Æskan - 01.01.1968, Page 28
Nokkrar leiðbeiningar
bréfaskriftir.
Margir hafa óskað eftir upplýsingum um hvernig eigi að hef ja
bréfaskipti í fyrsta sinn. Hér koma nokkrar upplýsingar, sein
ættu að koma að gagni í byrjun.
Auðveldustu bréfin, sem þú skrifar, eru til einhvers, sem þú
þekkir vel. Þú veizt á hverju hann hefur áhuga og á hverju ckki.
Það eru litlar líkur til þess að hann misskilji þig, og þar sem
þið vitið svo margt um hvorn annan, er svo margt, sem þú getur
iátið ósagt. Þú þarft ekki að naga endann á pennanum þínum,
áður en þú byrjar að sltrifa. Vináttan nægir til að laða fram
hugmyndir og umræðuefni.
En þegar mótskrifari þinn, hinn væntanlegi pennavinur, er
óþekktur eða þér lítt kunnur, Jicgar hann á heima í öðru landi og
talar annað tungumál, þegar þú hvorki þekkir áhugamál hans né
skoðanir, þá er ekki ósennilegt, að þú nartir talsverðan tíma i
pennann, áður en þú byrjar bréfið. Þegar svo er ástatt, gætu
eftirfarandi atriði orðið þér að gagni:
1. í fyrstu bréfunum verður þú að gefa þennavini þínum upp-
lýsingar um sjálfan þig og fá eitthvað að vita um hann. Farðu
þér samt hægt. Segðu ekki „allt“ í fyrsta bréfinu. Einskorð-
aðu þig við eitt eða tvö eftirfarandi atriða og geymdu hin
þangað til síðar.
a) Skrifaðu um sjálfan ])ig. En vertu ekki of nákvæmur: „Ég
er 15 ára og tveggja mánaða gamall, veg 48 kíló og 700
grömm og er 156 sentimetrar og 3 millimetrar á hæð.“
Raupaðu ekki: „Ég hefði orðið efstur í bekknum i seinasta
mánuði, ef...“ Segðu frá áhugamálum þínum og tóm-
stundagamni (hobbíi); hvað þú gerir í skólanum og hvern-
ig þú verð deginum.
b) Skrifaðu um fjölskyldu þina og heimili.
c) Um heimabæ þinn; kosti hans og galla.
d) Land þitt, ef þú veizt mikið um það.
2. Mundu, að það eru hin lífrænu atriði, sem skemmtileg eru og
áhuga vekja. Skrifaðu um það, sem þú veizt og þekkir. Ef þú
ert fyndinn, getur það hjálpað þér mikið. Vertu samt varkár;
það er svo auðvelt að misskilja. Kímnibragur er líka talsvert
breytilegur eftir löndum og þjóðerni. Skrifaðu ekki, ef illa
liggur á þér.
3. Spurðu skynsamlegra spurninga. Sum bréfaviðskipti — og
samtöl líka — verða einhliða, af því að annar aðilinn spyr
allra spurninganna. Mundu að spyrja einnar eða tveggja
spurninga, og gleymdu alls ekki að svara þeim, sem þú varst
spurður. Spurðu ekki of margra spurninga til að byrja með.
Það er auðvelt að spyrja spurninga. Það tekur lengri tima að
svara þeim. Of margar spurningar geta verið eins slæmar og
alls engin spurning.
4. Þegar pennavináttan er farin að skapast, verða bréfaskrift-
irnar léttara verk. Vandaðu þig samt. Skrifaðu ekki óljóst um
efnið, eins og svo margir gera: „Það var margt manna og
við skemmtum okkur öll vel,“ er gott dæmi. Sá, sem þannig
skrifar, hefur ekki liaft augun hjá sér og sýnir sínu eigin
bréfi ekki áliuga. Hvað margir menn voru eiginlega til staðar?
„Skemmtu" allir sér vel? Og ef ekki, hvers vegna? Manstu
eftir, hvernig umhorfs var? Hvernig var umhverfið, livernig
voru gluggatjöldin, húsgögnin og umfram allt — fólkið? Hvað
af þessu vekti áliuga eða skemmti pennavini þinum? Svona
spurninga ættir þú að spyrja sjálfan þig. Athygli þín mun
hjálpa þér stórlega.
5. Ef þú reynir að lýsa einhverju, mundu þá, að augun eru ekki
einu skilningarvitin. Notaðu eyrun og nefið jafnframt.
6. Það er heppilegra að skrifa um eitt skemmtilegt atriði og
lýsa því eða ræða það vandlega, en að tæpa á fjölmörgu og
gera því litil skil.
7. Gleymdu ekki þeim aðgangi, sem þú hefur að bókasöfnum og
upplýsingastofnunum. Tímarit, bækur og landakort geta
lijálpað þér til að sjá pennavin þinn i hans umhverfi. Af
þessum gögnum má furðulega mikið læra.
8. Hið óvenjulega er alltaf skemmtilegt. Það er auðvelt að leggja
teikningar, blaðaúrklippur, póstkort, Ijósmyndir, frímerki og
jafnvel farmiða inn í umslagið með bréfinu. Einnig er ckki
dýrt að senda tímarit og blöð (prentað mál) í pósti.
9. Segðu liug þinn, ef þú veizt, að það mun ekki móðga penna-
vin þinn. Vertu ekki að látast, láttu heldur margt ósagt.
Mundu, að þú ert ólíkur öllum öðrum og að pennavinur þinn
er það líka. Virtu tilfinningar ])ínar og annarra.
10. Að lokum þetta:
1) Rcyndu að slsrifa vel, læsilega rithönd. Auðvitað máttu
vélrita bréfið, en ef þú notar penna, gerðu þá góðan grein-
armun á n og u, a og o, og skrifaðu .vel stafina r og s.
Prentaðu upphafsstafina. Athugaðu vel íölustafina 3 og 8,
7 og 9, 5 og 6 og 1 og 7, svo að þeim verði ekki ruglað
saman.
24