Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Síða 37

Heima er bezt - 01.07.1986, Síða 37
gilinu. Ranghíilcikí'éttdr og ,,Kirkjanl' eru staðir sem athyglin hefur sér- staklega heinst að. Ég var 17 eða 18 ára. Þetta var í maí, á sauðburðartíma. Nokkrar ær á heim- ili mínu voru óbornar og þurfti að hafa vökult auga með þeim, því að alltítt var að þær reyndu að laumast burt, er þær fundu fæðingu nálgast. Þá voru fjárheldar girðingar nær óþekktar, nema milli heimalanda bænda og afrétta. Því gat orðið drjúg leit að á, sem slapp úr gæzlu. Bless- aðar ærnar höfðu líka nægilegt vit til að velja sér lítt áberandi staði, til fjölgunarinnar. Þar voru þurrar, djúpar lautir ákjósanlegar, svo maður tali ekki um hlé við stóra steina sem, ef fleiri voru en einn, gátu myndað ágætt fylgsni og vörn gegn veðri og njósnandi augum leitarmanns. Það er dýrðlegt veður. blæjalogn og hlýtt. Við pabbi erum búnir að „ganga innan um“ féð og þar er allt í bezta lagi. Við erum staddir norður við Skjóldalsárgil. þegar eftirlitsferð lýk- ur en pabbi snýr ekki beinustu leið heim, heldur fer hann niður í gilið og fetar upp með ánni. Ég er hálfhissa á þessu tiltæki, en hef þó engin orð um og fylgi honum eftir. Hann nemur | fljótt staðar og sezt. Ég er ekkert hissa þó að hann þarfnist hvíldar, kominn nær sjötugu Kirkjan: Höfundurinn í vettvangsskoðun við Skjóldalsá ásamt blaðamanni Heima er bezt í ágúst 1986. MYND: ÓHT. SIGTRYGGUR SÍMONARSON Söngur í gljúfragili (Ölvesgerði) Yztagerði Ranghalaklettar „Kirkjan“ Gilsbakki Möðrufell Ytrafell Möðrufellshraun 280 Heimaerbezl og auk þess með eymsli í mjaðmarlið svo að hann er seinfærari en ella. Hann kallar þetta gigt, sem sennilega hefur fremur verið kölkun eða brjóskeyðing, en þær stallsystur voru á þeim tíma yfirleitt taldar til gigtar- ættar. Pabbi hefur litla viðdvöl þarna og segist ætla að fara örlítið lengra og leggja sig útaf litla stund. Hann röltir svo stuttan spöl upp með ánni og leggst þar útaf á grasbala. Ég verð eftir, því að ég hef á tilfinningunni að hann vilji gjarnan vera í einrúmi, þó að hann hafi ekki sagt það berum orðum. Þar sem ég stend gengur allstór bergbrík fram að ánni og auðgengt fram á hana, en í vari hennar, undan straum, var venja við hverja haust- slátrun að „þvo innan úr“, sem svo var kallað, en það var skolun á vömbum, vinstrum og vélindiskeppum þess bú- penings, sem slátrað var árlega. Ekki var neinn bæjarlækur á kot- býlinu til þeirra nota. Einnig var oft á vetrum skolað þar úr prjónlesi, eftir að það hafði verið „þvætt“ í sápu- vatni. En prjónlesið var söluvarning- ur: sjóvettlingar, heilsokkar og hálf- sokkar. Sú framleiðsla var, á þeim tíma, mikilvæg búbót mörgum sveitaheimilum og mikið kapp lagt í tóvinnu, framan af vetri, enda oft hið eina bjargráð er dugði til þess að hægt væri að kaupa eitthvað smávegis til jólanna, auk þess að viðskiptareikn- ingum bænda við kaupfélag og kaup- menn veittist einkar auðvelt að krefja inn drjúgar upphæðir. til skuldalúkn- inga, um hver áramót — að minnsta kosti hjá smábændum. Kreppuárin höfðu haldið innreið sína og þungi þeirra hvíldi sem helj- arbjarg á herðum margra bænda. En ekki kemur það frásögn minni við. Ekkert kreppu hugarangur angrar hug minn, á þessari stundu og ég nýt þess í ríkum mæli að vera á þessum slóðum. Bölkotsklappir og Skjóldals- árgil voru dásamlegustu leikvangar bernsku minnar. Þar leið mér ætíð vel. Hér á ég að þekkja hvern blett og ekki sízt „Kirkjuna“. Hún er litlum spöl ofar, eða ca. 150-200 metrum, að ágiskun minni. Þetta er þunn bergbrík, sem snýr frá austri til vesturs. Framhlið hennar, vesturhliðin, þverbrött og slétt, stend- ur fram að straumnum sem gnýr henni um tá. Hliðar hennar eru bratt- ar og sléttar, eins og að vestan en að austanverðu hverfur hún inn í grjót- mel gilsins, sem hylur skapnað henn- ar. Um hann getur aðeins ímyndun- araflið leikið lausum hala. Um það bil upp af miðju bríkurinnar ris „turn- inn“, ferstrendur, sem eflaust hefur ráðið nafngift „Kirkjunnar“. Bergbríkin er svo þunn að vart gæti nema einn maður í senn gengið fram að „turninum“, með góðu móti. „Turninn“, sem er nær jafnkantaður er með láréttum sprungum, svo til að sjá gæti hann virzt hlaðinn af manna- höndum. En sterkir hefðu þeir karlar þurft að vera sem hafið hefðu slík björg á stall og mjög laghentir að fella þau svo vel saman að engin missmíði sæjust, nema láréttar sprungurnar. En nú er nokkur stund liðin síðan pabbi lagði sig útaf og ég er orðinn óþreyjufullur og vil fara heim. Ég geng hljóðlega til hans, því að ekki ætla ég mér að vekja hann, ef hann skyldi hafa sofnað. Hann liggur í sömu stellingu og þegar hann lagði sig útaf, en mér verður á augabragði ljóst að hann er glaðvakandi. Því bera vitni, meðal annars, augnalok hans sem eru síhvikul. Ég sezt við hlið hans og gæti þess að nærvera mín ónáði hann ekki, á nokkurn hátt. Hann hef- ur valið sér hvíldarstað rétt neðanvert við þann stað sem allhátt klettagljúfur gilsins endar, um stund. Að örstuttri stund liðinni opnar hann augu og lítur brosandi til mín. Svipur hans er óvenju heiður og hýr. „Var þér farið að leiðast, Diddi minn?“ spyr hann. Svar mitt man ég ekki, en spyr hvort hann hafi sofnað. Hann svarar því neitandi og við höldum heim á leið. Skyndilega segir hann: „Ég var að hlusta á söng.“ Ég snarstanza og segi, agndofa af undrun: „Hlusta á söng?“ „Já,“ segir hann, „ég hefi oft hlust- að á söng, hérna í gilinu og hvergi heyrt hann jafn fagran.“ Ég einblíni á föður minn og efalaust býr mér sú spurn í hug hvort röskun hafi orðið á sálarástandi hans. Ekkert ber á því. Hann er í fyllsta jafnvægi, en óvenjulega opinskár og segir mér að hann hafi oft orðið þess- arrar reynslu aðnjótandi. Hann er sérstaklega tónelskur, leikur snotur- lega á fiðlu og hefur, jafnve! á gamals aldri, þýða og bjarta tenorrödd. Hon- um er jafnvel leikur einn að spila á fiðlu sína fyrstu rödd í lagi, sem er honum hugstætt og raula bassann við. Hraungerði Árbær Finnastaðir Holtssel Grund Hólshús Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.