Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1967, Blaðsíða 25

Æskan - 01.02.1967, Blaðsíða 25
Barnaleikrit Þjóðleikhússins: GALDRAKARUNN í OZ Nú hefur Þjóðleikhúsið sýnt Galdrakarlinn í Oz yfir 12 sinnum V*Ú mikla hrifningu hinna yngstu lelkhúsgesta höfuðborgarinnar. Leik- Urinn segir frá lítilli stúlku, Dóróteu, ^ ára, sem leggur upp í ferðalag í úiaumi til Galdrakarlsins í Oz. í f eirra ferð kemst hún í mörg mjög s^emmtileg ævintýri, og nokkrir skrítnir fuglar slást í ferðina með en»i, svo sem Fuglahræðan, sem í Vantar heilann, Járnkarlinn, sem í Vantar hjartað, Ljónið, sem vantar P°r, 0g svo hundurinn Tótó, sem °ó3'ótea á sjálf. Alfkonan, Góða nornin, gefur Dóróteu silfurskó, og það eru þessir skór, sem hjálpa henni og félögum hennar til að ná að lokum til lands Galdrakarlsins í Oz, sem bjargar öllu að lokum. Aðalhlutverkin leika Bessi Bjarna- son, Margrét Guðmundsdóttir, Jón Júlíusson, Sverrir Guðmundsson, Valdimar Lárusson, Nína Sveinsdótt- ir, Bríet Héðinsdóttir, Þóra Friðriks- dóttir, Klemenz Jónsson og Árni Tryggvason. Auk þessara, sem hér hafa verið taldir upp, koma fram í leiknum putalingar, nornir og hirð- fólk. Leikritið er í 9 myndum, og er samið úr sögu eftir L. Frank Baum. Þýðingu gerði Hulda Valtýsdóttir, en þýðingu söngtexta hefur Kristján frá Djúpalæk gert og hefur hann einnig ort suma þeirra. Leikstjóri er Klem- enz Jónsson, en leikmyndir og bún- ingateikningar gerði Birgir Engil- berts. Dansatriðum stjórnar Fay Werner, en hljómsveit Carl Billich leikur með.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.