Æskan - 01.02.1967, Síða 43
S. H. Þorsteinsson:
Frímerki.
Hollendingar hafa mörg und-
anfarin ár gefið út frímerkja-
útgáfur, sem þeir kalla „Voor
úet kind,“ eða fyrir börnin.
Hetta eru frímerki með yfir-
Vei'ði, sem notað er til livers
konar barnahjálpar i Hollandi
°S nýlendunum, og oft bafa
'’erið notaðar skemmtilegar
úarnateikningar til «ð skreyta
ttierkin með.
s. lok lönguföstu. Það er siður
iijá Hindúum, sem búa í Suri-
name, að ljúka föstunni með
alls konar leikjum. Þarna eru
|);hi að reyna að sprauta rauð-
um vökva bvort á annað, kann-
ske tómatsafa, það má svo sem
nærri geta bvernig þetta fer
með fötin.
Á 20 + 10 centa merkinu eru
svo sýnd hátíðahöldin á frels-
isdegi þeirra í Suriname, en
hann er haldinn hátíðlegur 1.
júlí ár hvert til að minnast þess
er þrælahald var afnumið árið
1863. Eftir það máttu hvítir
menn ekki lengur halda neina
þræla.
Á 25 + 12 centa merkinu er
svo mynd af hörnum í cins
konar Tívolí, er þau halda upp
á afmælisdag Wilhelmínu
drottningar. Heitir sú hátíð
„Konfrijarie". Wilhelmina heit-
in, sem var móðir núverandi
barnahjálp
Á árinu 1966 voru sams konar
útgáfur gefnar út af nýlend-
u,n Hollendinga, Suriname og
Hederiandse Antillen. Að ]>essu
s'nni voru þau teiknuð af
l'ekktum listamönnum, en sýna
l'ó börn að leik og starfi.
^uriname.
Merkin, sem Suriname gaf út,
Voru teiknuð nf R. Flu von
aramaribo. Myndin á 10 + 5
Centa merkinu er af börnum á
S'Unlárskvöld.Þau eru að skjóta
lugeldi af svokallaðri liamhoo
yssu. Þessi hyssa er gerð úr
Uttibus og er flugeldinum kom-
’ fyrir í legg hans. Eins og
^ sjáið, heldur sá, er horfir á,
' Clr eyrun, svo að einliver
1 .' tur hvellurinn að vera. Ann-
"11 s keitir byssan á máli inn-
t;eddra „bamhocsi".
A 15 + 8 centa merkinu er svo
ynd af börnum, sem eru að
U'lda upp ^ föstulokin, þ. e. a.
drottningar, Júlíönu, var i
miklu uppálialdi i Suriname,
eins og sjá má af því, að á nf-
mælisdegi hennar er enn hald-
in sérstök liátið, en afmælið er
31. ágúst.
Á 30 + 15 centa merkinu er
svo mynd af börnunum að
skreyta herbergi fyrir jólin.
Þau eru að hengja Betlehems-
stjörnuna upp i stofuna hjá sér.
Nederlandse
Antillen.
Þá gáfu Antillen út samstæðu
fjögurra merkja á árinu, einn-
ig með myndum af hörnum og
unglingum, en nú að starfi. Það
var innfæddur listamaður, Osc-
ar Ravelo Nadal, sem teiknaði
þau.
Á 6 + 3 centa merkinu getur
að líta mynd af stúlku í eid-
húsinu, og er Iiún að elda mat
fyrir fjölskylduna, sem öll lief-
ur verið að vinna úti en safn-
ast brátt saman til aðalmáltíð-
ar dagsins, þar sem allir segja
lielztu fréttir sem fyrir augu
og eyru Iiafa borið, meðan dag-
urinn rann sitt skeið.
Á 10+5 centa merkinu er svo
aftur á móti stúlka i starfi ut-
an heimilis, eða i vöggustofu.
Til ]>ess að mæðurnar geti unn-
ið úli, er verið að koma upp
vöggustofum, m. a. fyrir fé það,
sem safnast fyrir yfirverð ])ess-
ara frimerkja. Þarna er svo
ein liinna innfæddu stúlkna að
vinna á slíkri stofu.
Á 20+10 centa merkinu er
svo drengur að starfi. Hann er
að vinna í járnsmíði við að
sverfa járn á smergel.
Á 25+11 centa merkinu er
svo ung kona að strauja þvott
á heimili sínu.
Þannig er ])á þroskaferill
unglinganna frá því þau fara
fyrst að hjálpa til á heimilinu
rakin á fjórum frimerkjum,
unz þau eru sjálf búin að
mynda sitt eigið heimili og
liafa tekið á herðar sér byrðar
lífsins.
Jólamerhi
Eitt jólamórki varð að ])essu
sinni seint á ferðinni, það er
ef miðað er við að blaðið þarf
alltaf að vera tilbúið til útgáfu
nokkuð löngu fyrir útkomudag.
Nú viljum við þvi gera hragar-
bót og geta ])ess hér.
TH ORVALDSENSFÉLAGIÐ.
Thorvaldsensfélags merkið er
sérstaklega snoturt í ár. Það
sýnir mynd af ungri stúlku,
sem heldur á kerti i stjaka.
Merkið er marglitt og sýnir
l)versu prýðilega má gera slík
merki hér heima. Er þetta eitt
bezta merki þeirra Tliorvald-
senskvenna nú um langa liríð.
V erðlaumigeiritxmin.
Við höfum ákveðið að hefja
ekki getraunina fyrr en í næsta
blaði, en til þess að geta tekið
þátt í henni, þurfið þið að
þessu sinni að hafa við höndina
íslenzkan frímerkjaverðlista,
og sumar af kennslubókum
þeim, er þið notið í barna- eða
unglingaskóla. Spurt verður
um útgáfur ýmissa merkja og
einnig um staðsetningu staða
þeirra, er myndirnar á þeim
sýna. Svo nii ættu allir að geta
verið tilbúnir þegar fyrsti hluti
getraunarinnar birtist.