Æskan - 01.09.1965, Page 8
Síðastliðinn vetur efndi Flugfélag íslands til verð-
launasamkeppni í samvinnu við Barnablaðið Æskuna
í Reykjavík og bamablaðið Vorið á Akureyri.
Fyrstu verðlaun í báðum keppnunum voru fjög-
urra daga ferð til Lundúna. í verðlaunasamkeppni
Æskunnar sigraði Ingvar Gunnarsson frá Þingeyri,
14 ára að aldri, og í ritgerðasamkeppni Vorsins sigraði
Hjálmar Haraldsson frá Egilsstöðum, einnig 14 ára
&
&
gamall. Lundúnaferðin var farin hinn 8. júní s.l.
Undir leiðsögn Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa
og Gríms Engilberts ritstjóra skoðuðu piltarnir ýmsa
sögustaði í heimsborginni, fóru meðal annars í heim-
sókn í Tower of London, sáu vaxmyndasafn Madame
Tussoud, skoðuðu dýragarð borgarinnar og fylgdust
með hátíðaundirbúningi í St. Páls kirkjunni, annarri
stærstu kirkju heims o. fl.
Heim var svo komið að kvöldi 11. júní eftir mjög
lærdómsríka og ánægjulega ferð.
268