önnur lönd, og loks kom að því, að ég ferðaðist um fimm ára skeið um allar byggðir Austurlands, um strendur, annes, dali og heiðar. Éf ég væri nú „uppi“ hjá landafræðikennara, þá myndi varla standa í mér að telja upp firðina á Austurlandi. Sjón er sögu ríkari, og enginn gleymir nafni á firði, sem hann hefur gengið í kringum eða farið yfir í misjöfnu veðri. Á þeim árum, sem ég fór um Austfirði, kom ég í alla byggða firði og víkur nema Brúnavík og Húsavík. Ég ætla þó ekki í þessum þætti að fræða ykkur um firðina, þótt saga þeirra sé merkileg, en í þess stað ætla ég að segja ykkur frá eyjunum og ýmsum sögnum, sem við þær eru tengdar. Seint í október haustið 1951 kom ég að Kolfreyju- stað við Fáskrúðsfjörð. Ég kom yfir fjörðinn frá Hafn-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.