Æskan - 01.01.1968, Qupperneq 41
lom Jones, söngvarinn frœgi,
sem eitt sinn var námuverka-
ffla'ður, vinnur sér inn núna um
bað bil niutíu þúsund krónur á
viku. Hann kemur þó aðeins
fram i fimmtiu mínútur á
hverju kvöldi. í vor heldur
''ann til Las Vegas og ætiar að
skemmta þar.
sssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss
Minnsta
kona í heimi.
Þessi litla kona hér á mynd-
inni var nýlega sýnd á sýningu
í Cape Town. Hán fannst í
fjallahéraði í Suður-Afríku og
er 45 ára gömul, en hæð hennar
er þó ekki nema 83 cm.
Saga flugsins
km/klst. Hún var notuð á leiðunum Malmö
— Kaupmannahöfn — Gautaborg og Kaup-
mannhöfn — Hannover.
Northrop Delta — Fram til 1940 notaði
sænska flugfélagið Ab. Aerotransport flug-
vél af gerðinni Nortlirop Delta, sem var
smíðuð 1933. Hún var öll úr málmi og
ætluð til póst- og farþegaflutninga. Hreyf-
illinn var 670 lia. Pratt & Whitney Hornet.
Eftir þeirra tíma mælikvarða var þessi
flugvél mjög hraðfleyg, en liún flaug 306
Dornier Superwal. — „Superwal“-inn er ein
af hinum frægu flugvélum Þýzkalands á
timabilinu fyrir siðari heimsstyrjöldina
1939—45. Þetta var flugbátur, allur úr
málmi, og var mikið notaður til langflugs.
Hreyflarnir voru fjórir 500 lia. BMW.
Vænghafið var 28.5 m, lengdin 23.6 m,
vængflatarmálið 141 m2 og hámarksþung-
inn var 15.000 kg. Superwal flutti 19 far-
þega.
Focke-Wulf „Möwe“. — Þýzka flugvélin
F.W. Möwe, sem byggð var 1932, minnir í
útliti mikið á hollenzku flugvélina Fokker
F. VII. Þetta var farþegaflugvél, sem flutti
10 farþega. Hún var með einn 510 ha.
Siemens-mótor. Vængliafið var 20 m,
lengdin 15.4 m, vængflatarmálið 62.5 m2
og þyngdiu mest 4.400 kg. F.W. Möwe var
heilmikið notuð í Þýzkalandi um miðjan
fjórða tug aldarinnar.
Junkers G. 38. -— Junkers G. 38 var risa-
flugvél og oft kölluð fljúgandi vængurinn
af því að burðarvængurinn var svo þykk-
ur, að farþegarnir gátu staðið uppréttir í
klefum, sem voru innréttaðir í vængnum.
Hún var byggð 1930. Hún liafði fjóra 800
ha. Junkers-hreyfla, vænghafið var 44 m,
lengdin 23 m og fullhlaðin vó lmn 27.000
Itg. Hún var m. a. notuð á flugleiðinni milli
Berlínar og Kaupmannahafnar.
Dornier Delfin 3. — Þýzka firmað Dornier
liafði á að skipa sérfræðingum í smíði
stórra flugbáta. 1932 smíðaði fyrirtækið
gerðina „Delfin 3“, sem var riokkuð undar-
leg ásýndum. Hreyfillinn var aðeins einn
og lionum komið fyrir fremst ofan á far-
þegarýminu. Hreyfillinn var 450 hö. Væng-
hafið var 19.6 m, lengdin 14.35 m og væng-
flatarmálið 60 m2. Þessi flugvél var m. a.
talsvert notuð í Sviss.
/vyBUvJtCi--
37