Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 5
Hermann með skíðasveit frá M. A. á íslandsmóti 1942.
ur mun sterkur persónuleiki og athafnasemi Buchs
hafði orkað á nemendur, „sem fundu þróttinn í sjálfum
sér“.
Þar á Ollerup og í Statens Gymnastik Institut í
Kaupmannahöfn dvaldist Hermann til 1929 og lauk þá
iþróttakennaraprófi. En söngurinn átti sífellt mikil
itök í huga hans og stundaði hann jafnframt snöngnám
hjá Paul Redin óperusöngvara. Um eitt skeið var nærri
komið að því, að hann hyrfi að söngnáminu með öllu.
Þegar eftir heimkomu sína til Akureyrar 1929 hóf
Hermann íþróttakennslu; fyrstu árin sem stundakenn-
ari í Menntaskólanum og gagnfræðaskólanum. En síðan
1932 hefur hann verið fastur íþróttakennari Mennta-
skólans og kennt einn allar piltaíþróttir í skólanum til
þessa dags, svo að þeir eru nú orðnir býsna margir nem-
endurnir, sem hann hefur teygt úr og þjálfað. En jafn-
framt skóLakennslunni kenndi hann í íþróttafélögum og
ýmsum námskeiðum fyrstu árin.
Tvær námsferðir fór hann utanlands á næstu árum.
Fyrst til Kaupmannahafnar og á Olympíuleikana í
Berlín 1936 og síðan til skíðanáms í Noregi 1938. Lagði
hann þar einkurn stund á svig, og mun hann síðan vera
brautryðjandi þeirrar íþróttagreinar hér á landi, en
svig var áður lítt kunnugt hér. Var svo um langt skeið,
að nemendur Hermanns voru fremstir svigmanna lands-
ins, og einkum hafa þeir löngum þótt bera af um stíl-
fegurð. En þar er raunar einn meginþáttur í allri
íþróttakennslu Hermanns, að hann leggur meira kapp
á að innræta nemendum fagran leik og limaburð, en að
keppa að metum. Endurspeglast þar að nokkru skap-
höfn hans sjálfs, þótt kappsmaður sé að vísu, að meta
þó ætíð mest drengilegan leik og fagran.
Annars hefur Hermann komið mjög við sögu skíða-
íþróttarinnar hér á landi. Hann gekkst fyrir stofnun
Skíðaráðs Akureyrar og var formaður þess lengi. For-
maður Skíðasambands íslands var hann um skeið og
lengi í stjórn þess. Hefur hann haft forystu um all-
mörg landsmót skíðamanna og verið dómari og farizt
það hvívetna vel úr hendi, enda hlíft sér lítt við erfiði
og umstangi.
Heimili Þórhildar og Hermanns á Akureyri.
Árið 1948, er til þess kom að senda keppendur á
Vetrarolympíuleikana í Skt. Moritz, var Hermann ráð-
inn þjálfari þeirra og fararstjóri. Aftur var hann farar-
stjóri skíðamanna á Vetrarolympíuleikana í Squaw
Valley í Californiu 1960. Gengu þær ferðir báðar
snurðulaust.
Þá hefur Hermann verið einn af fyrstu íslenzku kenn-
urunum í handknattleik. Kenndi hann leik þann á nám-
skeiðum víða norðanlands. En sú íþrótt hefur sem
kunnugt er náð miklum vinsældum og útbreiðslu.
í Menntaskólanum á Akureyri hóf Hermann róðrar-
kennslu þegar um 1930, og hefur það haldizt síðan. En
minni útbreiðslu hefur sú ágæta íþrótt náð í skólum og
landinu yfirleitt en æskilegt hefði verið.
Þegar sundhöll Akureyrar var opnuð 1956, tók Her-
mann að sér forstöðu hennar, að beiðni bæjarráðs. Átti
það að vísu að vera bráðabirgðarráðstöfun, en varð
fast starf. Hefur hann rekið sundhöllina með einstakri
hagsýni og sparað við það stórfé í rekstri hennar.
En eins og líkum lætur hefur meginstarf Hermanns
verið í Menntaskólanum. Auk hinnar beinu kennslu,
liefur hann verið óþreytandi og ötull félagi og leiðbein-
andi nemenda, bæði um íþróttir, útilíf, söngmennt og
ferðalög. Og þar að auki tók hann um skeið mikinn
þátt í sjónleikjastarfsemi skólans. Engum hygg ég rangt
gert til, þótt fullyrt sé, að enginn samkennara hans um
þrjá áratugi hafi lagt á sig jafnmarga snúninga eða var-
ið jafnmiklum tíma í þágu nemenda utan kennslustunda
og Hermann. Kann hann þá list flestum fremur að vera
í senn félagi og kennari nemenda sinna. í Utgarði,
skíðaskála skólans, dvelst Hermann langdvölum með
nemendum á vetri hverjum, oft við einhæfan og þröng-
an kost. Kennir hann jöfnum höndum skíðaferðir á
daginn og er hrókur alls fagnaðar á kvöldvökum, þeg-
Heima er bezt 113