Æskan - 01.01.1968, Blaðsíða 39
PRAGA 1968.
Heimssýningin verður haldin
i Prag að þessu sinni og hefur
upp á að hjóða hvorki meira né
minna en 10.000 sýningar-
ramma. Auk safns er íslenzka
póststjórnin sendir á þessa sýn-
ingu, munu tveir þeirra manna,
er teiknað hafa frimerki fyrir
íslenzku póststjórnina, sýna
þarna, en það eru þeir Stefán
Jónsson og Halldór Pétursson.
Þá verða tvenn sýningarefni í
bókmenntadeild sýningarinnar.
Verðlistinn fslenzk frímerki og
greinasafn um íslenzka frí-
merkjafræði. Unglingasöfnin
tvö, sem verða á Dania, verða
einnig á Praga og loks eitt póst-
sögusafn í almennu deiidinni.
Þarna verður því ísland kynnt
af íslendingum á um 19 fer-
metrum. Vonandi er að fleiri
af ykkur lesendur góðir taki
þátt í slíku framvegis, þar sem
nú á að. fara að koma upp
unglingaheimssýningu.
DANIA 1968.
Þá er útséð um þátttöku i
unglingasýningunni DIANA, er
haldin verður i Kaupniannaliöfn
næsta vor og við höfum áður
sagt frá í þáttunum hér. Frá ís-
landi verða send 3 söfn. Þar er
um að ræða landasafn, vitan-
lega íslandssafn, eða nánar til-
tekið Lýðveldið ísland. Tvö teg-
undasöfn verða einnig send, eða
safnið „Hljóða nótt. Heilaga
nótt,“ sem túlkar sálminn fræga
er flestir kannast við sem
Heims um ból. En auk þess safn,
er minnst var á í þættinum ó
sl. ári. Tegundasafnið „fslenzk-
ar ferðamannaleiðir“. Læt ég
nægja að vísa til frásagnarinn-
ar af því í októberblaðinu.
•0»0*0»0«0«0«0»0*(D*000»0«0*0»0»0»0*0*0®0*0«0*0*0»0«0®0©0*0«000«0«0*0«0«0»0«0«0*0*0»0»(
Frímerkjaklúbbiir.
Og nú skulum við stofna frúnerkjaklúbb. Þið þurfið
að senda inn nöfn ykkar, þ. e. a. s. fullt nafn og heimilis-
fang. Fæðingardag og ár. Hvaða landi eða löndiun þið
safnið. Hvaða verðlista þið notið. Hver eru önnur söfnun-
arsvið ykkar, s. s. tegundasöfn, jólamerki eða annað.
Þetta sendið þið allt til frímerkjaþáttarins í bréfi, ásamt
25 króna klúbbgjaldi, sem verður árgjald fyrir 1968. Og
hvað fáið þið nú í staðinn. Klúbburinn mun útvega ykk-
ur á mun lægra verði verðlista yfir frímerki, bækur um
frímerki, ákveðin hjálpartæki fyrir frímerkjasafnara, sem
síðar verðm- tilkynnt hverju sinni og svo vitanlega upp-
lýsingar, því að við ætlum klúbbnum smáhorn hérna í
blaðinu hjá okkur. Þá verður gefin út félagaskrá, þar sem
sagt verður frá áhugamálum hvers og eins, svo að þið get-
ið farið að skrifa hvert öðru og skipta á merkjum.
Okkur er nauðsyn að fá þessar 25 krónur sem félags-
gjald til að borga burðargjöld og annað, en þið vinnið
þær líka kannske inn aftur á verðmismun einnar bókar,
þegar til kemur. Dragið því ekki að skrifa:
Frímerkjaklúbbur Æskunnar,
Pósthólf 14,
Reykjavík.
Verðlaunagetraunin.
Hvert er fallegasta íslenzka
• trímerkið að þínum dómi •
Þá er það lokaspretturinn í getrauninni okkar.
Nú mega allir þeir sem áður hafa sent inn lausnir
taka þátt í getrauninni og keppa um þrjú vönduð
albúm. Og þá er jiað spurningin:
Hvert er fallegasta íslenzka frímerkið
að þínum dómi?
Við munum svo draga nöfn þriggja, sem greiða
því merki atkvæði er vinnur, og senda þeim verð-
launin. Auk þess sem við náttúrlega birtum mynd
af fallegasta merkinu.
Þau 6, er hlutu svo verðlaun í 4. hluta getraunarinnar,
voru þessi:
Sigurður Bogi Stefánsson, Kaplaskjólsvegi 67, Reykjavik.
Þóra Jónsdóttir, Rafstöð v/Eiiiðaár, Reykjavík.
Björgvin Guðjónsson, Urðargötu 26, Patreksfirði.
Guðrún Agnes Pétursdóttir, pr. Litla-Hvammi, Mýrdal.
Yigdís Jónsdóttir, Rafstöð v/Elliðaár, Reykjavík.
Árni Grétar Gunnarsson, Lindarhrekku, Kelduhverfi,
Norður-Þingeyjarsýslu.
0#0#00000#0000000#0#0#0#00000#0#000#000#0#0#0#0#0#0#000000000#0#0#000#0#0#0#0#00000004
•oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
Nýir verðlistar.
ÍSLENZK FRÍMERKI.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Útgefandi: ísafoldarprent-
smiðja. 11. útgáfa.
í nóvember kom út verðlist-
inn íslenzk frímerki og er að
þessu sinni hætt inn i listann
skráningu á póstbréfsefnum.
Þá eru allir stimplar, sem birt-
ast í verðlistanum verðlagðir
að þessu sinni, og má segja að
nauðsynlegt sé fyrir alla ís-
landssafnara að eiga hann, svo
að þeir geti séð hvort kannske
sé um dýran stimpil að ræða á
ódýru frimerki, sem þeir ætla
að seija eða láta í skiptum.
Mikið er eins og áður um verð-
breytingar, og þá alveg sérstak-
lega á eldri íslenzkum merkj-
um.
Verður hann að líkindum sem
fyrr, vinsælasti listinn lijá ís-
landssöfnurum.
STANLEY GIBBONS „SIM-
PLIFIED" STAMP CATA-
LOGUE. 1968, 33. útgáfa.
Útgefandi: Stanley Gibbons
Ltd., 391 Strand, London
W.C. 2. 1552 síður. Skrá yf-
ir 134.400 frímerki. 24.140
myndir.
Simplified verðlistinn frá
Stanley Gibbons hefur í yfir 30
ár verið einn allra vinsælasti
listinn yfir frimerki, sem byrj-
endur hafa getað ltosið sér.
Hann gefur i einu bindi yfirlit
yfir öll frímerki heims á eins
einfaldan hátt og mögulegt er.
Að þessu sinni hefur listinn
reynt að hafa í sem flestum til-
fellum sömu númer og eru í
öðrum listum fyrirtækisins, þ.
e. a. s. stóru og nákvæmu list-
unum. Auk þess að hafa allt
þetta til að bera, er þarna um
mjög ódýra bók að ræða, eða
1552 síðna bók á 40 shillinga.
M»0*0f0*0f0«0«0*0*0*0*0*0«0«000»0«0*0*0»0»0«0«000*0»0*0*0*0»0»0*0*0«0*0*0*0*0*0*0*0»0»
»o*o»o»o«o*o»o»o»o»o»o*o*o»o«o*o*o»o»o»o»o«o*o«o*ooo*o»o»o»o»o*o*o*o«o*o»o»o»o»o»o*o*o
35