Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.04.1961, Blaðsíða 24
Ég lagðist niður hjá skyttunni, og nú mátti ekki tala nema í hálfum hljóðum. Við hnepptum vel að okkur yztu flíkunum og bjuggum okkur sem bezt undir hina löngu, köldu nótt. Ekki mátti hreyfa sig, þótt kuldinn sækti á mann, — og ekki leggjast alveg út af. Við urð- um að hálfsitja uppi og horfa út í hraunið. Enginn gat vitað úr hvaða átt dýrin kæmu, en þó var jafnan talið líklegra, að þau kæmu undir vind, sem svo var kallað. — Þau kæmu þannig að greninu, að þau hefðu vindinn á móti sér, því að yfirleitt treysta refir meira á þef- næmi en sjón. Kvöldið var óskaplega lengi að líða. Eftir klukkan átta hreyfðum við okkur ekkert. Sólin lækkaði á lofti og stöðugt kólnaði. Undir lágnættið var reglulega nap- urt. Yrðlingurinn var svangur og alltaf að smá-ýla. Elvergi sást kind og síðast heyrðist hvergi í fugli. Við beittum bæði sjón og heyrn sem bezt við gátum, en urð- um einskis varir. Leið svo fram yfir miðnættið. Golan var nöpur og nóttin skuggsýn. Allt í einu kipptist skytt- an við og þreif byssuna, sem lá hlaðin við hlið hennar. Yrðlingurinn vældi hærra en áður, og beint framundan okkur kom læðan skokkandi og stefndi á grenið. — En hún fékk „varmaru móttökur. Skotið hitti hana framan á bóginn. Hún reis upp til hálfs, eins og hún ætlaði að sendast til baka, en valt þá um dauðskotin ofan í lyng- ið hreyfði hvorki legg né lið. Vafalaust hefur dýrið heyrt vælið í yrðlingnum og hlaupið á hljóðið. Éf til viíl hefur Iíka kápan á hríf- unni.blekkt dýrið, og þess vegna hefur það ganað svona óhikað beint í dauðann. Þarna var læðan unnin, en nú var steggurinn eftir. — Enn lágum við nokkra stund grafkyrrir og loks fór að daga. Ylgeislar sólarinnar vermdu okkur. Við teygð- um úr okkur og okkur hlýnaði í hamsi. Nú var ltom- ið logn. Sjórinn var spegilsléttur. Fuglar sungu. Radd- ir vorsins fögnuðu hinni vermandi sól. Skyttan taldi að nú þyrftum við ekki að fara mjög varlega. Refurinn myndi ekki láta sjá sig, þegar sól væri komin hátt á loft. Við tókum upp nestið og átum brauð og harðfisk með smjöri og drukkum kalda mjólkina með. Um kl. 8 um morguninn var orðið heitt í veðri og forum við þá að tína utan af okkur yztu flíkurnar. Aumingja yrðlingurinn vældi sárt af sulti. Skyttan sagði að ekki mætti svelta hann svona lengur. ETann gæti vel gert gagn næstu nótt, með því að lokka ref- inn að greninu. — „Við verðum að ráða fram úr þessu,“ sagði félagi minn. „Taktu aðra byssuna, sem þarna ligg- ur og skjóttu fugla til matar fyrir yrðlinginn.“ Hann sagðist ætla að fá sér blund á meðan, því að aldrei hafði hann þorað að loka augunum alla nóttina. Ég lagði svo upp í veiðiförina. í fyrstu var ég hálf stirður til gangs, en liðkaðist brátt. En hvaða fugl átti ég nú að skjóta? Það hafði félagi minn ekkert sagt um. Hann hafði aðeins sagt, að ég yrði að skjóta eitthvað handa yrðlingnum að éta. Alltaf hlýnaði í lofti og ilmur skógarins barst að vit- um mér. Vorilmur í hrauni er unaðslegur og hressandi. Ég rölti víða um flatt hraunið, en rakst ekki á neinn fugl í skotfæri. Ég var fremur léleg skytta, og þessi veiðiför var mér ekki að skapi. Veturinn áður hafði ég þó skotið 50 rjúpur, og hafði þá vonazt eftir að græða fé á rjúpnaveiðum um veturinn, en þó þekkti ég vel talsháttinn: „Fáir verða ríkir á rjúpnadrápinu.“ En áhugi minn á rjúpnadrápinu hafði hjaðnað snögglega um veturinn. í sudda-rigningu lagði ég upp í mína síð- ustu veiðiför. Snjór var á jörðu, og talsvert um rjúp- ur. Ég var með venjulega afturhlaðna byssu. Ef til vill hefur það verið rakanum að kenna, en oft þegar ég hafði hleypt af skoti, sat tómt skothylki fast í byssu- hlaupinu. Ég hafði með mér granna stöng, sem kallað- ur var „krassiu. Þegar skothylkið sat fast, notaði ég krassann til að losa skothylkið úr hlaupinu. En einu sinni hafði ég gleymt að draga krassann út aftur, þeg- ar ég lét í nýtt skothylki. Ég miðaði svo á rjúpu rétt hjá mér og s'kaut. Rjúpan flaug upp ósærð, en krassinn kom í stein og mölbrotnaði og brotin þeyttust í allar áttir. En ég stóð ringlaður og riðandi, eins og ég hefði verið sleginn höfuðhögg. Ég labbaði svo heim með byssuna, hálf sneypulegur, og fór aldrei aftur á rjúpna- veiðar. En nú víkur sögunni aftur að vormorgninum í hraun- inu. Ég rölti þarna í sólskininu og leitaði að æti fyrir yrðlinginn. Loks sá ég lóu, sem kúrði þar í lyngmóan- um. Eins og örskot lyfti ég byssunni og skaut. Skotið hafði hitt og lóan lá hreyfingarlaus í lautinni. Ég setti nýtt skot í byssuna, tók lóuna upp og sneri heim á leið að greninu. Ekki hafði ég langt farið, er ég kom auga á rjúpu, sem kúrði þar í lyngbrekku, og skaut hana líka. Nú þóttist ég hafa nóg að gert, og gekk beint að greninu. Skyttan hafði sofið á meðan ég var í veiðiförinni, en vaknaði, er ég kóm. Ég fleygði fugl- unum og sagði eitthvað á þá leið, að nú þyrfti yrðling- urinn ekki að svelta. Skyttan þakkaði mér fyrir og fór svo að matbúa fyrir yrðlinginn; krufði fuglana og tók af þeim haminn, því að yrðlingurinn var svo lítill, að hann gat ekki bargað sér sjálfur. Ég var þögull og fár. Samvizkan var ekki góð og glöð. Hinn dýrlegi, bjarti vormorgunn var gleymdur, og mér leið illa. Síðan hef ég aldrei skotið fugl, og mun aldrei gera það að rauna- lausu. — Lóan var geldfugl, en rjúpan var eggjamóðir. Það sá ég er skyttan gerði fuglana til. Rjúpan hafði verið komin að því að verpa og voru eggin misjafnlega þroskuð í eggjastokkunum. Ekki leið mér betur, er ég sá þetta. Þarna hafði ég ekki aðeins svipt einn fugl lífi heldur marga. Ég þagði. — Ég vissi heldur ekki hvort félagi minn skildi mig, þótt ég segði hug minn um þetta mál. — Nú leið að hádegi. Var okkur þá færður hádegisverður; — mjólkurgrautur í fötu, brauð, harðfiskur og mjólk. Um nóttina hafði ég hugsað um, að gott væri að fá sendan hádegisverðinn. Mest hafði ég hlakkað til að fá mólkurvellinginn, en nú þegar hann var kominn, var lystin dauf. Veiðiför morgunsins átti sök á því. Dagurinn á greninu leið seint. Ekki man ég glöggt 132 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.