Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1951, Blaðsíða 35

Æskan - 01.11.1951, Blaðsíða 35
Jólablað Æskunriar 1951 Litli sundkappinn. Ríkur stórkaupmaður í París gekk sér til skemmt- unar á Signu-bökkum og hafði með sér hundinn sinn. Og af því hann langaði til að sjá dýrið neyta sundkunnáttu sinnar, gerði hann hvei'ja tilraunina á fætur annarri til þess að siga honum út í ána, en árangurslaust. Að lokum tók hann í hnakkadrambið á liundinum og henti honum út í, en hvutli greip þegar sundið, buslaði góða stund og sneri svo aftur til sama lands, en þegar hann kom að bakkanum, komst hann ekki upp úr vegna þess, að bakkinn var svo hár og brattur. Kaupmaður lagðist því flat- ur og tevgði sig niður fyrir bakkann og dró dýrið upp úr, en i sama bili rann veski, er í voru 10 þús- und lcrónur í seðlurn, úr brjóstvasa hans og livarf í fljótið. Kaupmaður stóð nú ráðþrota á bakkanum, því fljótið var svo djúpt þarna, og hann ósyndur. Við fljótið, skammt ofar, heyrði hann mannamál og hávaða. Hann fór þangað og varð þess vís, að þar liöfðu nokkrir menn safnast saman umhverfis drenglmokka innan við fermingu, er var allsnakinn og buslaði við fljótsbakkann og kafaði í sífellu eftir peningum, sem hinir viðstöddu köstuðu út í fljótið. Kaupmaður notaði þegar tækifærið og bað dreng- inn að fylgja sér þangað, sem hann hafðí tapað vesk- inu, og sagðist skyldi borga honum ríkulega, ef hann kafaði eftir þvi og færði sér það. Drengurinn fór nú umsvifalaust með kaupmanni, svo og allir þeir, sem viðstaddir voru. Kaupmaður benti nú litla kafaranum á staðinn, þar sem hann hafði misst veskið i fljótið, og var þar sígandi straumur, en drengurinn stakk sér á svarta kaf nokkrum metrum neðar og kom svo upp aftur eftir stutta stund, en allslaus. Litli sund- maðurinn var nú ekki á því að hætta við svo búið, og stakk sér á ný, en kaupmaður beið fullur eftir- vænlingar, eins og reyndar hinir aðrir, er á fljóts- bakkanum stóðu, og gat þess í hálfgerðum von- leysisrómi, að tap sitt væri fullar 10 þúsund krón- ur, ef ekki tækizt að ná í veskið. Þegar drengurinn eftir þrjár atrennur kom í ljós- mál, hafði liann veskið i annarri hendi og veifaði þvi sigri hrósandi. Kaupmaður varð hinn glaðasti, rétti drengnum 5 krónur með annarri hendi og bjóst til að veita vesk- inu viðtöku með hinni, og ljúka þannig þessum merkilegu viðskiptum. Ástralíusvertingjar kyrja töfrasöng, áður en þeir hefja slöngudans. 135

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.