Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.07.1986, Blaðsíða 19
SIGRÍÐUR SCHIÖTH, Akureyri Gamla kommóðan Á síðustu áratugum hefur áhugi fólks hér á landi vaxið mjög í þá átt, að varðveita minjar feðranna, svo sem gömul hús, gömul verkfæri og hús- búnað allan. Við að handleika og skoða þá búshluti, sem formæður og feður urðu að notast við í lífsbarátt- unni, fáum við nútímafólk meiri skilning á lífi þeirra og starfi. Fyrir og eftir síðustu aldamót mun húsbúnað- ur víðast hvar, a.m.k. meðal almenn- ings, hafa verið harla fábrotinn. Þó komu snemma fram á sjónarsviðið svokallaðar „kommóður“, og mun það orð vera úr dönsku komið, en var þýtt „dragkista“, á íslensku. Lýsir það hirslunni allvel, þar sem í henni eru margar skúffur, er dregnar eru út við notkun. Kommóðuheitið hefur nú samt haldið velli, víðast hvar á land- inu og geymdu húsfreyjur þar spari- klæðnað, myndir og fleira dýrmætt í þeirra eigu. Ein slík kommóða hefur verið æði lengi í eigu formæðra minna. Eignað- ist ég hana ung að árum og er hún nú í eigu dóttur minnar, sem ber sama nafn og kona sú. er fyrst átti gripinn. Þegar ég horfi á gömlu kommóðuna kemst ég í undarlegt hugarástand og sé fyrir mér fólk og atburði löngu lið- ins tíma. Að gamni mínu ætla ég nú að hugsa mér hana hafa málfæri og láta hana segja mér eitt og annað, frá liðnum dögum. Auðvitað mun aðeins koma fram það, sem ég veit. 125 ára? Valgerður III og gamla kommóðan: Valgerður Guð- rún Schiöth, hús- freyja á Rifkels- stöðum í Eyja- firði, er þriðja Valgerðurin í sögu kommóð- unnar, sem er trúlega 125 ára um þetta leyti. A veggnum er mynd af hjón- unum á Lóma- tjörn, Valgerði „11“ Jóhannes- dóttur og Guð- mundi Sæmunds- syni og börnunum ellefu, en höf- undurinn er eitt þeirra. MYND: ÓHT. Frásögn kommóðunnar: „Já, ég er nú ættuð austan af landi, líklega af Fjöllunum. Ég varð til þegar hann Jóhannes afi þinn var ungur og fallegur maður. Þá var hann alltaf að hugsa um hana Valgerði, ja, hún var nú líka ung og falleg, hún Valgerður og ætlaði að verða konan hans. Jó- hannes lét smíða mig handa henni. Svo fór hún að safna ýmsu dóti í skúffurnar mínar, til búsins, auðvitað. Þá var hún svo glöð og hlakkaði víst til að giftast kærastanum. svona eins og flestar ungar stúlkur í svipuðum kringumstæðum. En brúðarlínið hennar Valgerðar varð að nálíni, því hún dó, blessuð stúlkan og Jóhannes afi þinn varð svo fjarskalega hryggur. Svo stóð ég nú lengi ein og yfirgefin og skúffurnar mínar voru allar tæmdar. Jóhannes tók mig aftur til sín, þegar svona var komið, að allar framtíðarvonir um hjónaband og heimili voru að engu orðnar. Þá voru faðir hans, sr. Jón Reykjalín og Sig- ríður kona hans flutt að austan og sest að á Þönglabakka í Fjörðum, þar sem hann var prestur. Fór nú Jóhannes afi þinn að heimsækja þau. Nokkrum dögum eftir að hann kom þangað, var messað á Þönglabakka og kom þá margt fólk, því frést hafði um unga prestssoninn, sem kominn var í sveit- ina. Jóhannesi þótti kaldranalegt þarna út við sjóinn og sagði við föður sinn: „Hér mun ég ekki binda skóþvengi mína.“ En í kirkjunni sá hann Guð- rúnu Sigríði Hallgrímsdóttur, sem var heimasæta á Hóli, þar í sveit — og með það sama voru allar brottfarar- grillur horfnar á bak og burt. Hann bara starði á hana í messunni, svo allir tóku eftir því — já, sá var nú ekki lengi að hugsa sig um, hugsaðu þér, eftir stuttan tíma voru þau gift og far- in að búa á Þönglabakka, móti for- Heima er bezt 263
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.