Æskan - 01.01.1968, Qupperneq 40
f júli s.l. unnu 785 starfsmenn hjá Loftleiðum á íslandi.
Venjulegur bíleigandi eyðir jafnmiklu eldsneyti á sjö árum og
stór farþegaþota á 2 klukkustundum.
Farið er að dreifa sandi og salti úr fiugvólum á þjóðvegi, þegar
hált er.
9. september s.l. voru talin 2.006 lendingar og flugtök á O’Hare
flugvelli í Chicago. Á þessum sólarhring fóru 78.155 farþegar um
flugstöðina.
Hin góðkunna Skymaster-flugvél (DC-4/C-54), sem íslenzku
flugfélögin notuðu til millilandaflugs um árabil, virðist enn eiga
langa lífdaga fyrir höndum. Nú hefur fyrirtæki eitt i Bandaríkj-
unum fengið leyfi til að húa Skymaster aflmeiri lireyflum, og
kallast flugvélin þá Super Skymaster ME-2. Hreyflarnir eru af
gerðinni Wriglit R-2600, og með þeim á Skymaster að verða mun
liagkvæmari í rekstri.
Arngr. Sigurðsson:
FLUG
*■» 18. ágúst skýrir stjórnar-
formaður Loftleiða frá því, að
félagið hyggist kaupa fimmtu
RR-400 flugvélina. Verður flug-
vélin keypt af Flying Tiger og
flytur hún 160 farþega.
'S' 19. ágúst var Flugdagurinn
1967 haldinn í Reykjavík. Flug-
málafélag íslands stóð fyrir
flugdeginum að /anda.
^ 15.—18. ágúst var 14. nor-
ræni flugöryggisfundurinn
haldinn í Reykjavík, og var
Leifur Magnússon, framkv.stj.
islenzku flugöryggisþjónust-
unnar, fundarstjóri.
23. ágúst kl. 19:45 lenti
Gullfaxi í fyrsta sinn á Akur-
eyrarflugvelli, en völlurinn cr
næstum almalbikaður. Margir
gestir voru með þotunni, og
mörg þúsund bæjarbúa komu
út á flugvöll til að fagna þot-
unni, og allmargir skoðuðu hana
líka að innan. Flugstjóri var
Jóhannes R. Snorrason.
11. september lenti Gullfaxi
úr áætlunarflugi í fyrsta skipti
á Reykjavíkurflugvelli. Flug-
stjóri var Aðalbjörn Krist-
björnsson.
12. september flutti þota
2 tonn af ísuðum flatfiski til
London.
^ 18. september var haldinn
í Iíhöfn fundur samgöngumála-
ráðherra Norðurlanda um að-
stöðu Loftleiða í Skandinaviu.
Vilji Loftleiðir nota RR-400 til
Skandinavíu verða fargjöldin
að liækka og farþegum að
fækka, að öðrum kosti haldi
Loftleiðir áfram að nota DC-
6B. Ákvörðun um þessa tvo
kosti taka Loftleiðir fyrir 1.
apríl 1968.
^ 26.—28. sept. var lialdinn
í Reykjavík fundur fulltrúa
Loftleiða frá 14 löndum. Að
þessum fundi loknum gaf
stjórn Loftleiða út greinargerð
varðandi Kaupmannahafnar-
tillögurnar svonefndu og segir
þar, að Loftleiðir hafni nauð-
ungarkostum þeim, sem i til-
lögunum felist. Verði því
áfram flogið sömu flugvélum á
sömu leiðum og áður.
3. október fórst flugvélin
TF-BGI, sem er einhreyfils
Piper Tri-Pacer. Flugmaðurinn,
Lárus Guðmundsson, var einn
í flugvélinni á leið frá Húsavik
til Reykjavíkur. Síðast heyrðist
frá flugvélinni um kl. 18:50,
og taldi flugmaðurinn sig þá
vera yfir Skagafirði eða Húna-
flóa, en síðan hefur ekkert til
flugvélarinnar spurzt.
’t1 10. október setti Gullfaxi
nýtt liraðamet á leiðinni milli
Keflavíkur og Kaupmanna-
hafnar. Flugtíminn var 2 ltlst.
og 10 minútur. Þotan fékk með-
vind á leiðinni, og komst lirað-
inn upp í 1100 km/klst. Flug-
stjóri var Anton Axelsson.
^ 11. október hófust í Rvik
viðræður fulltrúa SAS og Flug-
félags íslands um flug á milli
fslands og Skandinavíu og ís-
lands og Grænlands. SAS hefur
liug á að taka upp íslandsflug
með Douglas DC-8 þotum.
TF-ABC Trener Master — Fél.
íslenzkra einkaflugmanna.
TF-ACC Auster Autocrat —
Kristján Árnason o. fl.
TF-AIB Cessna 140 — Helgi
Jónsson.
TF-AIF Cessna 170 B — Björn
Sveinbjörnsson o. fl.
TF-AIM Stinson Voyager —
Einar Guðlaugsson.
TF-BAD Cessna 150 — Páll
Halldórsson o. fl.
TF-CAB Piper Super Cruiser
— Ólafur Guðjónsson o. fl.
TF—DIV Brantley 305 — Andri
Heiðberg.
TF-EHA Ercoupe — Kristján
Friðjónsson.
TF-KAN Fleet Finch — Erling
Jóhannesson o. fl.
TF-KAX Piper Colt — Ást-
valdur Eiriksson.
TF-KAZ Piper Super Cub •—
Ólafur Finsen.
TF-KF-KBA Ercoupe —
Kristján Mikaelsson o. fl.
TF-KZA K. Z. III — Hall-
grimur Jónsson o. fl.
FF-RCK Ercoupe — Ólafur
Marteinsson o. fl.
TF-REA Mooney Super 21 —
Bárður Danielsson o. fl.
TF-RKII Republic Sea-Bee —
Höskuldur Þorsteinsson o.fl.
TF-SOL Aero 45 — Einar Sig-
urðsson o. fl.
TF-TOR Piper Cub J3 — Þór-
ir Þórarinsson o. fl.
Innlendur