Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1995, Page 13

Heima er bezt - 01.04.1995, Page 13
Sigurlaug Guðmundsdóttir: Kynlegur kvistur Endurminning um gamlan nágranna og æskuvin Mig hefur lengi langað til að skrifa nokkrar línur um mann, sem bjó á Vindfelli í Vopnafirði, en Vindfell er næsti bær við Ey- vindarstaði, æskuheimili mitt. Hann hét Gísli Gíslason og var Þingeyingur að ætt, fæddist á Höfn í Bakkafirði og ólst þar upp en fluttist ungur að aldri til Vopnafjarðar og giftist þar vopn- firskri konu, sem hét Elísabet Jósefsdóttir. Þá Iá jarðnæði hvergi á lausu fyrir þau hjónin en bróðir Elísabetar átti Vindfell. Hafði það í fyrstu verið ætlun hans að búa þar sjálfur en einhverra or- saka vegna hætti hann við það og fluttist í kauptúnið í Vopna- firði og bjó þar til dauðadags. Leigði hann þá mági sínum jörð- ina. Það var lífstíðarábúð. Fluttu svo ungu hjónin þangað. ísli var eins og ég hef sagt Þingeyingur að ætt, að minnsta kosti var móðir hans þingeysk. Hún hét Guðbjörg Gísla- dóttir, en vafi þótti leika á um fað- ernið. Hann var af flestum talinn vera franskur í föðurætt, og þó oft sé lítið að marka slíkar kjaftasögur, býst ég samt við að einhverju hafi verið meira logið. Benti margt til þess. Ekki var það þó eingöngu útlitið sem benti til þess. Gísli var fríður maður, fremur brúnn á hörundslit, með tinnusvart hár og svartbrún augu, en slíkt útlit hafa svo margir, sem vitað er um að eiga alls ekki kyn að rekja til útlendinga. Enn fremur var það að lundarfar hans var líkt því, sem sagt er algengt hjá suðrænum þjóðum. Hann var mjög hrifnæmur og fljótur að skipta um skoðun. Þó gat hann verið tryggur vinur og svo reyndist hann okkur. Hann var mjög barngóð- ur, greiðugur og afar gestrisinn, í einu orði sagt svo góður granni sem hugsast gat. Elísabetu konu sína missti Gísli eftir fárra ára sambúð frá þremur ungum dætrum þeirra. Þá tók hann ráðskonu, sem var ættuð úr Austur- Skaftafellssýslu. Þau eignuðust sam- an einn dreng, en giftust aldrei. Hún var svo hjá honum meðan hann lifði og reyndist dætrum hans vel. Þær dætur Gísla voru allar óvenju gáfaðar stúlkur, og sú elsta þeirra, Margrét, þótti bera af þeim öllum. Hún dó úr heilabólgu 17 ára gömul. Sagði Gísli stundum, þegar hann minntist á Möggu sína, að þá hefði hann misst allt er hann missti hana og er þá mikið sagt, því að mið- systirin, Ingunn, gekk á Kennara- skólann, og var það haft eftir séra Magnúsi Helgasyni, sem þá var skólastjóri Kennaraskólans, að því- líkan nemanda sem Ingunni hefði hann aldrei haft. Guðbjörg, yngsta systirin, var að vísu talin ekki alveg jafn gáfuð og hinar systurnar, en þó mjög vel gefin manneskja. Sonurinn Ragnar var einnig mjög vel gefinn. En segja mátti að sitt er hvað gæfa og gjörvileiki um þau systkini. Ing- unn missti heilsuna á besta aldri og náði henni aldrei aftur, varð þó göm- ul kona. Guðbjörg fékk berkla á ung- um aldri og varð að vera á Vífils- staðahælinu í mörg ár og náði aldrei fullri heilsu, dó á miðjum aldri, og sonurinn, Ragnar, dó úr lungna- krabba 47 ára. Sjálfur var Gísli afburða gáfumað- ur og það svo, að Ingólfur Gíslason, sem þá var héraðslæknir í Vopna- firði, sagði að Gísli væri gáfaðasti maður, sem hann hefði nokkurn tíma Heimaerbezt 121

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.