Æskan - 01.01.1968, Page 9
J-^ann 9. janúar voru 100 ár liðin síðan mannvinurinn
Sigurður Júlíus Jóliannesson íæddist að Læk í Ölfusi.
En Sigurður var fyrsti ritstjóri Æskunnar, sem var fyrsta
barnablað á íslandi, og stofnun liennar var þess vegna
merkilegt brautryðjandastarf.
Sigurður lauk námi í Lærðaskólanum í Reykjavík 1897,
en fluttist vestur um liaf tveim árum síðar. Þrátt fyrir fé-
leysi og aðra örðugleika, brauzt hann með frábærum dugn-
aði áfram til háskólanáms og lauk læknanámi í Chicago
1907. Stundaði liann að því loknu læknisstörf meðal ís-
lendinga vestan liafs áratugum saman, en tók jafnframt
víðtækan og áhrifamikinn þátt í vestur-íslenzkum félags-
málum, fékkst mikið við blaðamennsku og önnur ritstörf.
Sögur hans og kvæði, sem komu út í Æskunni á ritstjórn-
arárum hans, gaf Stórstúka íslands út í bókinni Sögur
Æskunnar árið 1930. Sama ár kom út safn barna- og ungl-
ingaljóða hans, er hann hafði gefið Barnavinafélaginu
Sumargjöf. Auk þess, sem hann annaðist árum saman
barna- og unglingadeild í vestur-íslenzku blöðunum, Lög-
bergi og Voröld, var hann ritstjóri barnablaðsins Baldurs-
brá, sem Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi gaf út,
og átti blaðið vinsældum að fagna í höndum hans. Fór það
að vonum, því að hann kunni ágætt lag á því að rita við
hæfi barna og unglinga. Stíll hans er lipur, léttur og áferð-
arfallegur, og hann var gæddur þeim næmleika tilfinning-
SIGURÐUR JÚLÍUS JÓHANNESSON
Þann 9. janúar eru 100 ár liðin frá fæðingu mannvinarins
^a^iíjurJ ar '^j-úlíusar
annessonar.
anna og þýðleika hugarfarsins, sem nær til barnshjartans. Aðalkvæðasöfn hans eru Kvistir (1910) og Ljóð (1950)
Úessara einkenna lians gætir einnig mjög mikið í kvæðum Sigurður andaðist í Winnipeg 12. marz 1956 hátt á ní-
hans í heild sinni. ræðisaldri.
í mörgum skólum landsins,
öðrum i‘ii barnaskólum, eru nú
starfandi bindindisfélög, og
samband Jieirra befur gert 1.
febrúar að sérstökum hvatning-
ardcgi, enda cr til ])ess ætlazt,
að sá dagur sé sérstaklega belg-
aður bindindismálum.
Mikill hluti æskufólks er í
skólanum frá 7 ára aldri og
fram um tvitugt. Á þessum
broskaárum er æskumanninum
lifsnauðsyn að vera bindindis-
maður. Það er skylda allra, sem
við skólana starfa að stuðla að
])ví, að nemendur neyti ckki
áfengis eða tóbaks. Góður fé-
lagsskapur getur þar miklu
góðu til lciðar komið, og liefur
forðað mörgu góðu mannsefni
frá óreglu og lífsglötun.
Fordæmi kennara hefur þar
mikið að segja. Það er skylda
allra, sem við skóla starfa, að
benda æskunni á liættur þær,
sem fylgja neyzlu áfengis. Geri
þeir það ekki, bregðast þeir
skyldu sinni við æskuna.
Iíenndu mér að varast hættuna.
Þá kennir ])ú mér vei.
Skólaœskan.
5