Æskan - 01.03.1967, Síða 24
11
Nú heimsækjum við elleftu borgina.
Eins og áður gefum við ykkur upp nöfn
þriggja borga, og getið þið valið um,
hver þeirra sé borgin, sem við er átt.
Svar sendist til ÆSKUNNAR fyrir 1.
maí næstkomandi. I hvcrt sinn eru
veitt fimm bókaverðlaun fyrir rétt svar,
og ef mörg rétt svör berast, verður
dregið um verðlaunin.
Borg þessi stendur á eyju. Arið 1254 fékk borgin kaupstaðar-
réttindi, og tveimur öldum síðar varð hún höfuðborg ríkisins.
Mörg fögur stórhýsi eru í borg þessari og margir fagrir garðar.
Borgin er taiin mjög fögur. Hún er stundum nefnd „borgin með
fögru turnana", enda eru þeir aðaleinkenni hennar, þegar hún
er séð úr fjarska. Borgin er iíka stundum nefnd eftir hinni frægu
Parísarborg vegna glæsileika síns, en jafnframt hins létta og
fjöruga blæs, sem einkennir hana, vegna götulífsins með mörg-
um gangstéttarkaffihúsum og glæsilcgum gistihúsum. Annað, sem
einkennir borgina, eru skurðirnir víðs vcgar um miðbik hennar,
Hvað heitir
þessi borg?
□ Haag
□ Ifelsingfors
□ Kaupmannahöfn
Setjið X fyrií
framan þá
réttu.
þar úir og grúir af smáum og stórum bátum, sem koma úr ýmsum
landshlutum til þess að selja fisk, ávexti, ost o. fl. Þá prýða borg-
ina 3 allmikil stöðuvötn, er Iiggja í framhaldi hvert af öðru.
Aðalatvinnuvegir borgarbúa eru iðnaður, verzlun, siglingar og
samgöngur. Höfn borgarinnar er mjög fjölsótt, enda mjög stór,
74 km2. Þangað koma mörg ísienzk skip, og flugfélögin íslenzku
hafa þangað fastar ferðir. I borg þessari búa hundruð íslendinga.
Það eru til dýr, sem ná talsvert miklu hærri
aldri en mannfólkið yfirleitt, en svo eru til önn-
ur, sem aðeins lifa eitt dægur. Hvalurinn hefur
möguleika á að verða 150 ára, en fáir þeirra
ná þeim aldri sökum þess hve mikið þeir eru
veiddir. Skjaldbökur geta orðið um 100 ára,
páfagaukar verða einnig ótrúlega gamlir, en
kanínur lifa aðeins í um það bil fimm ár. —
A meðfylgjandi mynd sjáið þið aldur nokkurra
dýra í tölum.