Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 13
ÞORSTEINN JONSSON, KAUPFELAGSSTJORI: Feré í Víðidal eystri og til Lóns (Niðurlag) Fórum við nú nokkurn spöl til baka og héldum, að ef hægt væri að komast upp í skriðuna í þeirri hæð sem kletturinn var mundi okkur takast að leggja slóð í hana. Tóku þeir Friðrik nú duglegan hest og reyndu að koma honum upp í skriðuna. Komst hann nokkurn spöl upp, en þá sveik allt undan fótum hans og hann rann ofan aftur. Svo þessi tilraun bilaði. Þá var reynt með litla, gráa hryssu, sem Friðrik á,” fjarska harð- fríska og fótlipra og kjarkgóða. Hún krafsaði sig upp, þó hún færi mest á hnjánum. Þegar hún var komin hæfilega langt upp gekk sæmilega eftir skriðunni og þannig kom slóð alveg út á klett. Komu þeir nú til baka. Þarna var dimmt af nóttu, þoka og rigning, svo lítið sást. Nú var reynt aftur með léttustu hestana og slóðin batnaði og virtist þetta ætla að ganga vel. Lengd skriðunnar frá þeim stað, er við lögðum í hana, hefur verið um það bil 150 metrar, yfir á klettinn. Vorum við nú farnir að reka hestana. Hestur sá, er ég hafði lagt hnakk minn á, þegar við komum ofan á eyrina var gæðingur, sem ég notaði, þar sem beztur var vegur og hélt ég að þegar við værum komnir yfir þennan mikla Múla, að þá væri aðeins skeiðsprettur eftir. En sá galli er á þessum hesti að hann er svo hjartveikur og fæl- inn, að hann má ekkert sjá og ekkert annarlegt má fyr- ir honum verða, svo hann kippist ekki við eða hann stökkvi upp. Nú rann hann til í slóðinni með hnakk og beizli upp á makkann. Þegar komið var rétt norður undir klettinn hefur sennilega steinn oltið ofan í slóð- ina. Hesturinn kipptist við, lenti út fyrir slóðina og rann niður skriðuna og niður að á eða niður í á. Við Kjarr i Kollumúla. sáum það ekki í myrkrinu. Flann bara hvarf og við gátum ekki farið á eftir honum, því við áttum nóg með að halda okkur í slóðinni. Mér varð það að orði, að vont væri að missa hestinn, en verra þætti mér að missa reiðtygin, því nógir væru hestarnir en enginn auka- hnakkur. En það var ekki allt búið enn. Tveir hestar mínir voru þungir og feitir og annar þeirra, hinn vitri Skjóni minn, höfðu sig ekki upp á móti brekkunni upp í slóðina, en runnu alltaf til baka. Voru nú allir hestar komnir yfir á klettinn, nema þessir tveir og sá sem hrapaði. Nú fór ég yfir á klettinn, þó erfitt væri að festa fót í slóðinni í þessum mikla bratta, því það mátti heita, að skriðan stæði beint upp. En það gekk samt sæmilega, þó ég hafi sennilega verið hálf-hræddur. Taldi ég sjálfsagt að láta hestana eiga sig. Annar hestur- inn var með tösku og dót okkar. Var slæmt að vera án þess, en óhugsandi að bera það yfir skriðuna. Þeir Her- mann og Friðrik, sem hafði alla stjórn, sögðu mér að vera hjá hestunum á klettinum, sem ég og gerði. Hinum megin var álíka brött skriða, en þar var undan að halda, en samt tvísýnt, hvernig það gengi, því áin beljaði þeim megin við ldettinn. Þorði ég ekki annað en að halda í Jeljagrím, því ég bjóst við að annars myndi hann slá einhvern hestinn fram af klettinum, og sem hann hefði eflaust notað tímann til, ef honum hefði gefizt færi. Því augnaráð hans var eins og Gláms í þok- unni, enda lá illa á honum. Beið ég nú nokkuð lengi þarna, meðan þeir voru að reyna að koma hestunum tveim yfir, sem ég taldi vonlítið að tækist. Ég hafði nóg að gera, því þó ég héldi í Jeljagrím, reyndi hann alltaf að slá einhvern hinna hestanna, því þröngt var á klettinum. Þolinmæði og þrautseigja vinnur á flestum erfiðleikum, og svo var einnig í þetta sinn. Komu þeir nú með báða hestana og var síðan farið að athuga skriðuna hinuni megin við ldettinn og tók það nokk- urn tíma. En þegar við vorum að leggja af stað af klettinum, kom hestur minn með hnakk og beizli og var allt í bezta lagi. Hafði hann hrapað ofan alla skrið- una og niður í á, en komizt til baka og á slóð okkar og gekk þá allt vel. Næsta skriða var vond, en allt gekk samt sæmilega eftir það í sæluhúsið, sem var stutt leið. Höfðum við þá verið 14 tíma á ferð, mest alla leið á grjóti og vegleysu í sudda og rigningu. Voru hest- arnir orðnir slæptir, en fengu þarna ljómandi haga. Fórum við nú í sæluhúsið, opnuðum þar útidyrahurð og komum þá inn í forstofu. Gengið var úr henni inn í eldhús til vinstri handar, en til hægri inn í svefnher- Heima er bezt 121

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.