Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 55

Heima er bezt - 01.07.1986, Qupperneq 55
MAGNÚS JÓNSSON Hafnarfirði Vísnabréf af gefnu tilefni í maí-hefti Heima er bezt birtist stutt samtal við Magnús Jónsson, umsjón- armanns Byggðasafns Hafnarfjarðar. Ekki er þar allt rétt hermt, og leiðréttir hann missagnirnar í skemmtilegu vísnabréfi sem hér fylgir aö hluta. Hefur þetta orðiö honum tilefni til að rifja upp góðan kveðskap. Þið blaðamennirnir eruð oftast á spani og tæplega tekur að minnast á það að I plöturnar til hliðar við eldstæðið í Sívertsenshúsinu eru ekki stálplötur, heldur virðast mér þær vera úr steypu- járni og í sambandi við að þetta sé eitt- hvert millistigs-eldstæði er Ijóst, að það stendur miklu nær hlóðum en nútíma eldunartækjum og ég hef nánast dottió ofaná það orðalag nú í seinni tíð, að þetta sé einskonar sambland af ís- lenzkum og dönskum hlóðum. Þannig held ég að við komumst næst þvf. Þetta eru þó smáatriði, en ver fellur mér að vera lagt í munn að ég telji mig geta ort jafn-vel og faðir minn. Hafi ég sagt þetta, hefur það gloprast alveg ómeðvitað útúr mér. Þarna er tölu- verður munur á, þótt ekki sé hann eins mikill og hann var í því verklega. En mér þýðir t.d. ekki að reyna að koma saman sléttubandavísu, en pabbi hefur ort yfir tuttugu. Hér er ein þesskonar eftir hann: Felling gengis truflar títt, tekur efnum spilla. Hrelling mengi vekur vítt váleg stefnan illa. Því miður fer þeim víst fækkandi sem vita hver einkenni sléttubanda eru, já, yfirleitt fækkar þeim sem hafa brag- eyra. í sléttuböndum verða orðin að vera tveggja atkvæða, nema aftasta orð fyrstu og þriðju línu, en hvort þeirra sé eitt atkvæði. Svo getur staðsetning stuðla aðeins verið á einn veg — en ég fer ekki frekar út í það. Línulengd er eins og í venjulegri ferskeytlu. Að þessu uppfylltu verður vísan sléttu- bönd, þ.e. að hægt er að byrja á henni neðst og aftast, svo að undanfarandi vísa yrði þá: llla stefnan váleg vítt vekur mengi hrelling. Spilla efnum ... (o.s.frv.). Dýrleiki vísna er nánast skraut sem ekki telst til nauðsynja, heldur er til að gleðja brageyrað. Algengasta dýrleika- afbrigðið er hringhendurím, og ef að við förum út í rímnabragfræði, geta allar ferhendur haft svona rím. Þekkt- asta hringhendan sem til er, er senni- lega þessi: Nú er hlátur nývakinn, nú er grátur tregur, nú er ég kátur nafni minn, nú er ég mátulegur. Atkvæðin sem mynda hringhendrím- ið eru að sjálfsögðu hlát, grát, kát og mát. i Hafnarfirði höfum við Kvæða- mannafélag og meðal snjöllustu hag- yrðinganna þar er Vestfirðingurinn Konráð Júlíusson. I því sambandi orti faðir minn: Ljótt er að fremja landráð, leitt getur af því fjörráð. Er það því hverjum óráð að eiga við slíka samráð. Þess eru gagnstæð þjóðráð um þroskavænleg bjargráð. Við óðargyðju umráð yrkir dýrast Konráð. Ein af örfáum hringhendum sem ég hef hnoðað saman er líka í sambandi við Konráð þennan. Þannig var, að að- eins á einum af félagsfundum vetrarins, sem nánast eru hálfsmánaðarlega, mætti hann ekki. Það var víst á útmán- uðunum og kom í Ijós næst, að hann hafði verið að bera á túnblett sinn þetta kvöld. Var reiknað með að hann hefði verið yrkjandi við það eins og annað, og því kom þessi vísa hjá mér: Konráð þykir vísan vönd — vökur kvikar taugin —. Tekur strikið óðsins önd yfir mykjuhauginn. í næst fyrstu línu vísunnar: Vökur kvikar taugin, má segja að átt sé við Ijóðastrenginn, eða eitthvað í þá veru, en fljótséð er þó að þessi lína er svip- minnst og efnislega væri engin eftirsjá að henni, þótt hún hyrfi. En við getum jafnframt athugað það, að þessu er svona varið með fjölda annara fjögurra línu vísna. Ástæðan er sú, að margir yrkja seinni helming vísunnar fyrst, því að mestu skiptir að hann sé hnökra- laus. Svo er ort fyrsta línan og loks kemur Ijóðlína nr. tvö, sem höfundur lætur flakka, þótt hún komi málinu næsta lítið við, eða sé mjög efnislítil. Ég féll í þá freistni að koma með fáein dæmi um þetta. Fyrst er hér öfugmæli eftir ömmu mína: Llr kýrspenanum kemur snjór — kunnugt er það mengi —. Um hreina nýmjólk hlunnajór hrausta flytur drengi. Svo er það beinakerlingarvísan þekkta, frá því að Sunnefumálið stóð sem hæst á fimmta tug átjándu aldar: Týnd er æra, töpuð er sál — tunglið veður í skýjum —. Sunnefu nú sýpur skál sýslumaðurinn Wíum. Alkunnugt er að geysi mikið liggur eftir Símon dalaskáld af bundnu máli. I lok einhverra rímna sinna segir hann frá því í vísu hvenær þær voru ortar. Þar er hluti ártalsins í línunum þrem, en næst fyrsta línan segir ekki nokkurn hlut: Átján hundruð ártalið — öldin grundar sátta —. Sjötíu bundin setjast við seinast fundin átta. Þeir rímnabragarhættir sem hafa fjórar Ijóðlínur nefnast ferhendur og grípur það orð því yfir meira en orðið ferskeytla. Algengustu þriggja línu bragarhættir eru stuðlafall og brag- henda. Enda ég nú þetta rímnabrag- fræðirabb á einni samrímaðri brag- hendu, og hafi nokkru sinni verið byrj- að á síðustu línu, eða hún höfð í huga fyrst, þá á það við um þessa gömlu vísu: Hölda þorri hryggðist, orri hárs kvað félli, úr samvist vorri, saddur elli, séra Snorri' á Húsafelli. Heima er bezt 299

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.