Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1967, Side 20

Æskan - 01.02.1967, Side 20
Fjórfán leikiimisæiingar án áhalda. Sjöunda æfing: RéttstaíSa, fætur saman, armar i seil- ingarhæð, bolbeygja áfram, beygðu örlítið vinstri fót um hné og skjóttu örmum fram, þannig að bein lina myndist frá hæl og fram á hendur (sjá teikninguna). Reyndu að ná eins beinni línu og mögulegt er. Þetta heppnast með því að hafa fótinn, sem líkamsþung- inn hvílir á, örlítið boginn. Æfðu hægri fót á sama hátt. Æfðu þessa æfingu fyrst fimm sinnum og bættu svo einu skipti við vikulega og að lokum æfir þú þessa æfingu 20 sinnum. Þetta er nokkuð erfið æfing, en þetta er ágætis fótaæfing og er líka góð fyrir handleggi, mjaðmir, bak og axlir. Ég vil sérstaklega mæla með þessari æfingu fyrir börn og unglinga, sem eru að vaxa. Auk þess er þetta prýðileg jafnvægisæfing. ÁTTUNDA ÆFING: Réttstaða, staðið í lítilli gleiðstöðu, arm- ar í seiiingarhæð, lófar vísa saman, bolbeygja áfram og eins langt niður og þú getur án þess að beygja liné. Réttu svo úr þér og eins langt aftur og þú getur. Athugaðu vel téikninguna. Þú skalt æfa þessa æfingu fyrst fimm sinn- um, bættu svo einni og einni við, þar til þú að lokum æfir hana 20 sinnum. Þetta er góð æfing fyrir magavöðvana og bakið. NÍUNDA ÆFING: Liggðu endi- langur á bakinu, eins og teikn- ingin sýnir, armar spenntir á hnakka og réttu úr hægri og vinstri fæti á víxl — þráðbeint upp. Æfðu þessa æfingu 5 sinn- um og bættu svo einni og einni við vikulega. Þetta er góð maga-, bak- og mjaðmaæfing. „HREYFING E R LÍF" Verðlaunaþraut ÆSKUNNAR í síð- asta jólablaði hefur orðið mjög vinsæl, því að yfir 4000 lausnir bárust. Dregið var um, hverjir skyldu hljóta verðlaun- in. Þessi nöfn komu upp: Svava Víg- lundsdóttir, Refsstað II, Vopnafirði, Norður-Múlasýslu, Jenny K. Steinþórs- dóttir, Selási 4, Egilsstöðum, Suður- Múlasýslu, Skúli Skúlason, Melteigi 12, Keflavík, Rósa Sigurðardóttir, Leifs- gatan 4, Þórshöfn, Færeyjum, Aðal- björn Björnsson, Asgarði, Vopnafirði, Guðrún B. Guðjónsdóttir, Skaftafelli, Vik í Mýrdal, Vestur-Skaftafellssýslu, Kristín Hlin Andrésdóttir, Berjanesi, Austur-Eyjafjöllum, Rangárvallasýslu, Kristján Egilsson, Ásvegi 24, Vest- mannaeyjum, Adolf Ö. Kristjánsson, Langholtsvegi 26, Reykjavík og Guð- laug Guðmundsdóttir, Lindargötu 22, Siglufirði. Myndin sýnir, hvar hlutirnir voru í verðlaunaþraut ÆSKUNNAR. Verðlaunin verða send til verðlauna- liafanna nú á næstunni. Þetta er mesta þátttaka í getraunum, sem ÆSKAN hefur boðið upp á til þessa, og sýnir þessi mikla þátttaka hvað blaðið á miklum vinsæklum að fagna meðal les- enda sinna. ÆSKAN færir öllum þátt- takendum sinar beztu þakkir. Hér koma úrslitin í áttundu verðiauna- þraut ÆSKUNNAR, „Hver þekkir borg- irnar?“ Nöfn eftirtalinna lesenda koinu upp: Unnur Magnúsdóttir, Skógargötu 5B, Sauðárkróki, Jenny Ásmundsdóttir, Diskovej 48, Aalborg, Danmörku, Guð- jón Hallgrímsson, Urðargötu 19, Pal- reksfirði, Hreiðar Guðmundsson, Eystra Hrauni, Landbroti, Kirkjubæjarlireppi, Vestur-Skaftafellssýslu, Kristinn Magn- ússon, Álfheimum 48, Reykjavík, Rann- veig Margrét Stefánsdóttir, Vatnsholti, Staðarsveit, Snæfellsnesi. Að þessu sinni var borgin, sem spurt var um, STOKKHÓLMUR. 68

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.