Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 7
skólans, en hann rak þá einhvers konar ,.forskóla“ þar sem hann undirbjó krakka undir inntökupróf í fyrsta bekk menntaskóla. Mig ntinnir að þessi kennsla hafi byrjað upp úr áramótum og staðið fram á vor. Eins og allflestir menntaskólanemar á þessum árum vann ég á sumrin. Þá var oft erfitt um atvinnu þar sem hægt var að hafa eitthvað upp úr sér. Ég var heppinn í því efni. Ég komst í vegavinnu á Holtavörðuheiði og var þar í tvö sumur. Þar sá aldrei til sólar svo ég muni, utan einu sinni þegar Kristján konungur 10. fór þar um með fylgdarliði sínu, sumarið 1936. Hann steig út úr bifreið sinni þar sem við vegavinnukarlar vorum að starfi, gekk afsíðis og piss- aði, má vera í virðingarskyni við okkur. Þar reistum við síðar myndarlega vörðu eða minnismerki sem gnæfir þar enn. Ég var eitt sumar í símavinnu, það þótti mér skemmtilegt því henni fylgdu töluverð ferðalög og þá kynntist maður landinu dálítið. Þetta var erfið vinna, það var vosbúð, við lágum í lélegum tjöldum og bjuggum að verulegu leyti við skrínukost. Stundum tók það tvær til þrjár klukkustundir að vinnudegi loknum að komast í tjaldstað, en sá tími taldist ekki til vinnudags. Svo get ég nefnt það að eitt sumar vann ég við síldarverksmiðjurnar á Siglufirði. HÁSKÓLANÁM OG HJÓNABAND Róm 1956: Sigurður og Ragn- heiður spóka sig í Colosseum. Sigurður sat þarna FAO-þing um þessar niundir fyrir íslands hönd. DIPLÓMATINN SIGURÐUR HAFSTAÐ Í STOKKHÓLMI OG MOSKVU Þegar kom að því að velja háskólagrein voru íslensk fræði mér ofarlega í huga. Lögfræðin varð þó fyrir valinu. Ég sótti hins vegar um skeið fyrirlestra hjá Sigurði Nordal og unt þetta leyti stofnuðu nokkrir nemendur hans til bók- menntahrings sem ég tók þátt í ásamt öðrum kunningjum mínum. Meðal þeirra voru Kristján Eldjárn, Agnar Þórð- arson, Andrés Björnsson, Eiríkur Hreinn Finnbogason, Sigurhjörtur Pétursson, og fleiri góðir menn. Að frumkvæði Jónasar frá Hriflu var Viðskiptaháskólinn settur á laggirnar haustið 1938. Hann var í upphafi sjálf- stæð stofnun, en seinna sameinaður Háskólanum sem sjálfstæð deild þar, Viðskiptadeild. Um þetta urðu geysi- lega hörð pólitísk átök á Alþingi, þar sem Jónas Jónsson beið ósigur. Þetta varð rétt áður en fyrsti árgangur skólans útskrifaðist. Ég innritaðist í Viðskiptaháskólann og lauk prófi í viðskiptafræðum árið 1942. Jafnframt hélt ég áfram með lögfræðinám og tók lögfræðipróf í ársbyrjun 1944, en það gerði ég fyrst og fremst vegna hvatningar frá konuefni mínu Ragnheiði Kvaran. Ragnheiður kona mín er dóttir Ragnars Einarssonar Kvaran landkynnis og Þórunnar Hannesdóttur Hafstein. Kynni okkar hófust 1941, en Ragnheiður hafði tekið stúd- entspróf 1938 og stundað síðan nám við skjalaþýðenda- skóla í Kaupmannahöfn. Við Ragnheiður giftum okkur svo 12. maí 1944 skömmu eftir að ég hóf störf í utanríkisþjón- ustunni, áður hafði ég unnið í nokkra mánuði hjá skipulags- nefnd atvinnumála. Þaðan minnist ég sérstaklega Torfa Ásgeirssonar og Arnórs Sigurjónssonar, sem voru mér hollir og hjálpsamir fyrsta spölinn í opinberu starfi mínu. Það er erfitt fyrir mig að svara því hvers vegna ég lenti í utanríkisþjónustunni. Ef til vill réði það úrslitum um ráðningu mína að ég hafði tvöfalt háskólapróf. Þó kann hitt að hafa verið nægilegt, að ég var þá framsóknarmaður, en á þessum tíma var Vilhjálmur Þór utanríkisráðherra. Þá réðu pólitísk sjónarmið miklu og þannig er það enn. Haustið 1945 bauðst mér staða við sendiráð íslands í Stokkhólmi og starfaði ég þar í tæp tvö ár. Þá var Vil- hjálmur Finsen sendiherra þar en hann hafði áður verið fulltrúi íslands í sendiráði Dana í Osló, en starfaði þar að öðru leyti sem blaðamaður. í stríðsbyrjun var stofnað ís- lenskt sendiráð í Stokkhólmi og tók Vilhjálmur við forstöðu þess. Vilhjálmur var góður drengur og tókst samvinna okkar með ágætum. Síðsumars 1947 hélt ég frá Stokkhólmi til Moskvu ásamt konu minni sem þá var barnshafandi og dóttur okkar Þór- unni, þá tvepgja ára. Þar var ég sendifulltrúi íslands þangað til í febrúar 1951. Frá Moskvudvölinni er margs að minnast. Nokkrum vikum eftir komuna austur, á byltingardaginn 7. nóvem- ber, stóð ég á Rauða torginu ásamt öðrum sendimönnum erlendra ríkja, og stóð þar reyndar óþarflega lengi. ég kunni ekki siðina. Aðrir sendimenn komu á torgið vegna brýnnar skyldu og til að hlusta á Timoschenkov í kurteis- isskyni, en hann hélt þar aðalræðuna. Við þessi hátíðahöld stóðu leiðtogar Sovétríkjanna á þaki grafhýsis Lenins og heilsuðu að hermannasið fólkinu sem gekk þar framhjá svo milljónum skipti. Var Stalín vitaskuld þar fremstur í flokki. Að lokinni hátíðarræðunni hurfu erlendir sendimenn af Heimaerbezt 251

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.