Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Blaðsíða 44

Heima er bezt - 01.07.1986, Blaðsíða 44
að sofa í, ef þú getur gert þér hana að góðu.“ „Ekki er nú í kot vísað. Oft hef ég komið í Hjalla, en aldrei séð þessa stofu fyrr.“ „Það er af því að þú hefur aldrei komið hingað til að gista fyrr en nú.“ Þessi vistarvera í bænum var kölluð „húsið“, enda eins og stofa í kaup- staðarhúsi, þiljuð í hólf og gólf og blámáluð. Yfir rúminu hékk mynd af Jesú með hjartað utan á og stóð í björtu báli. Fjölskyldumyndir á veggjum, borð og stólar og meira að segja bókahilla, svo eitthvað væri til að líta í. „Góða nótt,“ segir hún og réttir honum höndina, „ég vona að þú sofir vel,“ og gekk til dyra. en þá mundi hún allt í einu eftir lítilræði. „Ég var næstum því búin að gleyma að spyrja hvenær þú vildir að ég vekti þig.“ Hann brosti og tók í hönd hennar, og nú þéttar en áður. „Ég ætti nú að vera einfær um að vakna sjálfur, en ég vil helst ekki vakna seinna en um sexleytið, þakka þér fyrir.“ Hann hélt hendi hennar ennþá í lófa sínum stórum og heitum. „Þá vek ég þig klukkan sex. Þú þarft ekki að hafa andvara á þér og getur sofið rólegur, ég kem.“ Þau héldust ennþá í hendur. „Góða nótt,“ sagði hún og var far- in. Hann stóð eftir á gólfinu heitur í kinnum og höndin ennþá hálfopin, rétt eins og hönd Sigrúnar lægi þar ennþá. Hann tíndi af sér spjarirnar og háttaði ofan í rúmið, sem var dálítið kalt í óupphitaðri stofunni. Það setti að honum hroll og hann skalf meðan heitur líkami hans vermdi köld rúm- fötin. Svo fór honum að líða betur og ró að færast yfir hann. Hann rifjaði upp daginn og kvöldið og hvað gerst hafði, og hvað Hjallafólkið hafði sagt. Einkennilegt hvað honum fannst það allt merkilegt, einkum það síðasta: „Þú þarft engan andvara að hafa á þér, ég kem.“ Teitur fann hvernig svefninn smá færðist yfir hann, og hann var alveg að festa blund þegar hann hrökk upp við að hann nefndi nafnið hennar stundarhátt. Svo hvarf hann inn í draumlaust óminnið. Teitur var vaknaður fyrir æðistund en lét sem hann svæfi því nú heyrði hann að Sigrún var að koma til að vekja hann. Hún gekk hljóðlega um, læddist á tánum, rétt eins og hún væri hrædd um að hann vaknaði án hennar til- verknaðar. Hún átti eftir að kveikja á lampanum. Að því búnu gekk hún að rúminu. „Teitur,“ hvíslaði hún. „Vaknaðu Teitur,“ en hann rumskaði ekki. Hún var víst ekki nein vekjaraklukka. „Teitur.“ sagði hún ofurlítið hærra, en allt kom fyrir ekki. Þá ýtti hún við honum en þegar það dugði ekki heldur, fór hún að hrista hann. að vísu feimnislega fyrst, en með vaxandi styrk. Loks fór hann að rámka við sér. „Vaknaðu klukkan er orðin sex.“ Teitur tók um hönd hennar sem hvíldi á öxl hans, þrýsti hana og strauk. „Komdu svo fram í eldhús, þegar þú ert búinn að klæða þig. Þú verður að borða vel áður en þú ferð. Svo tek ég til nesti handa þér.“ Hún dró að sér höndina hægt en ákveðið og fór. Hann gáði til veðurs, kom svo fram í eldhús fullklæddur, stór og fyrir- ferðamikill. „Ég held að þú sért búin að bera á borð fyrir tíu.“ „Svona stórir menn þurfa mikið til sín og þú átt eftir að ganga í allan dag og bera þunga byrði heim í kvöld, ef að líkum lætur, og,“ bætti hún við og var nú skilgetin dóttir pabba síns: „Nú verður ekki gaman að vera rjúpa í Hjallalandi,“ og hló. „Ég er ekkert hrædd um að ég fari snuðferð til ykkar hérna í Hjalla.“ „Það ætla ég að vona að þú gerir ekki,“ sagði Sigrún af sannfæringu. Hann tók til matar síns og fór sér að engu óðslega. Hann naut þess að hafa Sigrúnu á stjái í kring um sig, og virti hana fyrir sér meðan hún var að taka til nestið handa honum. Hún flýtti sér ekki heldur, en vandaði sig við að skera álegg, smyrja brauð, stafla sneiðunum, vefja þær í smjörpappír, sjóða egg og hella upp á könnuna. Það var sem hendur hennar gældu við verkið, og alltaf var það eitthvað sem hún var að gleyma en mundi svo eftir á síðustu stundu. Loksins var nestis- pakkinn tilbúinn. Teitur var staðinn upp frá borðinu og hún gekk til hans og fékk honum nestið. Hann tók hana í faðm sér og kveðjukossinn kom af sjálfu sér, jafn undankomulaus og eðlilegur og and- ardráttur þeirra ör og heitur. „Ég ætla að fylgja þér til dyra, þú ferð víst með nógu mikið af vitinu úr bænum,“ sagði hún og hló næstum ásakandi. Frammi í bæjardyrum setti Teitur byssuna á öxl sér og var ferðbúinn. „Góði farðu nú varlega, ég er svo hrædd við þessar voðalegu byssur, og það hafa orðið svo mörg slysin.“ „Kvíddu engu, þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég handleik byssuna mína. Hún er nýleg, af góðri tegund og ör- ugg-“ „Vertu þá blessaður. og góða ferð.“ „Þakka þér fyrir. Það var gott að þú sagðir ekki „góða veiði“, því það má aldrei segja við menn, sem eru að fara á veiðar.“ „Ertu hjátrúarfullur?" „Já, það vona ég. Bless.“ Svo lagði hann af stað í fyrstu veiðiferðina í Hjallalandi, en honum var einhvern veginn ómögulegt að festa hugann við veiðina sem var þó aðalástæðan fyrir komu hans hingað, eða var það ekki? I staðinn fyrir að leggja nú nógu kænlegar gildrur fyrir blessaða rjúpuna hvítu, var hann stöðugt að lifa upp í huganum atburði morgunsins í einstökum atriðum, allt frá því að Sigrún var að streitast við að vekja hann, glaðvakandi manninn. sem ekkert var nema látalætin og þóttist sofa, uns kom að kveðjukoss- inum sem enn brann á vörum hans. Hann gekk röskum skrefum fram fjallshlíðina, ekki ennþá kominn í aðalveiðilandið, enda varla orðið skotljóst, en það birti óðum og innan skamms átti hann að geta hafið veið- ar. Best að líta í kringum sig og vera við öllu búinn. Fjallið var orðið al- hvítt og því þyngra göngufæri sem ofar dró. Sigurður bóndi hafði sagt honum að ekki væri allt fengið með því að fara nógu ofarlega í fjallið og fræddi hann um margt fleira, sem Teiturvissi miklu betursjálfur af eigin reynslu. Skyldi Sigrún nokkuð hafa 288 Heimaerbezi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.