Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1951, Page 24

Æskan - 01.11.1951, Page 24
Jólablað Æskunnar 1951 I. ÞÁTTUR RÁÐGJAFI (við þjóninn): Eru nokkrir komnir úr þorpinu? Kon- ungurinn var að spyrja um það. ÞJÓNN: Já, þeir bíða úti. RÁÐGJAFI: Láttu þá koma inn. ÞJÓNN (kallar út): Gerið svo vel að gangainn. (Borgarstjórafrú og sonur henn- ar og stórkaupmannsfrú og sonur hennar koma inn.) RÁÐGJAFI: Þið hafið komið til þess að hylla konunginn. FRÚRNAR: Já, herra minn. RÁÐGJAFI: Konungurinn óskar eftir, að synir ykkar verði hér eftir til kvöldsins. BORGARSTJÓRAFRÚ: Vilduð þér vera svo góður, herra ráðgjafi, að segja oklcur af fyrirætlun kon- ungsins? RÁÐGJAFI: Já, frú mín. Kon- ungurinn er að undirbúa leiðangur austur í óbyggðir Asíu til þess að kanna löndin þar. Hann ætlar að hafa úrvalsmenn í l'örinni. Hann á aðeins eftir að velja einn mann til fararinnar. KAUPMANNSFRÚ: Okkur er sagt, að þess manns muni bíða mikil hamingja, sem konungurinn velur til þessarar ferðar. RÁÐGJAFI: Svo mun verða, frú mín. Hann mun verða gerður að hirðmanni konungs. BORGARSTJÓRAFRÚ: Ég hélt, að konungur veldi aðeins tigna menn og ættstóra að hirð sinni. RÁÐGJAFI: Svo hefur það verið hingað til. Þess vegna er þetta ó- viðjafnanlegt tækifæri fyrir unga menn úr þorpinu. BORGARSTJÓRAFRÚ: En hvernig ætlar konungur að velja sér förunaut úr hópi þeirra, sem sækja um starfið. Prófið. ►*« ►*♦ »*♦ ♦** ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ *?♦ ♦*♦ *?♦ ♦*♦ •*+ »*♦ »*« »*♦ ♦*♦ RÁÐGJAFI: Hver, sem kemur, verður látinn ganga undir próf, og prófið sker úr því, hver er hæf- astur til þessa starfa. STALLARI (kemur inn): Ráð- gjafi, konungurinn vill finna þig. (Ráðhcrrann h'jtur frúnum og fer. Stallari snýr sér að gestun- um.) Konungurinn vill hafa tal af ylckur eftir litla stund. (Stallarinn fer, en inn kemur bóndakona með son sinn.) BÓNDAKONAN: Ég frétti, að konunginn vantaði fylgdarmann. BORGARSTJÓRAFRÚ: Konung- urinn óskar aðeins eftir sonum heldri manna. (lnn kemur konungur, ráðgjafi og fararstjóri. Þcir nema staðar fremst í salnum, og frúrnar sjá þá ekki.) BÓNDAKONAN (stgnur jmng- an): Ég býst við að svo sé. En Jón minn er ágætur piltur. Ég vildi óska, að konungurinn gæti séð hann sjálfur. KAUPMANNSFRÚ (tekur fram í): Konungurinn vill þá menn eina, sem hafa á sér höfðingjasnið, eins og synir okkar hafa. KONUNGUR (móðgaður): Það er ósatt. BORGARSTJÓRAFRÚ og KAUP- MANNSFRÚ (lúta): Yðar hátign. KONUNGUR: Það er ósatt, segi ég- BÓNDAKONAN: Ég bið yður af- sökunar, herra minn. Ég vissi elcki, hvernig þessum málum var háttað. Komdu Jón. (Hún smjr við, til þess að fara.) KONUNGUR: Bíðið þér við, frú mín góð. Jón sonur yðar skal verða prófaður ásamt öðrum. Og þið hin- ar, frúr mínar, skuluð fá að heyra niðurstöður prófsins, þegar því er lokið. Verið sælar. (Konurnar lúta konungi og fara. Hann snijr sér að ungu mönnun- um.) Nú skuluð þið ganga héðan suð- ur í skóginn og alla leið suður að ánni. Þar skuluð þið snúa við og koma heim aftur. Fararstjóri, látið menn fylgja þeim. Þið, ungu menn, megið ekki tala orð saman, fyrr en ég hef séð ykkur aftur. Viljið þið lofa því? PILTARNIR: Já herra, við lof- um því. KONUNGUR: Gott er það. Nú eru þeir í umsjá yðar, fararstjóri. En ég þarf að tala við yður, ráð- gja«. (Konungur og ráðgjafi ganga inn i konungsherbergi, en fararstjóri fer með piltana út i skóginn.) II. ÞÁTTUR (Konungur situr við borð og horfir á landabréf. Þjónn konungs kemur inn.) KONUNGUR: Jæja, hvernig geng- ur það? ÞJÓNN: Fanginn er kominn til baka. KONUNGUR: Hvaða fangi? ÞJÓNN: Fanginn, sem var send- ur út vegna prófsins, herra minn. KONUNGUR: Hvaða fangi var sendur? ÞJÓNN: Hann Lúðvík, sem hef- ur lengi verið veikur. KONUNGUR: Já, það var rétt. Látið hann koma inn. (Þjónninn fer og kemur aftur með fangann. Hann er i fangaföt- um, gcngur fyrir konung og lýtur honum.) Ég hef tekið eftir því, að þér er- uð dálítið haltur, Lúðvík. hölcu. Hún var orðin uppgefin. Allt í einu hneig hún aftur á bak og sökk. En kvarðinn og vaðmálsstrang- 124 inn flutu á vatninu, og þau gera það líldega enn, ef þau hafa ekki sokkið. s. A.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.