Heima er bezt - 01.04.1961, Page 21

Heima er bezt - 01.04.1961, Page 21
Legiá á greni Pecar ég var lítill drengur, hélt ég að ekkert dýr í veröldinni væri verra en refurinn. Hann drap unglömbin á vorin og fullorðnar kindur í heimahögunt voru ekki óhultar fyrir þessu skaðræðisdýri. En verstur var refurinn þó í afréttinni, og mörgu lambinu fargaði hann þar á sumrin. Sögur heyrði eg um það, að fullorðnir sauðir og hrútar kæmu stundum klóraðir af fjallinu á haustin, en talið var að venjulegur refur gæti ekki ráðið niðurlögum hrúta eða fullorðinna sauða. Það kom líka jafnvel fyrir á vorin, að harðskeytt ær gat varið lambið sitt og hrakið refinn á brott. Af þessu heyrði ég margar sögur. Einu sinni fann ég líka fullorðna, nýborna á skaðrifna á kjálkan- um eftir refinn, þar sem hún stóð yfir lambinu sínu dauðu. Eina sögu lærði ég urn Ijónstyggan sauð, sem ekki var hægt að handsama í göngurn á haustin, en gekk úti einhvers staðar uppi á öræfum á vetrum. En eitt haustið kom hann þó af fjalli rneð fjallasafninu í fyrstu göngum og var þá í þremur reyfunum, en í ullarflókanum á sauðnum hékk dauður refur. Hafði hann fest sig þarna, er hann hafði ráðizt á sauðinn vet- urinn áður, inni á öræfunum. Hafði refurinn hlotið þarna ömurlegan dauðdaga. Þetta fannst mér þá hæfi- leg refsing á refinn. Ekki veit ég hvort sagan er sönn, en svona var mér sögð hún. Þegar ég stækkaði og fór að lesa bækur, þá lærði ég það, að mörg villidýr voru rneiri skaðræðisgripir en refurinn og sum mannskæð, svo sem: Úlfar, birnir, ljón og tígrisdýr, sem enn í dag granda mönnum, þrátt fyr- ir ágæt skotvopn. Refurinn hefur verið, allt frá byggð landsins, eina dýrið, sem grandaði fé landsmanna og gerði bændurn eignatjón, enda var hann hataður af þeirn og öllum börnum í sveit. Þótt ísbjörninn kæmi stundum til lands- ins á hafísaárum, og gerði stundum skaða, þá varð hann aldrei staðbundinn. En nú hafa börnin og bændurnir í sveitinni eignazt nýjan óvin, sem minkur nefnist. Þótt minkurinn legg- ist ekki á lömb eða sauðfé, þá er hann skaðræðis rándýr og grimmur mjög. Hann drepur aðallega alifugla óg gerir tjón í varplöndum, veiðivötnum og ám. í fréttum útvarps og blaða er oft rætt urn minkinn og stórar fjárhæðir lagðar til höfuðs honum. En það þýðir það, að hver, sem drepur mink fær verðlaun fyrir úr ríkis- . sjóði. Á ferðum mínum um landið heyri ég mikið talað urn minkinn og miklu rneira en um refinn, og oft eru drengir á skólaaldri að segja mér sögur um baráttu sína við þetta grimmlynda rándýr, sem er allra dýra grimm- ast, þótt það sé smávaxið og mjóslegið. Segja má að minkurinn sé 'bæði láðs- og lagardýr, þar sem hann velur sér bústaði í vatnsbökkum og árbökk- urn, eins og frændlið hans í öðrurn löndum. Mikið kapp er í unglingum út um allt land, að granda þessu skæða rándýri, og gengur það svo langt, að jafn- vel blíðlynd börn og ljúflyndir rnenn tryllast af reiði og grimmd, ef þessu litla dýri bregður fyrir. Hér ætla ég að segja sögu um bardaga við mink. Sag- an er urn 12 ára dreng í Norðurlandi. Hann var að smala fé, ekki all-langt frá bænurn. Sá hann þá fullvax-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.