Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1951, Side 13

Æskan - 01.11.1951, Side 13
Jólablað Æskunnar 1951 svo dimmt og leiðinlegt, að ég varð nærri því hrædd, og það var hvorki lampi né neilt annað, bara ljótt tólgarkerti. Og svo var þar lítil telpa, sem ég spurði hvort hún fengi ekki jólatré. Og hugsið ykkur! Hún vissi alls elcki, hvað jólatré var. — En mamma sagði mér, að þetta væri af því, að pabhi hennar væri svo drykkfeldnr, og stundum þegar liann kemur heim, þá lemur hann þau. Og svo bað ég mömmu og spurði, hvort telpan mætti ekki lcoma og vera með og sjá jólalréð hjá okkur. Og mamma sagði, að það væru fjölda mörg börn, sem aldrei fengju jólagjaf- ir, jólagraut eða neitt. Þá varð ég svo leið. En nú er ég með í bindindisfélaginu, og við saum- um og vinnum fyrir fátæku börnin, og ég hef fengið margar af stallsystrum mínum til þess að vera með. Ég er núna að hekla blúndu, sem er mjög falleg. Við ætlum að hafa stóra útsölu eftir jól og jóla- skennntun, þar sem við syngjum. Og ég er nærri þvi búin að læra allan sálminn „Fríð er himins festing hlá“ og „Heims um hól“ og fleiri, þess vegna verður svo gaman, þegar við förum að ganga í kringum jólatréð. Ég hugsa, að ég fái saumastokk í jólagjöf frá mönnnu og skennntilega bók frá Albert og belti frá Gústu. En ég veit ekki, livað ég fæ frá pabba. Þið getið verið viss um, að pabbi er góður við okkur um jólin. Við borðum lika jólagraut, og á eftir verð ég svo syfjuð. En þegar ég vakna aftur, þá er kominn jóla- dagsmorgun, og svo kemur annar jóladagur, og þá er ekki langt til nýárs. En af hverjn geta ekki allir verið glaðir um jólin. Ég óska þess svo innilega, að Jesús gæfi, að allir gætu skennnt sér vel. Það er svo yndislegt, að hugsa um, að það hefur verið svo gaman. Og svo óslca ég ykkur öllum gleðilegra jóla. Á ég að segja ykkur, hvað Albert segir? Hann segir, að á jólanóttina, þegar allir eru hátt- aðir og farnir að sofa, þá komi englarnir svífandi niður til jarðarinnar og alls staðar verði skínandi hjart og fallegt. Stjörnurnar færist nær, og jólaljós í þúsundatali, og allir, bæði ríkir og fátækir, fá vængi og eru með englunum, og Jesúbarnið liggur aftur i jötunni, og við og allir englarnir fljúgum með ljós í höndum og syngjum svo að heyrist um allan heim: Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu. Margrét Jónsdóttir þýddi. onni og 1, Heima hjá mömmu. Einu sinni var fátæk ekkja. Hún átti lítinn dreng, sem kallaður var Nonni. Þeim þótti ósköp vænt hvoru um annað og undu ævinni svo einstaklega vel saman. Einu sinni sagði mamma við Nonna litla: „Nú þarf ég að segja þér nokkuð, Nonni minn, sem er ósköp sorglegt. Ég finn, að ég á ekki langt ólifað. Reyndu nú að vera alltaf góður drengur, segja alltaf satt og vera ávallt reiðubúinn að hjálpa öllum, mönn- um og málleysingjum.“ Svo vafði manna drenginn að sér af hinztu kröft- um og kyssti hann. Litlu siðar lokaði hún augun- um og leið út af. Aumingja Nonni litli varð yfirkominn af harmi og grét og grét. Loksins sofnaði hann, alveg örmagna og úrvinda. Þá dreymdi hann, að mamma kom til lians. Hún faðmaði hann og sagði: „Vertu duglegur drengur, Nonni minn. Ég verð alltaf lijá þér og hjálpa þér.“ Þegar Nonni vaknaði, fannst honum liann sjá á eftir mömmu sinni út úr dyrunum. Og liann var alveg sannfærður um, að mamma hafði verið lijá honum, og hann varð glaður og hughraustur á ný og kveið engu. 2. Nonni er einstæðingur. Nonni vissi samt ekkert, hvað hann átti að gera af sér. Nú átti hann enga mömmu, og ekki átti hann heldur neinn pabba né neina vini. sem hann gæti leitað til. Og hann var svo bláfátækur, að hann átli ekki nema eina krónu i vasanum. Það var al- eigan. En Nonni kveið samt engu. Hann sagði við sjálfan sig: „Ég fer bara eitlhvað út í viða veröld. Ég er ungur og heilsugóður, og þó að ég sé fátækur, þá er guð ríkur, og hann mun gefa mér af nægtum sinum.“ Svo lagði Nonni af stað. Hann tritlaði eftir göt- unni, hoppaði yfir lækina og ldöngraðisl yfir hóla og hæðir. 113

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.