Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Blaðsíða 40

Heima er bezt - 01.07.1986, Blaðsíða 40
Hermaður í varðstöð uppi á Helgafelli í Mosfellssveit. Fyrir neðan eru herbúðir sem nefndust ,,Spítalakampur“. Mynd úr bókinni „Heimsstyrjaldarárin á íslandi 1939-1945“. Birt með leyfi Bóka- útgáfunnar Örn og Örlygur. fótinn niður að Seljadalsá, þar sem kvarznáman er, eða var, varla er búið að afmá þau ummerki af yfirborði jarðar. Var ég látinn vita af þessu og hljóp ég strax af stað með hundinn Per með mér. Tiltölulega stutt var að fara því hrossin sáust að hluta til í austurenda Búrfells. Voru nú fætur látnir ganga svo hælar gengu í rass. Er hermennirnir sáu til ferða minna breyttu þeir um stefnu, enda komnir lengra áleiðis, þar sem þeir gátu farið lengi í hvarfi meðfram Seljadalsá, svo nú var orðið um hreint kapphlaup til hestanna að ræða. Veittist mér betur í þeirri viðureign, því ég var ungur og léttur á mér, auk þess léttbúinn og þekkti landið mjög vel, en þeir þung- búnir með vopn og þekktu ekki land- ið. Er ég kem til hrossanna verður fyrst fyrir mér hesturinn sem ég ætlaði að taka, sá hét Bursti, brúnn að lit, söð- ulbakaður. mjög fljótur stökkhestur, góður skeiðari og dúnmjúkur töltari í samreið. Ekki vannst tími til að beisla, ekki aldeilis, þeir voru skammt und- an, og er þeir sáu að ég var kominn til hestanna létu þeir skot ríða af yfir hópinn. Þar með fór allt á fulla ferð, voru engin önnur ráð en að vippa sér á bak um leið og klárinn tók viðbragðið. Létu þeir þá annað skot fara, í þeirri von að hópurinn tvístraðist, og ekki síður það að ég dytti af baki eða yrði viðskila við aðalhópinn sem var best fyrir þá. Þar sem ekkert beisli var til að halda í mátti búast við stefnulítilli för, gróf ég lúkurnar i faxið sem var mikið og hugsaði um það eitt að fylgja klárnum, yfirkominn af hræðslu. Nú komst ekkert annað að en arga hundinum á hrossin, og að komast heim. Ekki var nú stefnan þessleg í upphafi, heldur frá heimili mínu. Keyrði nú allur hópurinn eins og orkan leyfði í átt að Silungatjörn. Ekki var langt farið er sveigt er til vinstri og yfir Seljadalsá og uppundir Huldu- hóla og stefnan tekin heim. Þá er ég orðinn fyrstur, en hundurinn keyrir hitt á eftir, allt hvað af tekur. Ekki var hugarástandið gott, þó á heimleið væri, nema síður sé, að vita og sjá dátana af og til á hlið við sig, og eiga von á skoti þá og þegar. Eins það að detta af baki, það mátti ekki ske, heyra hófatraðkið og allt másið á eftir sér, vitandi það að ef ég losnaði frá klámum yrði ég að öllum líkindum undir fótum hestanna. Þessi hópur samanstóð af tömdu og ótömdu, um 40 stykki. Hræðslan við þessar ógnir var öllu öðru yfirsterkari. Við að taka þennan sveig sem hér á undan er getið, náðu dátarnir því að stytta sér leið, sem dugði til þess að komast í veg fyrir hópinn, en gátu ekki stöðvað hann. Þá var leikurinn kominn heim undir tún. Ekki stopp- uðu hrossin við túngirðinguna, heldur fóru með henni á fullu niður mjög bratta brekku og fram af enn brattara barði. beint í Seljadalsá sem lá þar undir í þröngum stokk, og yfir í Búr- fell gegnt bænum Þormóðsdal. Þar stöðvaðist hópurinn, ekki veit ég hvers vegna. Stuttu áður en hestarnir komu að girðingunni hafði faðir minn hlaupið af stað í veg fyrir dátana, hafði reyndar fylgst með framvindunni all- an tímann. Mætti hann þeim skammt frá girðingunni. Stöðvuðu þeir þá hlaupin, það má telja öruggt, enda staðfesti faðir minn það á eftir, að hann viðhafði ekki neitt dúkkutal við þá. Varð það til þess að annar brá riffli að mjöðm og opnaði lásinn með tilheyrandi smelli, slíkt þýddi bara eitt: Dauði. Hinum varð það fyrir að banda hendi við félaga sínum, um leið og hann færði sig í línuna. Eftir smá orðaskak til viðbótar fóru dátarnir í áttina til síns heima. Var nú túnið á milli á langveginn, en hrossin blöstu við þar sem þau voru stoppuð. Ekki voru þeir langt komnir er annar þeirra lét skot ríða af. Fann ég mjög vel bæði þyt og þrýsting á vanga mér, er gróður og jarðvegur ýfðist upp undan kúl- unni við hliðina, undir barðinu sem hlífði mér. Enn á ný ruku hrossin af stað, en ekki langt, fóru í nokkuð krappan hring, þar sem ró var að færast yfir, eftir öll ósköpin sem á undan voru gengin. Upp úr þessu mátti heita rólegt, það sem eftir var af sumrinu. Um það bil 2 mánuðum síðar voru skilti sett upp vestan við túnið, en austan við kamp- ana, um það bil tveir fermetrar hvort spjald að stærð, þar sem hernum var bannað að fara um heimalandið í Þormóðsdal. Auðvitað var lesningin á ensku og í áberandi litum. Herinn setti þessi spjöld sjálfur upp. Fór heill dagur í að reka niður 4 staura með sleggju og negla spjöldin á af tæplega 70 dátum. Þetta þætti lélegt ef landinn ætti í hlut, það kann að vera að að- gerðarleysi í herbúðunum hafi verið afgerandi. Svona eftir á að hyggja er ekki loku fyrir það skotið, að þetta atvik hafi mótað afstöðu mína til hersins, eftir á, því ekki get ég með neinu móti séð þá þörf eða nauðsyn að vera með hern- aðarumsvif í okkar kæra landi, hvort sem það er í Miðnesheiðinni eða annarsstaðar. Akranesi í júni 1986. 284 Heimuerbezl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.