Æskan - 01.03.1967, Page 25
Þórunn Pálsdóttir:
Heimilið.
Súrm j ólkurré ttir:
Súrmjóllt cr hollur og gó'ður
eftirréttur en einnig ómissandi
á morgunverSarborfSið. Fjöl-
breytni má fá með því að bæta
ímsu í súrmjólkina, t. d. cin-
hverju af þessu í einn súr-
■njólkurdisk: 2 msk. rúsinur, 1
<11 kornflögur, 1 msk. sykur
c‘ða % msk. púðursykur, 1 msk.
sólberjasulta eða önnur góð
sutta, 1 msk. rifið rúgbrauð.
Ennfremur er gott að setja
saman við súrmjólkina ýmsa
SInátt skorna nýja ávexti, eina
e®a flciri tegundir saman, t. d.
epli, banana, appelsínur, vín-
ber. heytið þá súrmjólkina
nokkrar mínútur með ávöxt-
ununt i hrærivél.
Súrmjólk lilönduð sykri og/
eða sítrónusafa er prýðilcg sem
salatsósa á liráa grænmetis-
salatið, hvort sem það eru rifn-
ar gulrófur, gulrætur, hvítkál
eða blaðsalat.
Ýmsa ljúffenga ábætisrétti
og eftirrétti má búa til úr súr-
mjólk.
Súrmjólkurbúðingur
% 1 súrmjólk
100 gr. sykur
2 tsk. vanilla
50 gr. möndlur
8 blöð matarlím
2 Vt dl rjómi
ávaxtamauk
í súrmjólkina er lílandað
sykri, flysjuðum, söxuðum
möndlum og vanilludropum,
],vi næst er brætt matarlimið
sett í og hrært i, þar til byrjar
að þykkna, j)á er þeyttum
rjóma blandað i. Ávaxtamauk
er látið í botninn á glerskál og
búðingurinn ]>ar ofan á. Skreytt
með þeyttum rjóma, ávaxta-
mauki og möndlum.
Súrmjólkureggjabúðingur
3 egg
100 gr. sykur
0 blöð matarlim
1 msk. sitrónusafi
4 dl súrmjólk
Egg og sykur er þeytt, þar
til það er Ijóst og létt. Brætt
matarlimið cr kælt með sitr-
ónusafanum og því blandað i
eggjahræruna. Því næst er súr-
mjólkin sett út i og hrært i,
þar til búðingurinn byrjar að
þykkna. Hellt i skál og skreytt
með þeyttum rjóma, sítrónu-
sneiðum eða flusi.
Mjólkursamsalan í Reykjavík tók upp þá ný-
breytni að hafa kynningu á ýmsum mjólkurvörum,
en þær eru ostur, skyr, ís og súrmjólk.
Kynningu þessa annaðist frú Elísabet Magnús-
dóttir í húsakynnum Mjólkurstöðvarinnar, en þar
er eldhús gott til sýnikennslu og salur, sem rúmar
60 manns í sæti. Á öllum þessum kynningum vai
hvert sæti skipað og voru það aðallega húsmæðui í
borginni, sem sóttu þessa fræðslu. Einnig hópar úr
nokkrum 4. bekkjar-deildum gagnfræðaskólanna í
Reykjavík. Þarna sýndi frúin, hvernig mætti mat-
reiða fyrrnefnda vöru á ýmsa vegu og hefur hún
góðfúslega leyft þættinum að birta nokkuð af j)eim
uppskriftum, sem þátttakendur fengu í fjölrituðum
bæklingi.
Athugið, að kryddtegundir, sem nefndar eru í
sumum uppskriftunum fást í verzlunum Sláturfélags
Suðurlands í Reykjavík og ef til vill víðar. Þetta
eru þuivkaðar kryddjurtir, sem gefa mjög gott bragð
og gott að hafa þær að vetrinum þegar lítið er um
nýtt grænmeti.
Skyr.
Daglega hrærum við skyrið
út með vatni, bætum sykri eða
púðursykri út í og borðum með
mjólk eða rjómablandi. Við
getum skapað fjölbreytni með
þvi að blanda í skyrið ýmsum
smátt brytjuðum ávöxtum,
soðnum i sykurlegi (1 hluti
sykur, 2 hlutar vatn, sítrónu-
safi) eða hella ávaxtasafa eða
sykurlegi yfir nýja smátt
brytjaða ávexti i skál. Ef við
viljum hafa meira við, getum
við hrært skyrið út með rjóma
og bætt eggjum út i, t. d. eitt-
hvað á þessa leið:
250 gr. skyr
1% dl rjómi
1 egg
% bolli sykur
hýði af hálfri sitrónu,
saxaðar, afhýddar möndlur
eða rúsínur.
Aðskiljið eggið og stifþeytið
livituna. Hrærið skyrið út með
rjómanum, bætið eggjarauðu,
sykri og rifnu liýði af sitrónu
i, og hrærið í tvær til þrjár
minútur i hrærivél. Setjið þá
rúsínur eða saxaðar möndlur
út í ásamt stífþeyttum eggja-
hvítum. Borið fram með þeytt-
um rjóma, rjómablandi eða
saftsósu.
Skyr hrært þunnt blandað
rifnum sitrónuberki og safa cr
ágæt salatsósa á hrátt græn-
metissalat.
Skyrið má auk þess nota á
ýmsan hátt i matreiðslunni,
eins og eftirfarandi uppskrift
sýnir.
Skyrostur
100 gr. skyr
50 gr. smjör
M, tsk. sall
Va tsk. pipar
Vi tsk. paprika
Vi tsk. kúmen
2 msk. rifinn laukur eða
graslaukur
Hrærið skyrið með smjörinu.
Blandað rifnum lauk og kryddi
saman við. Borðað með brauði
eða kexi.
Mjólkurdrykkir:
Appelsínumjólkurdrykkur
2 msk. appelsinusafi
Vi tsk. flórsykur
2 msk. vanilluis
2 dl mjólk
Blandið saman í skál is, flór-
sykri og appclsínusafa, hellið
kaldri mjólk yfir og þeytið
rösklega í 3—5 mínútur með
liandþeytara en i 2 mínútur í
hrærivél.
Bananamjólkurdrykkur
% banani
Vz msk. sitrónusafi
2 msk. vanilluís
2 dl mjólk
Merjið bananann, setjið i
skál ásamt sitrónusafa og is,
liellið kaldri mjólk yfir og
þeytið rösklega.
íssúkkulaöi
3 tsk. kakó
1 tsk. flórsykur
1 tsk. vanillusykur
2 msk. vanillu- eða súkku-
laðiís
2 dl mjólk
Blandið öllu saman i skál og
þeytið rösklega.